SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Blaðsíða 41
19. ágúst 2012 41
LÁRÉTT
1. Flott dönsk móðir ber samt með sér eiturlyf. (6)
4. Bú! Hörð hittir þybbinn (7)
7. Þing um innihald fræða og lauslega festingu. (7)
8. Annars flokks rokk er næstum olía á grænmeti. (8)
9. Flott stelpa í fiski. (5)
11. Grilli loks einhvern veginn þegar hvolfir. (10)
12. Matur fyrir sönghóp er villulaus. (9)
13. Afboð vegna mælis í veislu. (10)
15. Kristinn maður sem er alltaf í vinnu hjá enskumæl-
andi. (3)
17. Brjálaður skoði matsverð. (7)
20. Tölvutakki úr mó er líkan. (5)
22. Auk þess ennþá framkvæmir. (9)
24. Angóraull veldur söngli. (4)
25. Fjarkinn inniheldur útjaðarinn. (7)
26. Afkomandi málms hittir þá sem eru með pinna. (9)
28. Sá sem ber á er eftirtektarverður. (8)
31. Undrandi fær Rafna A. til að snúa sér við og sjá ný-
nefndan. (12)
32. Íslenskur gosdrykkur Artúrs reynist vera annars kon-
ar vökvi. (7)
33. Árni fær snarlið til að vera á reiki hjá hernum. (11)
34. Tvíátta ýkjur verða ekki eins flóknar í betli. (7)
LÓÐRÉTT
1. Þokkaleg íbúð í fjölbýli er af venjulegri stærð. (8)
2. Skrika fótur við lærdóm um mótstöðu. (11)
3. Gribban fær bólu aftur. (5)
4. Samborgari án maga kímir. (6)
5. Stígur blekktur er skóaður. (11)
6. Frísk hittir guð í lífæri. (4)
7. Í bæn segja takk fyrir ól. (11)
10. Horfa á sögn í tæki sem brýtur ljós. (6)
12. Óhreyfð samstæða hjá því sem fékk ekki að fara. (8)
14. Talað um lækkuð h og fljótandi. (5)
16. Bjarndýr hálfgræði með hjálp. (9)
18. Með hálfgerðan varahlekk Unnar birtist og þekktar
(11)
19. Hopp í helvíti er talið íþróttalegt afrek. (11)
21. Bón Arngríms riðar næstum því aftur út af heilum.
(10)
23. Ek með tap og rykið til hjónanna. (9)
27. Ildýr eða rugl sýnir meðfæddar tilhneigingar. (8)
29. Eyjólfur Konráð Jónsson einfaldlega fær með Bjarna
kjöt. (6)
30. Nást að finna í hestakastaníu. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir kross-
gátu vikunnar. Senda skal
þátttökuseðilinn í umslagi
merktu: Krossgáta Morgun-
blaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 19.
ágúst rennur út á hádegi 24.
ágúst. Nafn vinningshafans
birtist í Sunnudagsmogganum 16. ágúst. Vinnings-
hafi krossgátunnar 12. ágúst er Valdís Björgvins-
dóttir, Lækjargötu 32, Hafnarfirði. Hún hlýtur í verð-
laun bókina Dauði næturgalans eftir Kaaberbøl og
Friis. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Serbneski stórmeistarinn Sve-
tozar Gligoric, sem lést þann 14.
ágúst sl. 89 ára að aldri, var á
tímum ríkjasambandsins Júgó-
slavíu, sem Jósep Tito hélt sam-
an, þekktasti og virtasti skák-
maður Júgóslava. Áður en hann
haslaði sér völl á skáksviðinu
barðist hann í Svarfjallalandi
gegn ítölsku innrásarliði á dög-
um seinni heimsstyrjaldar.
Hafði sú reynsla mikil áhrif á
hann. Hér á landi klingdi nafn
Gligoric alltaf annað veifið í eyr-
um manna, frá dögum milli-
svæðamótsins í Portoroz og sex
árum síðar þegar fyrsta Reykja-
víkurskákmótið fór fram. Hann
starfaði einnig sem blaðamaður
og rithöfundur og var stundum í
þeirri óvenjulegu aðstöðu að
fjalla um ýmsa viðburði og vera
jafnframt þátttakandi í þeim
sjálfur. Hann var skákskýrandi
tímaritsins Skákar á meðan
„einvígi aldarinnar“ stóð, og
ritaði vinsæla bók um einvígið. Í
viðtali við Fischer náði Gligoric
að veiða upp úr hinum nýbak-
aða heimsmeistara upplýsingar
um það hvernig hann hefði
undirbúið sig fyrir lokaskákina.
Árið 1978 buðu Gligoric og
Friðrik sig fram í kjöri til forseta
FIDE. Sá þriðji var Rafael Men-
des frá Puerto Rico en kosningin
fór fram með tveim umferðum.
Rafael Mendes fékk flest at-
kvæði í fyrri umferð en Friðrik
fékk einu atkvæði meira en
Gligoric og var kjörinn forseti
FIDE eftir seinni unmferðina. Á
sextíu ára afmælismóti Friðriks í
Þjóðabókhlöðunni var Gligoric
mættur ásamt Smyslov, og Lar-
sen og ýmsum fleiri stór-
meisturum.
Gligoric vann ótal mót um
dagana og var þrisvar í hópi
áskorenda. Þegar hugað er að
skákum hans koma margir
snjallir sigrar yfir Tigran Pet-
rosjan strax upp í hugann, einn-
ig fjórir sigrar yfir Bobby Fischer
og svo mætti lengi telja. Hann
var alla tíð mikill byrj-
anasérfræðingur og lengi var
kóngsindverska vörnin í miklu
uppáhaldi hjá honum:
Amsterdam 1970:
Vlastimil Hort – Svetozar
Gligoric
Kóngsindversk vörn
1.d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
e4 d6 5. f3 O-O 6. Be3 b6 7. Bd3
a6 8. Rge2 c5
Samisch-afbrigðið gegn
kóngsindversu vörninni sem
hefst með 5. f3 gerði Gligoric oft
gramt í geði og leiðin sem hann
valdi í þessar skák var aldrei tal-
in góð en dugði samt!
9. e5 Rfd7 10. exd6 exd6 11.
Dd2 Rc6 12. Be4! Bb7 13. O-O-O
Rf6 14. Bxc6 Bxc6 15. Bg5 Hc8
16. d5 Bd7 17. Rg3 He8!
Frumkvæðið er kirfilega í
höndum hvíts en hér fæddist
hugmynd að skiptamunsfórn.
18. Df4 He5 19. Rce4
Betra var 19. h4 h5 og enn er
skiptamunsfórn á g5 inni í
myndinni.
19. … Hxg5! 20. Dxg5 b5! 21.
Rxd6 Hb8
Aðstaða hvíts er býsna vara-
söm þrátt fyrir liðsmuninn.
Hort var alla tíð mikill varn-
arjaxl og taldi sig geta hrundið
atlögu Gligoric.
22. Rge4 h6 23. De3 Rxe4 24.
Rxe4 bxc4 25. Hd2 Da5 26. Kb1
c3 27. Hc2 Bd4 28. De1 Da3 29.
Rxc3 Bf5 30. Ka1
Biskupar svarts eru ógnandi
en varnir hvíts virðast traustar.
En Gligric átti tromp upp í
hendinni.
( STÖÐUMYND )
30. … Hxb2 31. Hxb2 Bxc3 32.
Dc1 c4! 33. d6 Bf6 34. Hd1 c3 35.
Hc2!
Ekki 35. Hb8+ Kg7 36. Dxa3
c2+! og vinnur.
35. … Da4 36. d7 Bxd7 37. g4?
Og hér var betri vörn fólgin
37. Hxd7 Dxd7 38. g4. Sú staða
er sennilega jafntefli.
37. … Be6 38. He1 Bb3! 39.
Hee2 Bxa2!
Gerir út um taflið, eftir 40.
Hxa2 c2+ 41. Db2 kemur 41. ….
c1(D) mát.
40. Dxh6 Bc4 41. Kb1 Be7
- og Hort gafst upp.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Svetozar Gligoric
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta