SunnudagsMogginn - 19.08.2012, Blaðsíða 20
20 19. ágúst 2012
Samkvæmt ferðaþjónustuaðilumhefur verið mikil sprengja íferðaþjónustu í Reykjavík. Til aðmynda eru nánast öll herbergi í
Reykjavík bókuð. Varla er hægt að fá
gistingu nema viðkomandi aðili hafi
bókað gistinguna með miklum fyrirvara.
Oft hafa ferðaþjónustuaðilar bókað her-
bergi fyrir ferðamenn í útnárum höfuð-
borgarsvæðisins og margoft hafa gisti-
heimili þurft að vísa gestum á dyr.
Samkvæmt þeim er Reykjavík þó oftast
aðeins millistopp ferðamanna sem sækj-
ast í þá óspilltu náttúru sem óbyggðir
landsins hafa upp á að bjóða. Ýmislegt
virðist þó heilla við Reykjavík. Til dæmis
eru veitingahúsin og hvalaskoðunarbát-
arnir við gömlu bryggjuna að sögn einkar
vinsæl auk þess sem næturlíf borg-
arinnar heillar margt ungmennið.
Óánægja með nýbyggingar við sjóinn
Þýsku hjónin Antje og Thomas eru stödd
hér á landi til að skoða landið auk þess
sem Thomas hyggst taka þátt í Reykja-
víkurmaraþoninu. Það er ýmislegt varð-
andi borgina sem mætti betur fara að
þeirra sögn. „Við verðum hérna í tíu
daga. Við munum dvelja í Reykjavík en
fara í ferðir út frá borginni. Hún er höf-
uðborg Íslands og hér er hægt að gera góð
kaup í góðum verslunum. Ég kann þó
betur að meta náttúruna. Þetta er samt
áhugaverð borg, mjög alþjóðleg,“ segir
Antje um höfuðborgina.
„Fyrsta daginn fórum við í gönguferð
meðfram sjónum, Faxaflóanum, og mér
þykir miður hvernig háhýsin hafa verið
byggð meðfram ströndinni. Það liggur
við að þetta hafi verið það fyrsta sem ég
nefndi við eiginmann minn þegar við
komum hingað. Ég var í Reykjavík fyrir
átta árum og þegar ég sá þetta þegar ég
kom núna þá blöskraði mér. Þegar ég
hugsa til Óslóar, Hamborgar eða nánast
hvaða borgar sem er, þá er alls staðar
verið að reyna að færa borgina nær sjón-
um eða því vatni sem þar er að finna. Það
er reynt að viðhalda fallegri bygging-
armenningu hvers staðar fyrir sig, hér
hefur það farið úrskeiðis,“ segir Antje
meðal annars um Skuggahverfið og
Hörpuna.
„Það liggur við að það sé aðeins eitt
gamalt hús eftir við strandlengjuna,“
segir Thomas og bendir í átt að Höfða
sem er umvafið nýrri byggingum.
Íslendingar selja sig ódýrt
„Okkur hefur verið sagt að túrismi sé
mjög mikilvægur á Íslandi. Okkur, og
nær öllum ferðamönnum held ég, líkar
hinsvegar mun betur við gömlu og fal-
legu húsin en þessi glerferlíki,“ bætir
Antje við.
„Náttúran samt er yndisleg. Ég hef
fylgst mikið með Íslandi síðustu átta ár
og lesið um verksmiðjur og lón sem hafa
sprottið upp og Kínverja sem vilja kaupa
landið. Í morgun horfði ég til að mynda á
heimildarmyndina Draumalandið. Mér
finnst þið vera að selja landið ykkar
fremur ódýrt,“ segir Antje ákveðin.
Þau hjón hafa orðið vör við það hversu
erfitt sé að bóka herbergi í Reykjavík en
voru þó heppin með gistingu.
„Við dveljum í litlu húsi sem er rétt hjá
Háskóla Íslands. Við fundum það á ver-
aldarvefnum og erum að leigja það í þessa
tíu daga, það er gamalt og mjög fallegt.
Við erum því algjörlega á okkar eigin
vegum, við fengum reyndar einhverja
bæklinga hjá einhverri ferðamannaþjón-
ustu. Við heyrðum það í gærkvöldi að
maður þyrfti að bóka herbergi mjög
snemma því það sé allt orðið fullt núna,“
segir Antje.
„Við styðjumst reyndar við kerfi í sím-
anum okkar sem segir okkur hvert við
eigum að fara. Við fylgjum því bara,“
bætir Thomas glettinn við.
Dýr borg en gott andrúmsloft
Vinkonunum Siobhan frá Englandi og
L’chelle frá Ástralíu líkar vel í Reykjavík.
Siobhan líkaði til að mynda svo vel að
hún ákvað að dvelja hér öllu lengur en til
stóð.
„Ég hef búið hérna í fjórtán mánuði.
Fólk hafði alltaf sagt mér að Ísland væri
mjög flott land og að ég ætti að fara þang-
að, ég vildi því heimsækja staðinn. Ég
gerði það í gegnum starfið sem ég fékk
hjá köfunarfyrirtæki. Mér þótti landið
frábært svo ég ákvað að vera lengur,“
segir Siobhan ánægð á svipinn. L’chelle
hefur verið hér öllu styttra.
„Þegar ég kom hingað þá vissi ég ekki
Þykir nýbyggingar
eyðileggja ásýnd
Reykjavíkur
Mikil aukning hefur verið í ásókn ferðamanna til Reykjavíkur að
undanförnu. Að sögn er þó nánast ómögulegt að finna sér gistingu
nema með miklum fyrirvara. Ferðamenn sem undirritaður náði
tali af höfðu ýmislegt um þetta mál og önnur að segja.
Texti: Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is
Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurðsson sigurgeir@mbl.is
Hin austurrísku Alexander og Barbara voru ánægð með búðirnar.Þjóðverjarnir Thomas og Antje voru óánægð með nýbyggingar.
L’chelle og Siobhan þótti Íslendingar viðkunnanlegir. Rómverjarnir Fabio, Susanna og Damian höfðu ýmislegt að segja.