SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Page 2
Hundaslagur er gömul og gróin íþrótt í Afganistan og á hverjum
föstudegi koma þúsundir manna saman við fjallsræturnar í Kabúl til
að horfa á afganska slagsmálahunda af gerðinni Kuchis kljást sín í
millum. Hófs er gætt og stendur hver leikur aðeins í hálfa mínútu.
Veröld
Reuters
Slagsmálahundar
2 4. mars 2012
Við mælum með
Þjóðleikhúsið
Vesalingarnir eftir Alain Boublil
og Claude-Michel Schönberg,
einn allra vinsælasti söngleikur
leikhússögunnar, öðlast á nýjan
leik líf á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins í flutningi leikara og
söngvara. Frumsýnt er í dag,
laugardag. Leikstjóri er Selma
Björnsdóttir og tónlistarstjóri
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Vesalingunum
6 Eins og að vinna HM
Franski sjarmörinn Jean Dujardin segist ekki munu breytast vegna
Óskarsverðlaunanna sem hann vann til um síðustu helgi.
14 Að kæra sig um Ísland
Haraldur Þór Stefánsson sýnir svart-hvítar landslagsljósmyndir á
neðri hæð Gerðarsafns í Kópavogi næsta mánuðinn.
26 Lugu fyrir drauminn
Danski sagnfræðingurinn Bent Jensen er harður andkommúnisti en
efast um að rétt sé að efna til uppgjörs við gamla sovétsinna.
28 Langar til að leika karla …
Guðrún S. Gísladóttir er í hópi bestu leikara þjóðarinnar en
segist oft fá sviðsskrekk. Hún hefur fengið góða dóma
fyrir Dagleiðina löngu.
32 Frá heimabæ Ósama ...
Borgin Abbottobad í Himalajafjöllum komst í sviðs-
ljós fjölmiðla á síðasta ári þegar bandarískir sér-
sveitarmenn tóku þar af lífi nokkra íbúa í friðsælu heldri
manna hverfi.
40 Söngleikjaórar vakna
María Ólafsdóttir hrífst af söngleikjum. Sama hvort
þeir eru sorglegir eða fyndnir. Henni hefur meira að
segja dottið í hug að skrifa handrit.
Lesbók
42 Listin þarf að vekja fólk …
Í Listasafni Íslands var á föstudagskvöldið opnuð viðamikil yfirlitssýn-
ing á verkum Rúríar, og er hún í öllum sölum safnsins.
44 Minnesota-þríleiknum lokið
Hrafnarnir, síðasta bókin í hinum spennandi Minnesota-þríleik norska
rithöfundarins Vidar Sundstøl, er nýkomin út í íslenskri þýðingu.
36
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ómar Óskarsson af Ásgeiri Helga Magnússyni.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
38
Augnablikið
Kælismiðjan Frost við Fjölnisgötu á Ak-ureyri síðdegis á fimmtudag. Morgun-blaðið er mætt á staðinn til þess að takamynd af Guðmundi Hannessyni, sölu-
og markaðsstjóra, og Gunnari Larsen fram-
kvæmdastjóra, í tilefni samnings sem fyrirtækið
hefur gert, ásamt Skaganum hf. á Akranesi, um
sölu á stórri verksmiðju til vinnslu og frystingar á
uppsjávarfiski til Færeyja.
Óhætt er að fullyrða að íslensku fyrirtækin og
starfsmenn þeirra séu sólarmegin í lífinu þessa
dagana. Bæði er vorið komið – a.m.k. fyrir norðan
– og verkefnið fyrir Færeyingana mikilvæg gjald-
eyrisöflun. Og þeir mega vera stoltir; þetta er jafn-
vel stærsta verksmiðja sinnar tegundar í norður-
álfu, segja þeir Frost-menn.
Undirritaður dregur upp myndavélina.
„Já, fínt að stilla sér upp þarna við hólkana.“ Þeir
eru hluti þess sem Frost sendir til Færeyja.
„Getið þið verið svo elskulegir að brosa? Þetta er
stór og jákvæður dagur, þegar skrifað er formlega
undir samninginn.“
Gunnar brosir og lítur ljómandi vel út, en Guð-
mundur á í basli með að horfa almennilega í vélina.
Íslendingar bölva ekki sólinni sem skín inn um
gluggann, en nú veldur hún vandræðum. Ég vil
mynda þá við hólkana og hafa vinnandi menn í
baksýn. Guðmundur stígur aðeins framar, svo að-
eins afturábak, snýr sér í hálfhring – en það er eins
og sólin elti hann. Flassið ræður ekki við að dempa
birtuna. Skyndilega dregur fyrir sólu; hvað er að
gerast? Ljósmyndarinn bænheyrður? Nei, einn
blikksmiðurinn greip til sinna ráða, sem að þessu
sinni var að sækja hluta blikksins sem fer til frænda
okkar í Færeyjum og halda því fyrir sólargeisl-
unum. Flóknara var það nú ekki. Samtakamátt-
urinn skilaði árangri, eins og svo oft áður. Sá mátt-
ur gleymist oft.
„Þessi maður á skilið launahækkun,“ segir und-
irritaður „Það er honum að þakka að þið, skrif-
stofumennirnir, lítið almennilega út á myndinni!“
Allar líkur eru á því að Jón Þór Jónsson blikk-
smiður verði kominn á forstjóralaun strax um
næstu mánaðamót.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Dró fyrir sólu! Frost-maðurinn Jón Þór Jónsson sýndi að samtakamátturinn getur m.a.s. slökkt á sólinni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samtök gegn sólu
Guðmundur, til vinstri, hefði líklega birst svona í
blaðinu hefði Jóni Þór ekki dottið snjallræðið í hug...
Baráttudagur
kvenna
Í tilefni af Al-
þjóðlegum
baráttudegi
kvenna þann 8. mars munu fjöl-
mörg samtök, stétta- og fag-
félög standa að dagskrá í Iðnó
kl. 17. Yfirskrift fundarins er
Vorið kallar. Kolbrún Halldórs-
dóttir er fundarstjóri og Magga
Stína syngur nokkur lög.
Málmveislu
Í dag, laug-
ardag, kl.20.30
keppa 6 ís-
lenskar sveitir
á Nösu um það hver verður
fulltrúi Íslands á Wacken Open
Air í ágúst. Sveitin sem stendur
uppi sem sigurvegari á Wacken
hlýtur hljómplötusamning við
Nuclear Blast.