Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 64
Hjónin Þóra Sigurðardóttir og Völundur SnærVölundarson, sem framleiða matreiðsluþættinaDelicious Iceland ásamt Gunnari Konráðssyni,
íhuga nú að gera framhald af þáttunum sem sýndir hafa
verið í meira en fjörutíu löndum en fjölmargar erlendar
sjónvarpsstöðvar hafa farið þess á leit við þau. Tvennt
kemur til greina. Annars vegar að halda áfram hér heima
og taka þá fyrir hafið, fiskinn og sjómennskuna að vetr-
arlagi eða reyna fyrir sér erlendis.
„Þættirnir hafa gengið vonum framar og ég leyfi mér að
fullyrða að um eina bestu Íslandskynningu sögunnar sé að
ræða, þótt það hljómi hálfskringilega að segja það berum
orðum,“ segir Þóra en þættirnir hafa meðal annars verið
sýndir á BBC. „Dreifingaraðilinn okkar, TVF Int-
ernational, vill fá meira efni frá okkur og við erum að fara
yfir málið. Asía kemur til álita í því sambandi en við eigum
heimboð víða um heim, meðal annars á Samóa-eyjum. Við
höfum þegar gert kynningarefni vegna Delicious Bahamas
og langar að klára það dæmi við tækifæri,“ bætir hún við.
Þau fjármögnuðu Delicious Iceland sjálf en þættir af
þessu tagi eru sannarlega ekki hristir fram úr erminni. „Við
leituðum eftir stuðningi frá Íslandsstofu. Húsbændum þar á
bæ þótti þættirnir hins vegar ekki falla að sínum plönum en
þetta var einmitt á sama tíma og menn voru að hrinda verk-
efninu Inspired by Iceland af stokkunum. Það fór því svo að
við fjármögnuðum gerð þáttanna sjálf.“
Spurð um fjármögnun á nýjum þáttum segir Þóra að
þau mál séu í vinnslu. „Þættirnir hafa sannað gildi sitt og
hagsmunaaðilar sjá væntanlega hag sinn í því að fjallað sé
um land og þjóð á jafn áhugaverðan og skemmtilegan hátt
og gert hefur verið.“
Verði ofan á að gera næstu þætti hér heima segir Þóra
upplagt að hefjast handa sem fyrst. „Veturinn er að ganga
í garð og það jafnast fátt á við Ísland að vetrarlagi, sjóinn,
fiskinn og kúltúrinn í sjávarþorpunum. Við brennum í
skinninu að hefjast handa.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
AÐSTANDENDUR DELICIOUS ICELAND
Vilja gæða sér áfram á Íslandi
Hjónin Þóra Sigurð-
ardóttir og Völundur
Snær Völundarson eru
flutt heim til Íslands.
SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2012
Það er hlægilega
auðvelt að finna sér
skemmtun í Leigunni
Þín ánægja er okkar markmið
Fjöldi mynda á aðeins 400 kr. í Leigunni
í Vodafone Sjónvarpi. Skannaðu QR
kóðann og farðu hlæja.
Skannaðu kóðann, leggðu símann
niður og auglýsingin lifnar við
Bæði aðalleikarinn Damian Lewis og aðal-
leikkonan Claire Danes fengu Emmy-verðlaun
fyrir leik sinn í fyrstu þáttaröð hinna hádrama-
tísku Homeland-þátta, en verðlaunin voru veitt
fyrr í vikunni. Fyrsta þáttaröðin er væntanleg
á dvd í lok október en fyrir þá sem ekki geta
beðið er hægt að panta þættina á dvd á Amazon-
vefversluninni og vona að þeir berist í tæka tíð áð-
ur en önnur þáttaröð hefst hinn 8. október.
BASL ER BÚSKAPUR
RÚV Sunnudagur kl. 18.25 Í
þáttunum Basl er búskapur er
fylgst með ungum dönskum bónda
sem hafnar nútímalíferni.
Stöð 2 Laugardagur kl. 12 Fyrir
þá sem ekki hafa tíma til að horfa á
daglegu sápuóperuna Glæstar von-
ir (Bold and the Beautiful) á virkum
dögum er hægt að leggjast í sófann
á hádegi á laugardag og fá viku-
skammt af sápu.
SÁPUMARAÞON
Rás 1 Sunnu-
dagur kl. 10.15
Lesið er úr ljóð-
um Walts Whit-
mans í þýðingum
Hallbergs Hall-
mundssonar. Umsjón með þætt-
inum er í höndum Árna Blandon og
lesari er Sigurður Skúlason..
HOMELAND SNÝR AFTUR Á SKJÁINN INNAN SKAMMS
Bretinn Damian
Lewis fer listavel
með hlutverk
Nicholas Brodys.
AFP
Hádramatískt
heimaland
Claire
Danes
HOMELAND FÓR HEIM MEÐ FEITUSTU BIT-
ANA AF EMMY-HÁTÍÐINNI. ÞEIR SEM EKKI
HAFA SÉÐ FYRSTU ÞÁTTARÖÐINA HAFA
VIKU TIL AÐ VINNA ÞAÐ UPP ÁÐUR EN
ÖNNUR ÞÁTTARÖÐ HEFST Á STÖÐ 2 HVER VAR WALT WHITMAN?