Morgunblaðið - 27.10.2012, Page 57
Skárren ekkert, síðar Ske, frá 1992,
var dagskrárgerðarmaður í hluta-
starfi á Ríkisútvarpinu 1998-2005,
vann við almannatengsl á auglýs-
ingastofunni ABX 2002, var blaða-
maður á Fréttablaðinu 2003-2004,
pistlahöfundur þar 2003-2009, dag-
skrárgerðarmaður á Skjá 1 og sjón-
varpsstöðinni Sirkus 2004-2006, að-
stoðarmaður borgarstjóra
2007-2008, sjálfstæður atvinnurek-
andi á sviði textagerðar og hug-
myndasmíði fyrir auglýsingar, al-
mannatengsl og ráðgjöf af ýmsu tagi
á árunum 2004-2009, var vþm. fyrir
Samfylkinguna á Suðvesturlandi frá
2007 og alþm. fyrir Framsóknar-
flokkinn og utanflokka í Norðvest-
urkjördæmi frá 2009, en frá febrúar
2012 er hann alþm., málsvari og for-
maður stjórnmálahreyfingarinnar
Björt framtíð.
Guðmundur var formaður stúd-
entaráðs HÍ 1995-96, fulltrúi í há-
skólaráði 1994-96, sat í stjórn Iceland
Naturally, Norður-Ameríku 2007-
2009, í stjórn Landverndar 2008-
2009, í nefnd um eflingu græna hag-
kerfisins frá 2010, sat í félags- og
tryggingamálanefnd Alþingis 2009-
2011, samgöngunefnd 2009-2011 og
hefur setið í velferðarnefnd frá 2011.
Þá er hann formaður verkefna-
stjórnar um notendastýrða persónu-
lega aðstoð (NPA) fyrir fatlað fólk.
Guðmundur gaf út skáldsöguna
Áhrif mín á mannkynssöguna, útg.
2003, og barnabókina Svínið Pétur,
útg. 2009.
Smíðar, skíði og langhlaup
Áhugamál, Guðmundur?
„Tónlistin og heimspekin eiga allt-
af sinn sess hjá mér en í seinni tíð er
ég farinn að hlaupa – meira að segja
langhlaup. Þá förum við oft á skíði,
t.d. norður á Siglufjörð, Ólafsfjörð og
á Dalvík og svo hefur vaknað hjá mér
áhugi á húsasmíði.
Hermann, afi minn, byggði sum-
arhúsið Klett í Reykholtsdal, í kring-
um 1955, og þar erum við systkinin
að byggja gestahús, og vinnum það
allt sjálf. Arkitektinn teiknar en ég
og aðrir smíðum. Það er skemmti-
legra en mig hafði órað fyrir.“
Fjölskylda
Fyrri kona Guðmundar er Marta
María Jónsdóttir, f. 31.7. 1974,
myndlistarkona. Þau skildu.
Síðari kona Guðmundar er Alexía
Björg Jóhannesdóttir, f. 17.2. 1977,
leikkona, leiðsögumaður og atvinnu-
rekandi. Hún er dóttir Jóhannesar
Björgvins Björgvinssonar, f. 18.12.
1950, lögreglumanns í Búðardal, og
Sigríðar Hafdísar Melsted, f. 20.8.
1951, húsfreyju.
Sonur Guðmundar og Alexíu
Bjargar er Jóhannes Hermann, f.
4.3. 2009.
Dóttir Guðmundar og Sigríðar
Livar Ellingsen er Edda Liv, f. 26.3.
2004.
Alsystkini Guðmundar eru Her-
mann Ölvir, f. 25.8. 1964, verkfræð-
ingur hjá Marel; Hlíf, f. 22.7. 1966,
yfirlæknir við Landspítalann.
Hálfsystkini Guðmundar, sam-
feðra, eru Jón Bryan, f. 23.10. 1951,
arkitekt og vélaverkfræðingur í
Readwood City í Kaliforníu; Ellen
Herdís, f. 6.11. 1955, húsmóðir í Flór-
ída; Neil, f. 16.12. 1957, tannlæknir á
Miami.
Foreldrar Guðmundar: Stein-
grímur Hermannsson, f. 22.6. 1928,
d. 1.2. 2010, verkfræðingur, alþm. og
forsætisráðherra, og Guðlaug Edda
Guðmundsdóttir, f. 21.1. 1937, hús-
freyja, ritari og flugfreyja.
