Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 6
Helmut Kohl varð kanslari
Vestur-Þýskalands árið 1982.
Í hans kanslaratíð féll Berl-
ínarmúrinn og árið 1991 var
Þýskaland sameinað. Hann er
einnig einn af upphafs-
mönnum evrunnar. Hann var
kanslari til 1998 og hefur eng-
inn setið lengur í embættinu
frá valdatíð Ottos von Bism-
arck. Myndin sýnir Kohl og
Míkhaíl Gorbat-
sjov, leiðtoga
Sovétríkjanna,
árið sem múr-
inn féll.
Helmut Kohl skapaði sér af-gerandi sess í þýskrisögu. Hann var kanslari
þegar múrinn hrundi og Þýskaland
var sameinað. Kohl er í sviðsljósinu
þessa dagana vegna þess að á
morgun, 1. október, eru 30 ár liðin
frá því hann varð kanslari. En það
er ekki eina ástæðan. Ekki er síður
rætt um það hvernig nú er fyrir
kanslaranum komið.
Kohl fannst 28. febrúar 2008 í
blóði sínu á eldhúsgólfinu heima hjá
sér. Hann hefur sennilega dottið
fram fyrir sig, líklega eftir að hafa
fengið hjartaáfall. Síðan hefur hann
verið í hjólastól og átt erfitt með
mál. Hann lætur fyrirberast í húsi
sínu í Ludwigshafen-Oggersdorf þar
sem eiginkona hans, Maike Kohl-
Richter, annast hann. Kanslarinn
fyrrverandi var á forsíðu vikuritsins
Der Spiegel í liðinni viku undir fyr-
irsögninni Harmleikur Helmuts
Kohls. Yfir henni stóð: Svikinn,
blekktur, einangraður.
Kohl gekk að eiga Kohl-Richter
eftir að Hannelore, eiginkona hans,
framdi sjálfsmorð. Kohl-Richter er
48 ára gömul, en Kohl 82 ára.
Eftir slysið fyrir rúmum fjórum
árum hefur aðeins takmarkaður
hópur manna haft aðgang að Kohl.
Þeir, sem ekki eru í náðinni, beina
einkum spjótum sínum að eiginkonu
hans. Hún ráðskist með hann og sé
að reyna að móta arfleifð hans.
Menn velta fyrir sér að hve miklu
leyti bréf frá Kohl og blaðagreinar
séu eftir hana.
Eiginkonunni mun vera mikið í
mun að rödd Kohls heyrist, ekki síst
vegna þess að annar fyrrverandi
kanslari, sem reyndar ekki hafði
jafn mikil áhrif á söguna, situr í
Hamborg og lætur sig málefni líð-
andi stundar óspart varða, jafnt í
ræðu sem í riti. Helmut Schmidt er
reyndar einnig í hjólastól, en hann
getur bæði talað og skrifað.
Þeir, sem aðgang hafa að kansl-
aranum, segja hins vegar að hún
hugsi mjög vel um hann, sé athugul
og fórnfús; að án hennar væri Kohl
ekki á lífi og hefur Kohl reyndar
sagt það sjálfur. Meðal hinna út-
völdu eru Kai Diekmann, ritstjóri
dagblaðsins Bild, og Horst Teltsc-
hik, sem var ráðgjafi Kohls um ut-
anríkismál í kanslaratíð hans.
Meðal hinna útilokuðu eru Peter
og Walter Kohl, synir Kohls, Eck-
hard og Hilde Seeber, fyrrverandi
bílstjóri, og ráðskona hans.
Í Der Spiegel er rakið hvernig
Eckhard Seeber, sem árum sam-
an þjónaði Kohl, sló blettinn
við húsið hans, fór með
honum í gufubað og jós vatni á
heita steinana og breiddi yfir hann
þegar hann var sofandi og hafði
hrist af sér teppið í löngum flug-
ferðum, fékk einn daginn að vita að
þjónustu hans væri ekki lengur
þörf.
