SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Qupperneq 31
4. mars 2012 31
Fáir íþróttamenn slógujafnrækilega í gegn ávetrarólympíuleik-unum í Calgary 1988
og breski skíðastökkvarinn
Eddie „The Eagle“ Edwards.
Ekki voru það þó hæfileikar
breska Arnarins sem heims-
byggðin stóð á öndinni yfir,
eins og gjarnan á ólympíu-
leikum, heldur þvert á móti
skortur á þeim. Óhætt er að
fullyrða að Örninn sé lélegasti
skíðastökkvari sem sögur fara
af – alltént í alþjóðlegri
keppni. Hann varð langsíð-
astur bæði í keppni á 70 og 90
metra palli en vann eigi að
síður hug og hjörtu áhorfenda.
Réð þar mestu óborganlegur
stökkstíll og alþýðlegt viðmót
kappans sem stökk jafnan með
hnausþykk gleraugu vegna
sjóndepurðar.
Örninn gerði sér líka lítið
fyrir og setti Bretlandsmet,
73,5 metra. Gullverðlaunahaf-
inn, Matti Nykänen frá Finn-
landi, stökk lengst 120,5
metra.
Lét drauminn rætast
Michael Edwards fæddist í
Cheltenham á Englandi árið
1963 og kom fyrst fram á sjón-
arsviðið sem skíðamaður í
alpagreinum – prýðilega fram-
bærilegur í þokkabót. Herslu-
muninn vantaði þó hjá honum
til að komast í breska lands-
liðið fyrir ólympíuleikana í Sa-
rajevo 1984. Sama var upp á
teningnum fjórum árum síðar
enda þótt Örninn hefði á þeim
tíma flutt búferlum til Lake
Placid í Bandaríkjunum til að
freista þess að styrkja stöðu
sína. Til að láta draum sinn um
að keppa á ólympíuleikum
rætast skipti Örninn því um
grein, sneri sér að skíðastökki.
Ástæðan var tvíþætt: Annars
vegar var samkeppnin um að
komast í breska landsliðið
engin og hins vegar var ól-
ympíulágmarkið mun lægra en
í alpagreinunum. Örninn Eddie
flaug fyrir vikið inn á leikana.
Ævintýrið borgaði kappinn úr
eigin vasa.
Enda þótt áhorfendur væru
allir með tölu með hjartað í
brókinni þegar Örninn lét sig
„svífa“ fram af pallinum í
Calgary lenti hann iðulega
heilu og höldnu. Svo skrýtinn
var stíllinn að sú saga breiddist
fljótt út að Örninn væri log-
andi lofthræddur. Þann mis-
skilning leiðrétti hann löngu
síðar í viðtali við breska blaðið
The Guardian. „Þegar mest
var stökk ég sextíu sinnum á
dag. Það myndi ekki nokkur
lofthræddur maður gera.“
En var hann hræddur við
stökkið sjálft?
„Logandi hræddur. Hvert
stökk hefði getað orðið mitt
síðasta.“
Laugaði sig í vinsældum
Örninn laugaði sig í vinsældum
í kjölfar leikanna og mætti í
spjallþætti í sjónvarpi vítt og
breitt um heiminn, meðal
annars í The Tonight Show í
Bandaríkjunum. Féll þessi
frami skíðastökkshreyfingunni
illa í geð enda menn sann-
færðir um að Örninn væri að
gera gys að greininni. Í kjöl-
farið voru inntökuskilyrði á
mót snarhert og ólympíu-
lágmarkið hækkað verulega.
Sú ráðstöfun gerði það að
verkum að Örninn komst
hvorki á ólympíuleikana í Al-
bertville 1992, Lillehammer
1994 né Nagano 1998, þrátt
fyrir einlæga viðleitni í þá
veru.
Hin seinni ár hefur Örninn
Eddie komið víða við, meðal
annars gefið út tvö lög í Finn-
landi, sungin á finnsku enda
þótt hann tali ekki stakt orð í
tungumálinu. Slógu þau bæði í
gegn.
Þá hefur kappinn sent frá
sér bók um skíðastökksferil
sinn og notið vinsælda sem
þáttastjórnandi og hjá auglýs-
endum í sjónvarpi. Árið 1992
varð Örninn gjaldþrota og hóf
í kjölfarið laganám sem hann
lauk frá háskóla í Leicester.
Kvikmynd um kappann er
nú í burðarliðnum, þar sem
Rupert Grint, sem kunnur er
fyrir leik sinn í Harry Potter-
myndunum, mun fara með
hlutverk Arnarins. Spurður um
það val kvaðst Örninn sáttur,
betra hefði þó verið að fá Tom
Cruise eða Brad Pitt í verkið!
orri@mbl.is
Hvað varð um ...
Eddie „Örninn“ Edwards á „flugi“ yfir Calgary 1988.
Örninn á blaðamannafundi á ól-
ympíuleikunum 1988.
AFP
Örninn vildi fá Brad Pitt til að leika sig í kvikmynd.
Örninn Eddie?
Styrkir úr
Pokasjóði
Stjórn Pokasjóðs hefur ákveðið að
auglýsa eftir umsóknum um styrki
fyrir árið 2012.
Frestur til að sækja um styrk úr
Pokasjóði rennur út 18. mars nk.
Umsóknir skulu fylltar út á
www.pokasjodur.is en þar eru
allar upplýsingar um sjóðinn,
fyrirkomulag og styrki.
Í ár hefur verið ákveðið að ein-
skorða styrki við tvö málefni,
mannúðarmál og umhverfismál.
Bæði einstaklingar og félagasamtök
geta sótt um styrki úr sjóðnum.
UMSÓKNARF
RESTUR
RENNUR ÚT 1
8. MARS