Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012
Löng hefð er fyrir því hér á landi
að ræða málin í heita pottinum.
Ekkert er pottverjum óviðkom-
andi, engin mál eru of stór eða lítil
til að fara yfir meðan við látum
amstur dagsins líða úr okkur í hit-
anum. Margir vilja meina að í
pottunum fari hin raunverulega
umræða fram, þar renni sannleik-
urinn niður bláar mósaíkflísarnar,
spekin flæði í álíka stríðum
straumum og heita vatnið og nið-
urstaða náist í erfiðum átaka-
málum.
Í blaði dagsins er rætt við Svav-
ar Gestsson, fyrrverandi ráð-
herra, sem gefur út sjálfsævisögu
fyrir jólin sem án efa hefur verið
rædd í einhverjum heitu pottanna
á undanförnum vikum.
Kári Stefánsson ræðir um ný-
lega sölu á deCode Genetics, en
fyrirtækið hefur í gegnum tíðina
verið efni í ófáar rimmur í heita
pottinum.
Unnsteinn Manúel Stefánsson,
forsprakki Retro Stefson, gerir
frelsi sem hann upplifir við það að
búa í Þýskalandi að umtalsefni í
viðtali. Hann upplifir sig frjálsari í
Berlín en í Reykjavík, þar sé eng-
inn að pæla í því hverju hann
klæðist, ólíkt því sem hann uplifir
hér heima. Í Berlín geti hann
klæðst kjól án þess að fá at-
hugasemdir. Hann talar líka um
deilur og átök sem fylgi því að
vera nálægt öðru fólki í langan
tíma, t.d. inni í stúdíói. Deilur séu
skapandi en stundum þurfi að
taka hlé, fá frið.
Vangaveltur hins unga tónlist-
armanns kveikja hugmynd sem
hér er varpað til þeirra sem reka
sundlaugar. Hvernig væri að hafa
einn friðarpott? Í hverri sundlaug
væri einn pottur þar sem ekkert
væri rætt, engin átök leyfð, þögn-
in fengi að ríkja og einu sam-
skiptin milli pottverja væru að
skiptast á brosi. Hver og einn
fengi frið með sínum hugsunum.
RABBIÐ
Friðarpottur
Eyrún Magnúsdóttir
Á þessum árstíma eru íslenskir tónlistarmenn sennilega jafn víða á ferð og jólasveinarnir þrettán og gleðja landsmenn ekki síður og jafnvel frekar; ekki
hefur í það minnsta enn heyrst af tónlistarmanni sem aðeins býður hlustendum sínum, hvaða kynslóð sem þeir tilheyra, upp á kartöflu. Systkinin Ellen og
Kristján (KK) Kristjánsbörn héldu tvenna aðventutónleika í vikunni ásamt hljómsveit og góðum gestum, fyrst í Hörpu í Reykjavík á miðvikudag og síðan í
Hofi á Akureyri á fimmtudagskvöldið. Jólin eru að koma, sungu þau meðal annars, enda nálgast þau óðfluga. Systkinin hafa haldið slíka tónleika síðustu ár,
ýmist tvö ein eða með hljómsveit, við góðan orðstír. Tónlistin sem þau buðu upp á nú var að mestu lágstemmd og yndislega falleg, útsett af Eyþóri
Gunnarssyni, hljómborðsleikara og eiginmanni Ellenar, þótt stöku sinnum hafi verið hleypt á skeið. Myndin er tekin í Hofi. skapti@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
JÓLIN ERU AÐ KOMA
TÓNLIST ER EIN MIKILVÆGRA STOÐA HVERS SAMFÉLAGS. ÞEIR ERU AÐ MINNSTA KOSTI VARLA MARGIR SEM
GETA HUGSAÐ SÉR LÍF ÁN TÓNLISTAR AF EINHVERJU TAGI – FJÖLDI FÓLKS VARLA EINN EINASTA DAG.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Körfubolti kvenna.
Hvar? Á heimavelli Vals.
Hvenær? Á laugardag kl. 14.
Nánar: Liðin eru í fjórða og sjöunda
sæti Úrvalsdeildar kvenna.
Valur - Njarðvík
Hvað? Jólatónleikar
Sinfóníunnar.
Hvar? Í Hörpunni.
Hvenær? Laugardag
og sunnudag kl. 14 og
16 báða dagana.
Jólatónleikar
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvar? Á Gljúfrasteini.
Hvenær? Á sunnudaginn kl. 16.
Nánar: Stefán Pálsson, Vilborg Davíðs-
dóttir, Huldar Breiðfjörð og Kristín
Steinsdóttir.
Rithöfundar lesa upp
Hvað? Jólasaga sögð.
Hvar? Í Ásmund-
arsafni.
Hvenær? Sunnudag-
inn kl. 14.
Nánar: Guðrún Ás-
mundsdóttir leikkona
segir skemmtilega jólasögu í fylgd
tveggja engla, sem er um Grýlu, jóla-
sveinana og engla sem flytja guð-
dómlega tónlist fyrir gestina.
Jól í Kallafjöllum
Hvað? Leiksýning fyrir 12 ára og yngri.
Hvar? Í Þjóðleikhúsinu.
Hvenær? Laugardag og sunnudag kl.
11, 13 og 14.30.
Leitað að jólunum
Hvað? Leikrit um sjóræningja.
Hvar? Í Borgarleikhúsinu.
Hvenær? Kl. 14.00 á sunnudaginn.
Sjóræningjajól
* Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson