Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 49
Guðrún Sóley segist ekki velta sérmikið upp úr því hversu leið-inlegan endi fótboltaferill hennar fékk þegar hún var á hátindi ferilsins. „Ég var búin að spila fótbolta í fjöldamörg ár og hef unnið nokkra titla. Ég spilaði með ís- lenska landsliðinu og náði að spila með því þegar það komst í lokakeppni í fyrsta skipti. Ég er mjög sátt með minn feril þó ég hafi þurft að hætta svona skyndilega. Auðvitað hefði verið gaman að ná fleiri landsleikjum og geta gert þetta eða hitt en svona var þetta bara,“ sagði Guðrún þegar Sunnudags- mogginn spurði hana hvort ekki hafi verið erfitt að sætta sig við þessa niðurstöðu. Guðrún er fædd 15. september árið 1981. Hún var því 28 ára þegar hún lék sína síð- ustu fótboltaleiki. Þá hafði hún verið lyk- ilmaður í vörn Djurgården á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku. Þar lék Guðrún 17 leiki og skoraði 2 mörk í hinni sterku sænsku atvinnumannadeild. Í september 2009 stóð henni til boða að spila með Chicago Red Stars í bandarísku atvinnumannadeildinni. Guðrún er uppalin í KR og lék 97 leiki með liðinu í efstu deild frá 1996-2005 og skoraði 8 mörk. Hún lék aftur með liðinu sumarið 2008 og bætti þá við 18 leikjum og 2 mörkum. Í millitíðinni spilaði hún með Breiðabliki í Kópavoginum. Hún spilaði 27 deildaleiki fyrir Blikana og skoraði 6 mörk. Guðrún lék með öllum landsliðum Íslands. 13 leiki með U-17 ára landsliðinu. 7 leiki með U-19 ára landsliðinu og skoraði 3 mörk. 17 leiki fyrir U-21 árs landsliðið og 65 A- landsleiki og skoraði hún einu sinni fyrir landsliðið. Guðrún afrekaði það að verða NCAA- háskólameistari í Bandaríkjunum með liði Notre Dame-skólans. Guðrún varð fimm sinn- um Íslandsmeistari með KR og varð þrívegis bikarmeistari með félaginu. Hún varð tvö- faldur meistari með liðinu árið 1999. Þess má til gamans geta að Guðmundur Reynir Gunnarsson, leikmaður bikarmeistara KR, er bróðir Guðrúnar. Hann hefur einnig leikið með öllum fjórum landsliðunum í knattspyrnu. EM Finnland | Ísland - Frakkland Sara Björk Gunnarsdóttir, Edda Garðars- dóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Rakel Logadóttir, Rakel Hönnudóttir Morgunblaðið/Golli EM Finnland | Ísland - Noregur Guðrún Sóley Gunnars- dóttir, Isabell Herlovsen. Morgunblaðið/Golli FIMMFALDUR ÍSLANDSMEISTARI MEÐ KR „Er mjög sátt með ferilinn“ GUÐRÚN SÓLEY GUNNARSDÓTTIR LÉK YFIR 100 LEIKI FYRIR LANDSLIÐ ÍSLANDS Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Eggert EM Finnland | Ísland - Þýskaland Guðrún Sóley Gunnarsdóttir. Morgunblaðið/Golli Ísland - Serbía Guðrún Sóley Gunn- arsdóttir, Katrín Jónsdóttir. Ísland - Serbía landsleikur Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir 30. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 PI PA R \T BW A -S ÍA Sæktu um lykil núna á ob.isí tíunda hvert skipti sem þú dælir 25 lítrum eða meirameð ÓB-lyklinum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.