SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Blaðsíða 10
10 19. ágúst 2012 Landslag yrði lítilsvirði, ef það héti ekki neitt,“kvað Tómas Guðmundsson. Kvæðið ber það meðsér að það hafi verið ort meira í gamni en alvöru.En öllu gamni fylgir þó nokkur alvara. Og vissu- lega er nokkuð til í því að landslagið verður skemmtilegra á að horfa og njóta ef maður þekkir til þess, örnefna, jarð- fræðinnar og sögunnar. Fljótin í utanverðum Skagafirði hafa mér alltaf þótt fögur sveit en því áhugaverðari hefur mér fundist hún, þeim mun meira sem ég hef fengið um þessa sveit að vita, sögu henn- ar, mannlíf og menningu, bæði nú og fyrr á tíð. Það var hins vegar ekki fyrr en nýlega að ég gerði mér grein fyrir því að í Fljótum, þar sem nú búa rétt um 80 manns, bjuggu ekki fyrir svo ýkja löngu hátt í 1.000 manns; að þaðan var stunduð svo öflug útgerð að ástæða þótti til að stofna sjómannaskóla í Haganesvík. Að vísu mun hann ekki hafa verið lengi við lýði, aðeins nokkur ár í byrjun níunda áratugar nítjándu aldar. En sjómannaskóli var það engu að síður. Og Fljótin eiga sína flugsögu því á gullaldarárum síldarinnar voru leitarflugvélar gerðar út frá Lambanesi í Austur-Fljótum. Ekkert af þessu vissi ég. Ég hafði heldur ekki gert mér grein fyrir því að landnámsmað- urinn Hrafna-Flóki hefði sest að í Fljótum og að Flókadalur í Fljótum bæri hans nafn en ekki einhvers annars Flóka. Allt þetta grófst ég fyrir um þeg- ar ég var beðinn um að afhjúpa minnisvarða um Hrafna-Flóka á Ysta-Mói í Fljótum nýlega. Sannast sagna kom ég í fyrstu af fjöllum því Hrafna-Flóka hafði ég alltaf tengt Vatnsfirðinum og Barðaströnd. Ég hef það fyrir satt að þaðan hafi verið hringt í Fljótin og spurt hvort til stæði að hafa Hrafna-Flóka af Vestfirðingum, þegar vitnaðist um minnismerkið sem til stæði að af- hjúpa í Fljótum! Og þannig er það í vitund flestra Íslend- inga, enda lærðum við það í æsku að Hrafna-Flóki hefði gefið landi okkar nafn eftir að hann hafði verið í Vatnsfirði sumarlangt, veitt þar vel og haft allt til alls þar til vetraði og firðir fylltust af ís. Hafi hann þá kallað landið Ísland og horfið á braut. En fæstum var kunnugt um að hann sneri aftur nokkru síðar og settist að í Fljótum. Í Hauksbók Landnámu segir: „Flóki Vilgerðarson, víkingur mikill, fór af Rogalandi í Noregi að leita lands þess er þeir höfðu áður fundið Naddoddur víkingur og Garðar Svavarsson hinn sænski. Áður hann sigldi blótaði hann hrafna þrjá, að þeir skyldu vísa sér leið. Þeir hlóðu þar varða er blótið hafði verið á mörkum Hörðalands og Rogalands og kölluðu Flókavarða. Flóki sigldi fyrst til Hjaltlands en tók þaðan stefnu til Snælands sem var nafnið er Naddoddur hafði gef- ið. Þegar hann sleppti fyrsta hrafninum flaug sá aftur um stafn til baka. Annar flaug upp en settist aftur á skipið. Er hann sleppti hinum þriðja flaug hann fram um stafn og vís- aði svo á landið. Þeir komu austan að Horni og sigldu vest- ur með ströndinni, fyrir Faxaflóa og Snæfellsnes og tóku land í Vatnsfirði á Barðaströnd og höfðu þar vetursetu. Fjörðurinn var fullur af veiðiskap og gættu þeir þess ekki að afla heyja um sumarið. Um veturinn féll allt kvikfé þeirra. Um vorið gekk Flóki upp á fjall eitt og sá þá fjörð fullan af hafísum og gaf landinu nafnið Ísland. Þeir sigldu um sum- arið í brott en urðu síðbúnir, komust ekki fyrir Reykjanes og höfðu vetrardvöl við Faxaflóa. Sigldu sumarið eftir til Noregs.“ En Flóki fór aftur til Íslands og nam þá land í Fljótum. Svo segir Sturlubók Landnámu þar sem fjallað er um land- nám í Skagafirði: „Flóki son Vilgerðar Hörða-Káradóttur fór til Íslands og nam Flókadal milli Flókadalsár og Reykj- arhóls; hann bjó á Mói. Hann átti Gró systur Þórðar frá Höfða. Þeirra son var Oddleifur stafur er bjó á Stafshóli.“ En að titli þessa pistils: Tilefnið. Minnisvarðar á borð við þann sem afhjúpaður var í Fljótum um Hrafna-Flóka eru okkur tilefni til að rifja upp sögulega arfleifð. Og þegar áhugi okkar er vakinn á sögu og mannlífi rekur sig eitt af öðru. Ferðalagið verður skemmtilegra og meira gefandi. Við stöndum þess vegna í þakkarskuld við það fólk sem sýnir það framtak að reisa sögunni minnisvarða og skapa okkur þannig tilefni til að víkka sjóndeildarhringinn. Því fleiri til- efni sem við fáum til að vekja okkur til umhugsunar um land okkar og sögu, þeim mun áhugaverðara mun okkur þykja hvort tveggja, landið og sagan. Tilefnið ’ Og þeg- ar áhugi okkar er vakinn á sögu og mannlífi rekur sig eitt af öðru. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Halldór Blöndal vitn-aði nýlega í Vísu-horni sínu hér íblaðinu í stökuna: Upp er skorið, engu sáð, allt er í varga ginum. Þeir, sem aldrei þekktu ráð, þeir eiga að bjarga hinum. Hafði Halldór vísuna eftir Valtý Stefánssyni ritstjóra, sem vitnaði í hana í Lesbók Morg- unblaðsins 20. nóvember 1927 í grein um tíu ára afmæli bylt- ingar bolsévíka. Sagði Valtýr, að stakan hefði hrotið úr munni hagyrðings, eftir að bera tók á bolsévíkum á Akureyri. Brynjólfur Steingrímsson sagði þá í tölvuskeyti til Hall- dórs, sem birtist í Vísnahorninu 30. júlí 2012, að vísan væri eftir afa sinn, Egil Jónasson á Húsa- vík, og Friðrik Jónsson póst (sem var raunar á Helgastöðum, ekki Halldórsstöðum, eins og Brynjólfur segir). Vísan hefði ekki verið tengd stjórnmálabar- áttu. En Valtýr Stefánsson hafði rétt fyrir sér um stökuna. Ég rannsakaði faðerni hennar fyrir bók mína 2010, Kjarna málsins. Fleyg orð á íslensku. Til er sam- tímaheimild um hana. Í grein eftir Pál Árdal í Degi 30. október 1924 segir, að þessi staka sé eftir Sigmund Sigurðsson, úrsmið á Akureyri. Hún sé ekki eftir Pál sjálfan eða aðra, sem hún var kennd. Og tilefnið var augljóst. Snemma árs 1924 fluttust þrír ungir áróðursmenn bolsévíka til Íslands, þeir Einar Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason og Ársæll Sigurðsson. Lét Einar þegar mikið að sér kveða á Akureyri, svo að Sig- mundi úrsmiði þótti nóg um og kastaði stöku sinni fram, og er hún enn í fullu gildi. Athugasemdir og leiðrétt- ingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Upp er skorið, engu sáð Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Fullkomin netverslun með hljóðfæri og hljóðbúnað Nýr og glæsilegur vefur www.hljodfaerahusid.is Brimbrettakeppnin 2012 Billa- bong Pro var haldin á Tahiti í Frönsku-Pólýnesíu í Suður- Kyrrahafi á dögunum. Margir þekktir brimbrettakappar létu þar ljós sitt skína og mátti sjá magnaðar kúnstir fram- kvæmdar í tærum sjónum. Á ljósmyndinni til vinstri má sjá brasilíska kappann Gabriel Medina inni í stórri öldu undan ströndum eyjunnar. Á myndinni til hægri má svo sjá suðurafríska brimbretta- kappann Jordy Smith fram- kvæma svipaðar kúnstir. Mikið hefur verið rætt um ör- yggi brimbrettakappa á und- anförnum dögum en hákarl olli miklum usla fyrir skemmstu og varð meðal annars manni að bana. Ekkert hefur þó frést af slíkum harmleik frá keppninni í Kyrrahafinu. AFP Veröld Brimbrettakeppni í Frönsku-Pólýnesíu

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.