Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 50
Viðtal
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. 09. 2012
S
tundum er smjattað á afreka-
skrám og allt tínt til en í til-
felli Kolfinnu er nær ógerlegt
að gera öllu skil án þess að
enda í einhverskonar upptaln-
ingu. Ótal fréttir hafa borist af henni síð-
asta árið. Meðal þess er þegar ein þekkt-
asta tískuvefsíða heims, Style.com valdi
hana sem best klæddu fyrirsætu tískuvik-
unnar í London en þar sýndi hún fatnað
fyrir sex hönnuði. Þá hefur hún ratað á
lista models.com yfir efnilegustu fyrirsætur
heims. Kolfinna hefur lokað sýningum fata-
hönnuða á borð við Marc Jacobs í New
York, setið fyrir á ótal forsíðum og þá hafa
Topshop og Acne fengið hana til að vera
andlit sitt. Nýjustu fréttir þykja jafnframt
þær merkustu. Kolfinna situr fyrir á for-
síðu haustheftis i-D tímaritsins. Aðeins of-
urfyrirsætur komast þangað.
„Nei, ég veit ekki alveg og hef ekki mik-
ið spáð í það hvað það er við útlit mitt
persónulega sem nær til hönnuða. Að vísu
hefur stutta hárið á mér stundum verið
nefnt. Hef það stundum á tilfinningunni að
þeim þyki gaman að klæða mig svona
stuttklippta í kjóla,“ segir Kolfinna og
brosir. „Persónulega held ég að svona ár-
angur náist ekki nema maður hafi góðan
mannskap í kringum sig, hjá Eskimo hér
heima og úti. Ég hef þar verið mjög hepp-
in og mitt fólk verið vakið og sofið yfir
mér.
Þetta með að fyrirsætur og þeir sem eru
í þessum geira hafi ekkert milli eyrnanna
er tóm þvæla. Þessar stelpur eru allar
þrælklárar „bisnesskonur“ og vita nákvæm-
lega hvað þær eru að gera,“ segir Kolfinna
en viðurkennir þó að sjálfsöryggi komi
manni langt. „Ég hafði það alls ekki þegar
ég byrjaði en þegar maður er farinn að
þekkja líkama sinn, veit hvað virkar og
hvaða stellingar henta vel kemur það. Þetta
er heilmikill spuni. Stundum hugsa ég vinn-
una sem eins konar leikræna tjáningu – án
orða og skapgerðarleik,“ segir Kolfinna og
bætir við að sú hlið starfsins geti verið
meira en að segja það. „Eins og að sýnast
vera ofboðslega ástfangin af strák sem ég
hitti kannski í fyrst fyrir fimm mínútum.“
Fegrunarráðið frá pabba
Kolfinna er í fríi á Íslandi og hvílir sig eft-
ir annasama mánuði. Hún segist nota tím-
ann til að sofa og bætir við að raunar hafi
hún fengið eitt besta fegrunarráðið frá föð-
ur sínum sem hún hafi notað óspart síðasta
árið. „Þegar ljóst var út í hvað ég var að
fara gaf hann mér það ráð að nota
hvert augnablik sem gæfist fyrir orku-
blund. Ef ég væri í lest, að bíða
meðan aðrir væru myndaðir eða
hvar sem tækifæri gæfist – þá
myndi blundur bjarga miklu,“
segir Kolfinna en hún hefur
sannarlega þurft að nýta lausan
tíma vel til að hvílast.
Ævintýrið hófst þegar Kol-
finna tók þátt í Ford-keppninni
hérlendis og hafnaði í öðru sæti.
Eskimo á Íslandi er hennar um-
boðsaðili hér heima en ytra er
hún á samningi hjá einni stærstu
fyrirsætuskrifstofu heims; Next.
Það hvarflaði aldrei að Kolfinnu
að sá sigur myndi hafa í för
með sér þá spútniktíð sem
framundan var. Nýjasta verk-
efni hennar vekur mikla eft-
irtekt en hún prýðir forsíðu
haustheftis tímaritsins i-D. Að
fá það verkefni hefur einungis
verið á færi ofurfyrirsæta og í
fyrra var það til dæmis Lara
Stone sem valdist í hlutverkið og þykir
þetta því staðfesta það sem hefur verið
undirliggjandi: að Kolfinna er
komin á stað sem aðeins út-
valdar fyrirsætur ná. Kolfinna
átti síður von á því að vera
spottuð sem efnilegt módel enda
ekki haft minnstu fyrirsætu-
hugmyndir um sjálfa sig. „Ég
var krúnurökuð þegar Andrea
Brabin sá mig þar sem ég var að
vinna í Galleríi Sautján og ég
vissi nákvæmlega ekkert um
tískuheiminn. Það sem ég vissi
hafði ég frá systur minni sem hef-
ur alltaf verið betur inni í þessu
en ég og ég man þegar hún safn-
aði i-D blöðunum um tíma. Þegar
ég var 14 ára kom upp örstutt
skeið þar sem ég sá það, eins og
hver annar, í hillingum að vera
fyrirsæta. En svo gleymdi ég því
nú bara enda hef ég alltaf haft um
nóg að hugsa. Nöfn þekktra hönn-
uða og því um líkt voru
mér því mjög framandi í
byrjun og öll mín þekk-
ing er eitthvað sem hefur
Ólík andlit
Kolfinnu
KOLFINNA KRISTÓFERSDÓTTIR HEFUR UNNIÐ SIGRA Í
TÍSKUHEIMINUM SEM FYRIRSÆTUR LEYFA SÉR AÐ DREYMA
UM. KOLFINNA ER VESTMANNEYINGUR SEM ÞEKKTI
HVORKI HAUS NÉ SPORÐ Á TÍSKUHEIMINUM ÞEGAR HÚN
VAR UPPGÖTVUÐ, ÞÁ KRÚNURÖKUÐ Í VINNUNNI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Stívélin sem
Alexander
Wang nefndi
eftir Kolfinnu.