Blaðamaðurinn Heribert Schwan,
sem eitt sinn var trúnaðarvinur fjöl-
skyldunnar, skoraði í sjónvarpi á
gamla vini kanslarans að snúa bök-
um saman og „frelsa“ hann.
Schwan var hinn nafnlausi skrá-
setjari ævisögu Kohls. Hann skrif-
aði þrjú bindi þar sem nafn hans
kemur hvergi fyrir og var hálfnaður
með það fjórða. Hann vann mjög
náið með kanslaranum fyrrverandi
fyrir slysið. Hann á 630 klukku-
stundir af upptökum með sam-
ræðum sínum við Kohl. Þar er
margt, sem ekki kom fram í
ævisögunni, sem hann vann
með Kohl. Einnig hafði hann að-
gang að öllum gögnum, trún-
aðarskjölum og einkabréfum, meira
að segja 13 möppum, sem austur-
þýska öryggislögreglan, Stasi, tók
saman um hann á sínum tíma.
Schwan skrifaði ævisögu Hann-
elore Kohl, sem hann átti mörg
trúnaðarsamtöl við, í óþökk Kohls.
Schwan kveðst hafa fórnað átta ár-
um, nú vilji hann fá eitthvað fyrir
snúð sinn og skrifa ævisögu Kohls
með sínu lagi.
Kohl-Richter mun ekki síst vera
treg til að hleypa fólki að Kohl
vegna hættunnar á að frásagnir af
heimilislífinu leki beint í slúður-
blöðin. En hún veit að það lítur ekki
vel út þegar gamlir samferðamenn
segjast í viðtölum hafa verið settir
út í kuldann. Hún mun því vera að
íhuga að rétta þeim sáttahönd og
opna heimilið fyrir þeim á ný.
Tekist á um
Helmut Kohl
HELMUT KOHL ER BUNDINN VIÐ HJÓLASTÓL OG
MÁ VART MÆLA. SEINNI EIGINKONA HANS LIGGUR
UNDIR ÁMÆLI FYRIR AÐ EINANGRA MANN SINN.
KANSLARINN FYRRVERANDI SEGIR HINS VEGAR AÐ
ÁN HENNAR VÆRI HANN EKKI Á LÍFI.
SAT Í SEXTÁN ÁR
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari, á athöfn í Þýska sögusafninu í Berlín þar
sem sá síðarnefndi var heiðraður í tilefni af því að á morgun eru 30 ár liðin frá því að hann varð kanslari.
AFP
* Þið standið ekki ein, við stöndum með ykkur.Helmut Kohl í ávarpi til borgara Austur-Þýskalands daginneftir að múrinn féll 9. nóvember 1989.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. 09. 2012
HEIMURINN
GRIKKLAND
AÞENU Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikk-
lands, samþykkti 11,5 milljarða evra
niðurskurð á fjárlögum. Daginn eftir fóru
Grikkir í fyrsta allsherjarverkfallið þar í
landi síðan í febrúar. Flug og lestarferðir
lágu niðri og opinberi geirinn lamaðist.
NÍGERÍA
ABUJA Her Nígeríu felldi 35 manns
í norðausturhluta landsins í aðför að
Boko Haram, hryðjuverkasamtökum
íslamista í landinu.Aðgerðirnar komu í
kjölfarið á sprengjutilræði í kirkju þar
sem tveir létu lífið. Samtökin eru talin
hafa staðið að baki tilræðinu.
JAPAN
TÓKÝÓ Í Japan er undirbúning-
ur undir kosningar
hafinn. Frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn,
sem er í stjórnar-
andstöðu, valdi í
vikunni Shinzo Abe, fyrrverandi
forsætisráðherra, til að leiða
hann í kosningabaráttunni.Valið
kom á óvart.
ÚRÚGVÆ
MONTEVIDEO Neðri deild þings-
ins í rómönsku Ameríku samþykkti
naumlega lög um að leyfa fóstur-
eyðingar. Búist er við að lögin verði
einnig samþykkt í öldungadeildinni og
yrði Úrúgvæ þá annað landið í álfunni
á eftir Kúbu til að leyfa fóstureyðingar.