SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Blaðsíða 31
4. mars 2012 31 Fáir íþróttamenn slógujafnrækilega í gegn ávetrarólympíuleik-unum í Calgary 1988 og breski skíðastökkvarinn Eddie „The Eagle“ Edwards. Ekki voru það þó hæfileikar breska Arnarins sem heims- byggðin stóð á öndinni yfir, eins og gjarnan á ólympíu- leikum, heldur þvert á móti skortur á þeim. Óhætt er að fullyrða að Örninn sé lélegasti skíðastökkvari sem sögur fara af – alltént í alþjóðlegri keppni. Hann varð langsíð- astur bæði í keppni á 70 og 90 metra palli en vann eigi að síður hug og hjörtu áhorfenda. Réð þar mestu óborganlegur stökkstíll og alþýðlegt viðmót kappans sem stökk jafnan með hnausþykk gleraugu vegna sjóndepurðar. Örninn gerði sér líka lítið fyrir og setti Bretlandsmet, 73,5 metra. Gullverðlaunahaf- inn, Matti Nykänen frá Finn- landi, stökk lengst 120,5 metra. Lét drauminn rætast Michael Edwards fæddist í Cheltenham á Englandi árið 1963 og kom fyrst fram á sjón- arsviðið sem skíðamaður í alpagreinum – prýðilega fram- bærilegur í þokkabót. Herslu- muninn vantaði þó hjá honum til að komast í breska lands- liðið fyrir ólympíuleikana í Sa- rajevo 1984. Sama var upp á teningnum fjórum árum síðar enda þótt Örninn hefði á þeim tíma flutt búferlum til Lake Placid í Bandaríkjunum til að freista þess að styrkja stöðu sína. Til að láta draum sinn um að keppa á ólympíuleikum rætast skipti Örninn því um grein, sneri sér að skíðastökki. Ástæðan var tvíþætt: Annars vegar var samkeppnin um að komast í breska landsliðið engin og hins vegar var ól- ympíulágmarkið mun lægra en í alpagreinunum. Örninn Eddie flaug fyrir vikið inn á leikana. Ævintýrið borgaði kappinn úr eigin vasa. Enda þótt áhorfendur væru allir með tölu með hjartað í brókinni þegar Örninn lét sig „svífa“ fram af pallinum í Calgary lenti hann iðulega heilu og höldnu. Svo skrýtinn var stíllinn að sú saga breiddist fljótt út að Örninn væri log- andi lofthræddur. Þann mis- skilning leiðrétti hann löngu síðar í viðtali við breska blaðið The Guardian. „Þegar mest var stökk ég sextíu sinnum á dag. Það myndi ekki nokkur lofthræddur maður gera.“ En var hann hræddur við stökkið sjálft? „Logandi hræddur. Hvert stökk hefði getað orðið mitt síðasta.“ Laugaði sig í vinsældum Örninn laugaði sig í vinsældum í kjölfar leikanna og mætti í spjallþætti í sjónvarpi vítt og breitt um heiminn, meðal annars í The Tonight Show í Bandaríkjunum. Féll þessi frami skíðastökkshreyfingunni illa í geð enda menn sann- færðir um að Örninn væri að gera gys að greininni. Í kjöl- farið voru inntökuskilyrði á mót snarhert og ólympíu- lágmarkið hækkað verulega. Sú ráðstöfun gerði það að verkum að Örninn komst hvorki á ólympíuleikana í Al- bertville 1992, Lillehammer 1994 né Nagano 1998, þrátt fyrir einlæga viðleitni í þá veru. Hin seinni ár hefur Örninn Eddie komið víða við, meðal annars gefið út tvö lög í Finn- landi, sungin á finnsku enda þótt hann tali ekki stakt orð í tungumálinu. Slógu þau bæði í gegn. Þá hefur kappinn sent frá sér bók um skíðastökksferil sinn og notið vinsælda sem þáttastjórnandi og hjá auglýs- endum í sjónvarpi. Árið 1992 varð Örninn gjaldþrota og hóf í kjölfarið laganám sem hann lauk frá háskóla í Leicester. Kvikmynd um kappann er nú í burðarliðnum, þar sem Rupert Grint, sem kunnur er fyrir leik sinn í Harry Potter- myndunum, mun fara með hlutverk Arnarins. Spurður um það val kvaðst Örninn sáttur, betra hefði þó verið að fá Tom Cruise eða Brad Pitt í verkið! orri@mbl.is Hvað varð um ... Eddie „Örninn“ Edwards á „flugi“ yfir Calgary 1988. Örninn á blaðamannafundi á ól- ympíuleikunum 1988. AFP Örninn vildi fá Brad Pitt til að leika sig í kvikmynd. Örninn Eddie? Styrkir úr Pokasjóði Stjórn Pokasjóðs hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2012. Frestur til að sækja um styrk úr Pokasjóði rennur út 18. mars nk. Umsóknir skulu fylltar út á www.pokasjodur.is en þar eru allar upplýsingar um sjóðinn, fyrirkomulag og styrki. Í ár hefur verið ákveðið að ein- skorða styrki við tvö málefni, mannúðarmál og umhverfismál. Bæði einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki úr sjóðnum. UMSÓKNARF RESTUR RENNUR ÚT 1 8. MARS

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.