Úr frændgarði Guðmundar Steingrímssonar
Guðmundur
Steingrímsson
Hlíf Böðvarsdóttir
frá Laugarvatni
Guðmundur Gíslason
skólastjóri á Reykjum í Hrútafirði
Edda Guðmundsdóttir
húsfr. í Garðabæ
Guðlaug Þorsteinsdóttir
húsfr. á Ölfusvatni
Gísli Þórðarson
b. á Ölfusvatni í Grafningi
Margrét Þorláksdóttir
bróðurdóttir Sæmundar, langafa Tóm-
sar útgerðarm.og Guðlaugs ríkissát-
tasemjara Þorvaldssonar frá Grindavík
Steingrímur Guðmundsson
byggingameistari í Rvík
Vigdís Steingrímsdótir
húsfr. í Rvík
Hermann Jónasson
forsætisráðherra
Steingrímur Hermansson
forsætisráðherra
Jónas Jónsson
b. og smiður í
Syðri-Brekkum í Skagafirði
Pálína
Hermansdóttir
húsfr. í Rvík
Hermann Sveinbjörnsson
sérfræðingur í
umhverfisráðuneytinu
Pálína Björnsdóttir
ljósmóðir
Anna Jónsdóttir
húsfr. í Hofsstaðaseli
Björn Símonarson
kennari á Hólum í
Hjaltadal
Sigurður Björnsson
fyrrv. bæjarverkfr. í
Kópavogi
Böðvar Magússon
hreppstj. og óðalsb.á Laugarvatni
Guðrún
Magnúsd
húsfr.
Ragnheiður
Jónsd.
rithöfundur
Brynjólfur
Eyjólfsson
b. í Miðhúsum í
Biskupstungum
Eyjólfur
Brynjólfsson,
verkam. í Rvík
Ásdís
Eyjólfsdóttir,
skattafulltr.
í Rvík
Víglundur
Þorsteinsson,
fyrrv. forstj. BM
Vallá
Ingunn Eyjólfsdótti
húsfr. á Laugarvatni
ÍSLENDINGAR 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
Emil fæddist í Hafnarfirði27.10. 1902. Foreldrar hansvoru Jón Jónsson, múr-
arameistari þar, og k.h., Sigurborg
Sigurðardóttir húsfreyja. Eiginkona
Emils var Guðfinna Sigurðardóttir
húsfreyja og eignuðust þau sex
börn.
Emil lauk stúdentsprófi frá MR
1919 og verkfræðiprófi í Höfn 1925.
Hann var verkfræðingur í Dan-
mörku að námi loknu, var bæj-
arverkfræðingur Hafnarfjarðar
1926-30, bæjarstjóri 1930-37, vita-
og hafnamálastjóri 1937-44 og 1949-
57 og bankastjóri Landsbankans
1957-58.
Emil var einn af Hafnarfjarð-
arkrötunum, dæmigerður verkfræð-
ingur, þótti sérstaklega prúðmann-
legur, yfirvegaður og hægur í
framkomu og traustur í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur. Hann sat
á Alþingi frá 1934-71, ýmist fyrir
Hafnarfjörð eða landskjörinn, en var
síðan þingmaður Reykjaness frá
1959.
Emil var formaður Alþýðuflokks-
ins á árunum 1956-68. Hann var
samgönguráðherra í Nýsköp-
unarstjórninni 1944-47, var sam-
göngu- og viðskiptamálaráðherra í
þjóðstjórninni Stefaníu til ársloka
1949, var utanríkisráðherra í for-
föllum í Vinstri stjórninni haustið
1956, en annars forseti Sameinaðs
þings 1956-58.
Emil varð forsætis-, sjávarútvegs-
og samgöngumálaráðherra í minni-
hlutastjórn Alþýðuflokksins sem
sjálfstæðismenn vörðu falli í árslok
1959, var þá skipaður sjávarútvegs-
og félagsmálaráðherra í Viðreisn-
arstjórninni og fór með þau ráðu-
neyti þar til hann varð utanrík-
isráðherra 1965. Það ráðuneyti fór
hann með út Viðreisnartímann eða
fram á sumar 1971.
Emil stofnaði Iðnskóla í Hafn-
arfirði 1926 og var skólastjóri hans
til 1944, bæjarfulltrúi þar 1930-62,
sat í Norðurlandaráði, Þingvalla-
nefnd, í bankaráði Seðlabankans
1968-72 og sat í stjórnarskrárnefnd.
