Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 59
30. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
9. Kraftur sem finnst í bíl. (5)
11. Tól fyrir dúsín. (4)
12. Gagnstætt höfuð á þrákálfi. (8)
13. Lauf ét öndverð í fjarlægu landi (5)
14. Platjörð er á ferð um jörðina. (12)
15. Vefengir einn bilaður tilbúin efnasambönd. (9)
17. Lélegt lán fylgir Gunnari sem nær að rannsaka. (8)
18. Bar skiptinemasamtaka nær að taka af lista. (6)
19. Er í formi þótt það sé torvelt. (6)
21. Reitir svipillar. (6)
23. Fimm og einn enn endurtaka fyrir hliðhollt. (8)
24. Sjávarspendýrs ryk voru keypt. (7)
25. Hinkrað og óskað. (5)
27. Pumpar fyrir þægilega. (5)
29. Lús af útselskóp skapar vandræði. (6)
30. Lemur fugl með ávöxtum (8)
32. Kindin og fúsir grallararnir. (11)
34. Gerið út um og viðurkennið. (7)
35. Það sem var á matseðli á veitingastað í gamla daga snérist
um erfðarrétt. (11)
36. Borðandi fær platað ryk að sögn frá skössum. (10)
37. Slíkir afkomendur. (9)
LÓÐRÉTT
1. Mikil lækna til að fá formúu fyrir. (9)
2. Nokkrar fá matskeið frá Eiði í kennslu. (13)
3. Undir yfirborði af kappi. (5)
4. Gisinn líkt og lítil óeðlileg húðmyndun. (8)
5. Ó hentu með einhvers konar urg honum sem ekki passar. (9)
6. Sá sem hendir ljósi. (7)
7. Þótt af ull komi drambmikil. (9)
8. Betri sögn en litur gefur ágrip. (7)
10. Uggsamastir missa mig við að óhreinkast. (8)
16. Margsinnis loppur fela sig í klæðnaði. (11)
17. Búa til tré og laga. (4,3)
19. Vodka er til að blandast í þessu landi. (7)
20. Eftirtalið er þvæla hjá skrifuðum. (12)
22. Fullkomin samstæða birtir alþakið. (6)
24. Jafnstórar þvælast í sjávarmálinu. (10)
25. Fugl skips á gálga. (8)
26. Hunsi Signor sem er einn. (8)
28. Sálinn er lokið aftur með tæki til lokunar. (8)
31. Bless líkamshluti sem hreyfist. (6)
33. Kona í ábreiðunni. (5)
Fyrir síðustu umferð ólympíu-mótsins í Istanbúl á dög-unum áttu kínversku sveit-
irnar í opna- og kvennaflokknum
góða möguleika á gullverðlaunum.
Karlasveitin var jöfn Rússum og
Armenum en með sigri í loka-
umferðinni hefði sveitin staðið lang-
best að vígi þar sem allar nið-
urstöður hnigu í sömu átt; ef grípa
þyrfti til stigaútreiknings myndi
kínverska vinna. Reyndin varð sú
að stigaútreikning þurfti til en þá
þurfti með afar flóknu kerfi að gera
upp á milli armensku sveitarinnar
og þeirrar rússnesku. Kína tapaði
nefnilega fyrir Úkraínu og endaði í
fjórða sæti. Í kvennaflokknum fór
einnig allt á versta veg, kínversku
stúlkurnar, með heimsmeistarann
Hou Yifan á 1. borði, unnu sína við-
ureign en við stigaútreikning
reyndust keppinautar þeirra Rúss-
ar hafa betur. Þar er þó bættur
skaðinn því kínverska kennaliðið
hefur margsinnis unnið gull á ól-
ympíumótum.
Vandinn liggur nefnilega hjá
körlunum. Bíði maður nógu lengi
við bakka Gula fljótsins er aldrei að
vita nema lík óvinanna fljóti þar
framhjá, segir kínverskt máltæki
fornt. Einn góðan veðurdag munu
fremstu skákmenn þeirra uppfylla
væntingar alþýðulýðveldisins um
fullnaðarsigur á vettvangi ólympíu-
mótanna. Til þess hafa þeir a.m.k.
nægan mannskap. Hljómfögur nöfn
stórmeistara á borð við Liren Ding,
Ni Hua og Xiangzi Bu kalla fram
minningar um skæran bjölluhljóm
sem ónefndur íslenskur skákmaður
þóttist heyra þegar yfir menn
dundu hinar frægu „kínversku
drottningarfórnir“ sem voru að-
alsmerki frumherjanna sem tefldu í
Buenos Aires 1978. Í dag er leik-
tækni sumra kínversku skákmann-
anna svo góð að minnir á vel þjálf-
aða borðtennisleikara. Og það var
ekki hátt á þeim risið, andstæðing-
unum í lokaumferðinni, Úkra-
ínumönnum. Ivantsjúk hafði orðið
fyrir ýmsum skakkaföllum í Ist-
anbúl og sumir aðrir langt frá sínu
besta. Sigurstund Kínverja virtist
ætla að renna upp – en þeir töpuðu
1:3! Ég hef dálítið verið að velta
ástæðunni fyrir þessari kínversku
„tregðu gagnvart gullinu“. Nið-
urstaðan er ekki alveg komin. Þeg-
ar Mikhael Tal kom til Íslands árið
til 1964 kjaftaði á honum hver
tuska. Þó kom hann úr lokuðu sam-
félagi. Kínversku skákmennina er
ekki hægt að nálgast á sama hátt:
ÓL 2012; 11. umferð:
Vasilí Ivantsjúk – Wang Hao
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
e3 0-0 5. Bd3 d5 6. Rf3 b6 7. a3
Bxc3+ 8. bxc3 c6?!
Sérkennilegur leikur. Sjálfsagt er
8. … dxc4 9. Bxc4 c5 ásamar – Dc7
o.s.frv.
9. cxd5 cxd5 10. Be2 Rc6 11.
O-O Ra5 12. a4 He8 13. Re5 Re4
14. f3 Rd6
Vitaskuld ekki 14. … Rxc3 15.
Dc2 og vinnur.
15. Ba3 Bb7 16. Bxd6 Dxd6 17.
f4 g6 18. Dg4
Hvítur er búinn að byggja upp
vænlega sóknarstöðu.
18. … Rc4 19. Dg3 Dc7 20. Bxc4
dxc4 21. f5 f6
Nú er afar freistandi að fórna
manni. Til þess að dæmið gangi upp
þarf að finna 26. leikinn.
22. fxg6! fxe5 23. Hf7 Dc6 24.
gxh7+ Kxf7 25. Hf1+ Ke7
Ivantsjúk var búinn að sjá að
valdið á e7-reitnum skiptir hér
sköpum.
26. h8(D)! Hxh8 27. Dg7+ Kd6
28. dxe5+!
– og Wang Hao gafst upp. Fram-
haldið gæti orðið 28. … Kc5 29.
De7+ Kd5 30. Hd1+ Ke4 31.
Hd4+ Kxe3 32. Dg5+ Ke2 33. Dd2
mát.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Gullið gekk Kínverjum úr greipum
Verðlaun eru veitt fyrir kross-
gátu vikunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 29. september rennur út á
hádegi 5. október. Nafn vinn-
ingshafa er birt í blaðinu 7.
október. Vinningshafi krossgát-
unnar 23. september er Anna Hermannsdóttir, Víði-
lundi 20 (306), Akureyri. Hún hlýtur í verðlaun bók-
ina Undraborgina eftir Eduardo Mendoza. Forlagið
gefur bókina út.
Krossgátuverðlaun
Nafn
Heimilisfang
Póstfang