Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 8
Hópur krakka úr barnakór Seltjarnarness syngur á
væntanlegu myndbandi við vinsælt lag Ásgeirs Trausta
Einarssonar, Dýrð í dauðaþögn. Segja má að Ásgeir
Trausti sé spútnikpoppstjarna Ísland um þessar mund-
ir og því tilhlökkun fyrir öllu sem frá honum kem-
ur.
Börnin fóru í hljóðver fyrr í vikunni þar
sem raddir voru teknar upp en myndbandið
sjálft verður tekið upp næstu helgi, nánar
tiltekið á Eyrarbakka, og leika börnin þar
einnig stórt hlutverk í útimyndatökum.
Daníel Freyr Atlason sér um leikstjórn.
Hann vann lengi sem hugmyndamiður hjá
Jónsson & Lemack’s en rekur nú vefsíð-
una Liveproject.is.
Vettvangur
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. 09. 2012
Refsingar, hvort sem það eru sektir eða frels-issvipting eiga að hafa fælingarmátt.Frelsissvipting snertir alla jafnt. En hið
sama á ekki við um sektir. Ríkur einstaklingur sem
sektaður er fyrir umferðarlagabrot kippir sér lítið
upp við sektina á sama tíma og hún getur sett fá-
tækan mann í alvarleg fjárhagsleg vandræði. Þess
vegna hefur því verið varpað fram hvort sektir eigi
að tengja tekjum fólks, þannig að þær komi við þá
ríku eins og hina fátæku. Í nýju umferðarlaga-
frumvarpi er sett fram tillaga í þá átt þótt ekki sé
langt gengið. Þegar ég kynnti málið í ríkisstjórn
settu nokkrir ráðherrar fyrirvara við þetta ákvæði
af „prinsippástæðum“. Sama átti við um ýmsa þing-
menn. Ekkert er undarlegt við að skoðanir séu
skiptar um þetta, óháð flokkslínum.
Hugmyndin um tekjutengingu umferðasekta er
ekki séríslensk. Slík ákvæði eru í lögum í Dan-
mörku, Svíþjóð, Finnlandi og Þýskalandi, svo dæmi
séu tekin. En hvað um „prinsippið“? „Refsing á að
vera hin sama fyrir alla,“ segja gagnrýnendur. En
það er hún ekki, sem áður segir. Þótt sekt sé jafnhá
í krónum talið ræðst refsimáttur hennar af fjárhag
hins sektaða. Færa má rök fyrir því að þá fyrst
sætu menn við sama borð ef tekjutengingin væri al-
gjör, forstjórinn, skrifstofumaðurinn og ræsti-
tæknirinn þyrftu að láta mánaðartekjur sínar af
hendi rakna fyrir alvarlegt brot.
Ég gæti trúað að þá heyrðist hljóð úr horni.
Sumt fólk er nefnilega orðið vant því að geta keypt
sig frá öllum vanda. Síðan er hitt að sumum er
sárara um fé en öðrum og er það ekki endilega í
réttu hlutfalli við efni manna.
Frægasta dæmið um tekjutengda sekt er þegar
Olli-Pekka Kallasvuo, fyrrverandi forstjóri Nokia í
Finnlandi, var sektaður um tugi milljóna króna fyr-
ir hraðakstur. Það mun hafa hrifið þótt uppi væru
raddir um að samfélagsþjónusta hefði jafnvel
hreyft meir við forstjóranum.
Ef til vill er fræðsla besta vopnið í baráttunni við
hættulega hegðun, reyna að fá fólk til að sýna
ábyrgð og taka tillit til samborgara sinna. Enn-
fremur er mikilvægt að refsingin sjálf valdi ekki
samfélagslegum skaða, brjóti einstaklinga ekki nið-
ur. Markmiðið á alltaf að vera að batnandi manni sé
best að lifa. Sektir mega heldur ekki öðlast einkenni
skatta, verða sjálfstæð tekjulind, því þannig verður
til tilhneiging til að refsa fyrir algenga hegðun með
síhækkandi en hugsanlega gagnslitlum sektum.
