Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 38
Hvenær manstu fyrst eftir tískuáhuga þínum? Ég hef alltaf haft gaman af því að klæða mig í skemmtileg föt, var ansi litrík í fatavali sem barn. Hvað hefur þú í huga í hönnun þinni? Hvar fæst hún? Ég skoða mikið tískublöð og finnst gaman að fylgjast með því hvað hönnuðir úti í heimi eru að gera. Ég sest oft niður með það í huga og skissa þær flíkur sem mig langar að gera. En það er rétt byrjunin á ferlinu, næst bý ég til snið, prófa það og bæti nokkrum sinnum þangað til út úr því kemur flíkin sem ég vil fá. En ég hef alltaf þrennt í huga; flíkin verður að vera skemmtileg, þægileg og falleg. Hvers konar föt hannarðu? Mér finnst nauðsynlegt að hver kona finni sjálfa sig í flíkinni, að hún skilji flíkina og hafi gaman af því að klæðast henni. Þá hanna ég flíkur með góðu notagildi og ég elska að gera flíkur sem hægt er að binda á ýmsa vegu og laga að hverjum og einum. Ég vinn líka með allskonar form og leik mér mikið með samsetningar. Hvaðan sækirðu innblástur? Innblásturinn kemur víða að, umhverfið og fólkið í kringum mig. Tískublöð og blogg gefa líka ákveðinn innblástur. En svo ég verði nú bara væmin þá er það eiginlega lífið sjálft sem veitir mér mestan innblástur, þegar gleðin og sköpunarkrafturinn sem bærist í mér sjálfri fær að leika lausum hala fer allt á fullt. Áttu þér eftirlætishönnuði? Já, ég á mér nokkra eftirlætishönnuði. Coco Chanel trónir efst á lista og þá aðallega vegna hugsjóna hennar Alexander McQueen var mikill snillingur sem var virkilega gaman að fylgj- ast með og hönnuðir hjá tískuhúsinu Lanvin gera afar fallegar flíkur. Mér finnst líka mjög gaman að fylgjast með threeASFOUR sem og bARBARA í gONGINI, Munda og Aftur. Litagleði eða svarthvítt? Fer algjörlega eftir skapi og dagsformi. Mér finnst mjög gaman að vinna með fallega liti og elska litríkar flíkur en svarti lit- urinn er bara svo skemmtilegur. Ef þú fengir aðgang að tímavél og þú fengir dag til að versla, hvert færirðu? Ég verð að viðurkenna það að ég lifi í núinu og því gæti ég sleppt tímavélinni og hoppað upp í næstu flugvél til New York. julia@mbl.isGunnhildur Stefánsdóttir leyfir sköpunarkraftinum að leika lausum hala. Á heimasíðunni gammur.is má sjá fatalínu hennar. Morgunblaðið/Golli TEXTÍLKENNARI REKUR VERSLUN Gleði innblástur GUNNHILDUR STEFÁNSDÓTTIR ER KONAN Á BAK VIÐ FATA- MERKIÐ GAMMUR SEM VAKIÐ HEFUR MIKLA ATHYGLI EN HÚN HANNAR LÍNUNA OG REKUR VINNUSTOFU. Mundi er í eftirlæti hjá Gunn- hildi. Gunnhildur myndi fara til New York að versla. Kjóllinn Glaumur eftir Gunnhildi. *Föt og fylgihlutir Þorgrímur Þráinsson og Guðmundur Steingrímsson kjósa gæði en vantar fátt fyrir veturinn »40 Skóhönnuðurinn Tanya Heath vill sanna að konur geti verið í skóm með hælum án þess að skemma í sér fæturna og svar hennar við of- urháum hælum eru skór sem hægt er að skipta um hæl á. Hugmynd hennar er að þegar konur fer að verkja í fæturna á pinnahælunum sé einfaldlega hægt að smella á hnapp í skónum og skipta yfir í þægilegan gönguhæl. Þannig sé til dæmis hægt að njóta sín á dansgólfinu í brúð- kaupinu án þess að fara úr skónum. „Ég er kvenlegur femínisti. Skórnir mínir eru hannaðir til að vera kynþokkafullir en á forsendum kvenna,“ segir Heath í samtali við AFP. „Ég var komin með nóg af því að verkja í fæturna og mig langaði bara alls ekki til að vera í ballerínuskóm,“ sagði hún. Hönnuðurinn hefur eytt þremur árum í rannsóknir en nú loksins er þetta að verða að veruleika. Engum hefur tekist þetta hingað til svo vel fari en hönnun á skóm sem ganga bæði með fjögurra sentimetra hæl og níu sentimetra hæl er auðvitað flókin. Skórnir eru framleiddir í Frakklandi og því ekki ódýrir en þeir kosta í kringum 40 þúsund krón- ur. ingarun@mbl.is Hönnuðurinn lýsir sér sem kvenlegum fem- ínista sem vill gera skó á forsendum kvenna. AFP KOMIN MEÐ NÓG AF ÞVÍ AÐ VERKJA Í FÆTURNA Hælar fyrir hvert tækifæri Það getur komið sér vel að eiga hæl fyrir hvern viðburð. Skórnir breyta um ásýnd þegar nýr hæll er settur undir. Coco Chanel er í eftirlæti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.