SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Blaðsíða 21

SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Blaðsíða 21
4. mars 2012 21 Sveinbjörg Þórhallsdóttir er fagstjóri dansbrautar Listaháskóla Íslands en brautin tilheyrir leiklistar- og dansdeild skólans og er til húsa við Sölvhólsgötu. Innan deildarinnar er gott samstarf og í húsinu er skapandi andrúmsloft sem finnst vel þegar gengið er um húsið. Það er stutt síðan farið var að útskrifa af dansbrautinni og hefur það aðeins verið gert tvisvar sinnum en Ásgeir Helgi er eini strákurinn sem hefur útskrifast af brautinni. Það er tekið inn í námið ann- að hvert ár og er opið fyrir umsóknir til 23. mars. Inntökupróf verða síðan strax eftir páska, 10. og 11. apríl en það verða teknir inn um tíu dansarar. „Umhverfið hefur breyst mikið með tilkomu dansbrautarinnar og líka fræði og framkvæmdar. Það er mikið samstarf milli nemenda og það hafa sprottið upp allskyns skemmtilegir hópar. Samruninn er orðinn meiri milli greina,“ segir Sveinbjörg. „Það hefur verið mikil gróska og hröð þróun í dansi, öðruvísi nálganir og dýpri þekking á forminu. Fólk hefur verið að mennta sig og fara vel ofan í fræðin og kynnast dansinum frá ólíkum hliðum,“ segir Sveinbjörg um þróunina samhliða meiri menntun. Gestakennarar og samstarf við útlönd Í náminu er lögð áhersla á erlent sam- starf. Bæði fara nemendur utan og hing- að til lands koma gestakennarar frá Evr- ópu, sem dvelja við kennslu í skólanum í tvær til fimm vikur í senn. „Það er mikil ásókn í að koma hingað og kenna. Fólki finnst Ísland spennandi og prógrammið sömuleiðis áhugavert. Svo má ekki gleyma því að við höfum ákveðinn kraft hérna á Íslandi sem fólk tekur eftir,“ segir Sveinbjörg og útskýrir nánar. „Við erum á þessari eyju í nálægð við náttúruna. Við höfum þennan frum- kraft í okkur. Listamenn á Íslandi eru líka forvitnir og þurfa að vera opnir og leitandi. Við þurfum að sækja hluti út fyrir þessa eyju og það opnar líka fyrir einhvern kraft. Við sitjum ekki hérna og fáum allt í fangið. Íslenskir nemendur þykja leitandi og skapandi.“ Sveinbjörg tók við sem fagstjóri brautarinnar í haust. Hún er bæði menntaður dansari og danshöfundur. Hún er líka formaður Samtaka um dans- hús og einn af stofnendum Reykjavík Dance Festival þannig að hún er búin að lifa og hrærast í dansheiminum í langan tíma. Hún er ennfremur reyndur kenn- ari og kenndi lengi við Listdansskóla Ís- lands og var yfir nútímadansbrautinni um tíma. Hún hlakkar til að taka á móti nýjum nemendum í haust og bendir í leiðinni á inntökuskilyrðin. „Það er æskilegt að vera með grunn í listdansi og helst út- skrifaður frá listdansbrautum en við skoðum líka umsækjendur með góðan bakgrunn í dansi. Það eru alltaf einhverjir hæfileikaríkir dansarar sem koma úr öðrum greinum eins og samkvæmisdönsum eða fim- leikum,“ segir hún en umsækjendur þurfa líka að vera með stúdentspróf eða hafa að minnsta kosti lokið 105 ein- ingum á framhaldsskólastigi. Breikdansari „óvart“ í inntökupróf Núna er enginn strákur á dansbraut skólans. Ætlið þið að gera eitthvað sér- stakt til að laða þá að? „Mig langar helst til að þeir strákar sem hafi áhuga kynni sér betur hvað við erum að gera hérna. Þetta er svo fjölbreytilegt nám. Það hentar einstaklingum sem eru sterkir og skapandi og færir í allri hreyfigetu. Við erum ekki endilega að leita eftir strákum í sokkabuxum heldur líka breiðari hóp dansara. Brautin er samtímadansbraut. Það eru alls staðar fordæmi fyrir því að strákar hafi farið seint í dansinn og náð langt. Ég er nýkomin frá Finnlandi þar sem ég var að kenna. Ég var með dreng í tíma sem var virkilega hæfileikaríkur en bakgrunnur hans var úr breikdansi. Þetta var langsterkasti nemandinn. Hann rataði „óvart“ í inntökupróf en núna er hann að fá tilboð víða að og get- ur valið milli starfa.“ Úr námskeiði sem heitir Skapandi ferli III/ Dansleikhús. Þessi mynd er tekin í tæknitíma. Annars árs nemendur á samtímadansbraut. Ljósmyndir/Óskar Hallgrímsson Sveinbjörg Þórhallsdóttir tók við stöðu fagstjóra dansbrautar Listaháskóla Íslands í haust. Morgunblaðið/Árni SæbergEkki bara fyrir stráka í sokkabuxum

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.