En aftur að fyrrnefndu umferðalagafrumvarpi.
Það er mikið að vöxtum og hefur að geyma ýmis
nýmæli sem horfa til framfara. Frumvarpið hefur
verið lengi í smíðum og tekið miklum breytingum í
vinnsluferlinu samkvæmt ábendingum og óskum
aðskiljanlegra aðila.
En lítið hefur farið fyrir umræðunni um tekju-
tengingu sekta enda kom það ákvæði inn að mínu
frumkvæði á lokametrum. Það er hins vegar rétt
hjá gagnrýnendum þessa ákvæðis að um er að
ræða grundvallarmál sem kallar á íhugun og um-
ræðu.
Mánaðarlaun í sekt?
*Ef til vill er fræðslabesta vopnið í barátt-unni við hættulega hegðun.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur
Jónasson
ogmundur@althingi.is
Flótti af Facebook
Líklega bar það
helst til tíðinda á
Facebook í vikunni að
skyndilega fóru not-
endur að hverfa og
loka aðgangi sínum.
Ástæðan var sá orð-
rómur að einkaskilaboð væru tekin að
birtast fyrir allra augum á tímalínum.
Facebook vill ekki staðfesta að slíkt hafi
gerst en notendur virðast ekki treysta
þeim fullyrðingum. Margir hafa þó aftur
virkjað aðganginn sinn og jafnvel stofnað
nýja síðu.
Sjálfstæðismaður
í náðinni
„Þorgerður [Katrín
Gunnarsdóttir] er sú
sem ég hef alltaf haft
mest álit á í Sjálfstæð-
isflokknum.“
Smyglhringur á Baggalút
Grínsíðan baggalutur.is kom til allrar
hamingju úr sumarfríi fyrir nokkru. Brand-
ari vikunnar „frétt“ af nokkrum nágrönn-
um í Hlíðahverfinu sem „tóku sig til og
stofnuðu smyglhring á dögunum“. Til-
gangur hringsins er þar sagður vera að
smygla dóti svo sem sígarettum, hráu
kjöti, lifandi dýrum, megrunarpillum og
vopnum. Allir meðlimir smyglhringsins
eru með MBA-próf að sögn Baggalúts.
Handboltahetja í þýskum bæklingi
Handknattleiksmaðurinn Vignir Svav-
arsson spilar með Minden í Þýskalandi og
er greinilega að slá í
gegn. Á Facebook
gengur mynd af Vigni
úr matvörubæklingi,
hálfgerðum þýskum
Hagkaupabæklingi.
Samkvæmt heimildum Sunnudagsblaðs
Morgunblaðsins hefur það verið draum-
ur Vignis um nokkurt skeið að sitja fyrir í
slíkum bæklingi. Hann auglýsir þar ein-
hvers konar drykkjartegund og situr fyrir
á tveimur flöskukössum.
AF NETINU
Facebookflótti var
nokkur í vikunni.
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir
Vignir Svavarsson
Baggalútur er
í góðum gír.
Ólafur Darri Ólafsson leikari hefur
gert samning við bandaríska um-
boðsskrifstofu. Deadline.com, ein að-
alfréttasíða kvikmyndasíða vest-
anhafs, greinir frá þessu í gær.
Umboðsskrifstofan er APA,
Agency for performing arts. Í frétt-
inni kemur jafnframt fram að þó að
Ólafur Darri hafi búið á Íslandi nær
allt sitt líf sé hann fæddur í Con-
necticut. Arsenio Hall er einn þeirra
listamanna sem eru á samningi hjá
APA.
Ólafur Darri Ólafsson vekur mikla athygli, hér heima
og erlendis fyrir hlutverk sitt í Djúpinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Með
samning
vestanhafs
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Útitökur á
Eyrarbakka
Ásgeir Trausti verður með
hóp barna í myndbandi við
lagið Dýrð í dauðaþögn.