SunnudagsMogginn - 04.03.2012, Side 6
Franski sjarmörinn segist ekki
munu breytast vegna Óskars
Dujardins var í gamanþáttaröðinni Un gars, une
fille sem var gríðarlega vinsæl 1993 til 2003 og
þegar þar var komið sögu stóðu honum margar
dyr opnar í kvikmyndaheiminum. Hann hefur
verið vinsælasti gamanleikari Frakklands síðustu
ár, myndir hans hlotið bestu aðsóknina og Duj-
ardin kallaður hinn nýi Belmondo. Sá gam-
alkunni leikari, Jean-Paul Belmondo, er mörgum
að góðu kunnur.
Frakkinn Maurice Chevalier var tilnefndur til
Óskars fyrir bestan leik í aðalhlutverki 1929 og
1930, Charles Boyer 1961 og Gérard Depardieu
1990. Franskri dömu hefur einu sinni hlotnast
Óskarsstytta sem sú besta í aðalhlutverki; Marion
Cotillard þegar hún túlkaði söngkonuna Edith Pi-
af í La Vie en Rose árið 2007. Ógleymanleg
frammistaða það. Áður höfðu Claude Colbert
(1934) og Simone Signoret (1959) verið tilnefndar.
„Ég lét mig ekki einu sinni dreyma um þennan
starfsferil þegar ég var lítill. Þetta er í raun fárán-
legt en samt gaman að sjá hvað lífið hefur upp á
að bjóða. Ég hlýt að vera fæddur undir heilla-
stjörnu,“ sagði Dujardin nýlega. Leikarinn, sem
er 39 ára, segir Óskarsverðlaunin þó ekki munu
breyta sér hætishót. „Þau munu veita mér aukið
frelsi en eðlisávísunin breytist ekki. Mér líður vel
og þess vegna er ekki ástæða til þess að breyta
neinu.“
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Dujardin gengur til móts við franska blaðamenn á
Charles de Gaulle flugvelli í París á þriðjudaginn var.
AP
Kvikmyndagerðarlistin varð til í Frakk-landi undir lok 19. aldar en ekki leið álöngu þar til Bandaríkjamenn náðuheimsyfirráðum í greininni. Þeir eru
reyndar ekki stórtækastir í framleiðslu lengur en
horft er á bíómyndir ættaðar úr Hollywood og
nágrenni í hverju krummaskuði í heiminum og
hvarvetna um að ræða þær vinsælustu, eins og
Íslendingum er kunnugt.
Í ljósi sögunnar var það því stór stund og gladdi
Fransmenn mjög þegar Listamaðurinn, The Art-
ist, fékk Óskarsverðlaun sem besta mynd ársins
og Jean Dujardin Óskar fyrir bestan leik í aðaðal-
hlutverki, fyrstur franskra karla, fyrir frammi-
stöðu í þessari frábæru, svart-hvítu og nánast
þöglu mynd, sem hefur sópað að sér verðlaunum.
Velgengni Listamannsins er stór sigur fyrir
franska menningu, að
mati þarlendra.
Kvikmyndagerð
hefur lengi staðið í blóma
í Frakklandi, verk þaðan verið
kjörin best í flokki erlendra og heim-
ildamynda, en aldrei í eftirsóttasta flokknum.
„Þetta er eins og að vinna heimsmeistaramótið í
fótbolta,“ sagði Dujardin eftir að hann tók við
viðurkenningu sinni, að rifna úr stolti.
Dujardin ólst upp í Rueil Malmaison, sveitarfé-
lagi í vesturhluta Parísar þar sem nú búa um 80
þúsund manns. Að loknum framhaldsskóla hóf
hann störf í byggingarfyrirtæki foreldra sinna og
það var ekki fyrr en meðan á herskyldu stóð að
leiklistin náði tökum á Dujardin. Hann átti auð-
velt með að bregða sér í ýmissa kvikinda líki,
samdi einleiki og tróð upp í hermannaskálunum.
Eftir dvölina í hernum hélt hann uppteknum
hætti, kom fram á börum og kabarettum í höf-
uðborginni og gekk til liðs við gamanflokkinn
Nous C Nous sem vakti þjóðarathygli í hæfi-
leikakeppni í sjónvarpi. Fyrsta stóra hlutverk
Bestur! Jean Dujardin sleppti fram af sér beislinu í fagnaðarlátunum.
AP
Eins og að
vinna HM í
fótbolta
6 4. mars 2012
Hundurinn Uggie, sem segja má
að hafi stolið senunni í Lista-
manninum (The Artist), er hætt-
ur leik þá hæst hann stendur, af
heilsufarsástæðum.
Uggie er 10 ára Jack Russell-
terrier. Hann hefur leikið í fimm
kvikmyndum, komið fram í aug-
lýsingum og sýnt listir sínar á
skemmtunum víða í Bandaríkj-
unum og Suður-Ameríku.
Hundurinn var við hestaheilsu
þar til fyrir nokkrum mánuðum er
í ljós kom að flókinn taugasjúk-
dómur herjaði á hann. Veikindin
lýsa sér í skjálfta annað veifið en
eigandi hans og þjálfari, Omar
von Muller, segir að hundinum
líði reyndar best þegar hann hef-
ur nóg fyrir stafni. Sjúkdómurinn
ágerist þegar Uggie geti slakað
á, en engu að síður ákvað von
Muller að draga hund sinn úr
sviðsljósinu og tryggja honum
áhyggjulaust ævikvöld.
Von Muller segir álagið í hund
sinn hafa verið mjög mikið við
tökur á Listamanninum, hann
hafi ekki látið veikindin hafa
áhrif á sig en nú sé komið nóg.
Skv. nýjustu fregnum virðist þó
ekki vera loku fyrir það skotið að
Uggie rétti fram hjálparloppu við
gerð eins og einnar myndar í við-
bót, en aðeins í mjög litlu hlut-
verki.
Uggie sestur í
helgan stein
Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar leikararnir Jean Dujardin og Uggie
hittust á ný á Óskarsverðlaunahátíðinni í Hollywood um síðustu helgi.
AP
Raðhús í Fossvoginum. Húsið er einstaklega vel staðsett,
næstneðst í dalnum, þar sem veðursæld er sérstaklega mikil.
Húsið var byggt árið 1971 og teiknað af Jóni Kaldal. Húsinu
hefur verið vel við haldið. V. 56,9 m. 1252
OPIÐ HÚS Á MÁNUDAG FRÁ KL. 17:00-18:00
LJÓSALAND 15 - FALLEGT HÚS
OPIÐ
HÚS