Endurminningar Emils, Á milli
Washington og Moskva, komu út
1973. Hann lést 30.11. 1986.
Merkir Íslendingar
Emil
Jónsson
Laugardagur
85 ára
Guðmundur Magnússon
80 ára
Berta Vilhjálmsdóttir
Kristín Bjarnadóttir
Sigurður Hólm Gestsson
75 ára
Rafn Valgeirsson
Rose Marie Christiansen
Sigþór Jónsson
Sverrir Guðmundsson
Þórarinn Ólafsson
70 ára
Bettý Jóhannsdóttir
Jóhann Þóroddsson
Jón Eyjólfur Sæmundsson
Jón Sigurðsson
Kristján Jónsson
Ólafur Dan Snorrason
Sara H. Björk
Kristjánsdóttir
Valbjörg Jónsdóttir
Þorbjörg Henný Eiríksdóttir
60 ára
Guðjón Knútsson
Guðrún Cortes
Ólafur Sigurgeirsson
Símon Ólafsson
Stefán Jóhannesson
Steinn Guðmundur
Ólafsson
Sumarliði Jónsson
Tadeusz Szturo
Þorvaldur Finnbjörnsson
50 ára
Árni Hrólfur Helgason
Bryndís Sigríður
Halldórsdóttir
Dagný Dóra Gunnarsdóttir
Edward G. Benediktsson
Eggert Már Marinósson
Gunnlaugur Bogason
Hanna Mjöll Fannar
Steinarr Magnússon
Sveinn Hólm Sveinsson
40 ára
Ágúst Þórhallsson
Ástgeir Kristjánsson
Bjarnveig Steinunn
Steinsdóttir
Björg Hjartardóttir
Einar Guðni Jónsson
Erla Björg Guðrúnardóttir
Fríða Margrét Friðriksdóttir
Gunnar Reyr Sigurðsson
Harpa Björnsdóttir
Hugi Guttormsson
Ingibjörg Ævarsdóttir
Júlíus Kristófer Eggertsson
Katrín Ingvadóttir
Kristín Rósa Ármanns-
dóttir
María Albína Tryggvadóttir
Muhamad Suhendar
Páll Kristinsson
Ragnhildur Guðrún
Baldursdóttir
Sabina Victoria
Reinholdsdóttir
30 ára
Andrea Diljá Ólafsdóttir
Björn Unnar Valsson
Dagbjört Jónsdóttir
Helga Rúna Þorsteinsdóttir
Hilda Thordarson
Jón Halldór Arnarson
Karl Jóhann Hafliðason
Rebekka Hrund Gylfadóttir
Thanh Thuy Le
Þórhallur Gunnarsson
Sunnudagur
85 ára
Axel Þorsteinsson
Guðrún S. Einarsdóttir
Clausen
80 ára
Ágúst Nilsson
Bjarney Sighvatsdóttir
Garðar Ingi Jónsson
Guðjón Heiðar Jónsson
Hafþóra Bergsteinsdóttir
Sigurður Guðmundur
Jónsson
Valur E. Ásmundsson
75 ára
Bogga Sigfúsdóttir
Guðlaug Gísladóttir
Gunnar Gunnarsson
Margrét Hagalínsdóttir
70 ára
Elínborg Jónsdóttir
Guðný Bernhard
Guðrún Pálsdóttir
Óskar Gunnarsson
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Örn Helgi Steingrímsson
60 ára
Arnar F. Sigurþórsson
Eyþór Benediktsson
Guðmar Finnur
Guðmundsson
Guðni Már Brynjólfsson
Halla Ingibjörg
Guðmundsdóttir
Hallgrímur Gunnarsson
Jóhanna Björnsdóttir
Lilja Jónsdóttir
Rúnar Ragnarsson Woods
Steinunn Óskarsdóttir
Sævar Benediktsson
Vilhjálmur V. Ragnarsson
50 ára
Adam Boguslaw Niewada
Anna Margrét
Hálfdánardóttir
Arngunnur Ýr Gylfadóttir
Ágústa Rósa
Finnlaugsdóttir
Björk Þórisdóttir
Costel Konstantin
Magureanu
Eva Kristjánsdóttir
Garðar Örn Úlfarsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Gunnlaugur B. Ólafsson
Hafsteinn Hafsteinsson
Jóhann Youyi Xiang
Kolbrún Reynisdóttir
Sigurður Ólafur
Steingrímsson
Svandís Ósk Stefánsdóttir
Vilborg Hafsteinsdóttir
40 ára
Erla Dröfn Baldursdóttir
Hanna Sólrún Antonsdóttir
Inga Ævarsdóttir
Jóhannes Bragi
Þórarinsson
Magnús Ágúst Sigurðsson
Númi Jónsson
Robert Szablowski
Ruth Jakobsdóttir
30 ára
Agnieszka Majewska
Arndís Erla Jónsdóttir
Baldvin Þór Guðmundsson
Björgvin Kristinn
Sigvaldason
Böðvar Sigurbjörnsson
Fáfnir Árnason
Guðmundur Fannar
Sigurbjörnsson
Gunnlaugur Dan
Hafsteinsson
Helga Gunnarsdóttir
Hjördís Ýr Ólafsdóttir
Jóhann Geir Jónsson
Marcin Zbrzezny
María Sigurjónsdóttir
Óli Valur Þrastarson
Viktoría Unnur
Viktorsdóttir
Þuríður Elírós Eiríksdóttir
Til hamingju með daginn
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir gluggana
á einum stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp