Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Side 16
Ferðalög og flakk*Seattle státar af bókabúð sem jafnan vekur aðdáun ferðalanga sem sækja borgina heim »18 Með tónlist í eyrunum og með trefilinn upp fyrir nef. Húfan nær eins langt niður á andlit og hægt er án þess að ég missi sjónina. Það eru -10° og ég sé ekki trén sem eru hinumeginn við veginn. Fyrsti snjóstormur vetrarins er kominn til Stokkhólms. Þvílík hamingja. Það er ekkert skemtilegra en að þeytast um götur borgarinnar og þykjast vera að flýja óveðrið. Nokkrum klukkutímum síðar er bylurinn liðinn og allt er hvítt. Ég er að labba í strætó og rafmagnið er farið af mínum hluta bæj- arins. Allt er dimmt. Enginn er á ferli, en klukkan er ekki nema sex. Mér líður eins og Palla sem var einn í heiminum. Aldrei hef ég séð fegurri borg on Stokkhólm í vetrarklæðum sínum. Vala Pétursdóttir, nemi í Stokkhólmi. Vala og félagar bregða á leik í snjónum í verslunargötu í miðbæ Stokkhólms. Strætó gengur áfram þótt snjói. Sænskur snjóstormur Svíar flykkjast á skauta í kuldanum. PÓSTKORT F RÁ STOKKHÓ LMI V erkfræðingurinn Ari Pálmar Arnalds er mikill rokkhundur og hefur farið á fjölda tónlistarhátíða í Evrópu. Árið 2008 fór hann á eftirminnilega rokkhátíð að nafni Rock im park í Þýskalandi, nánar tiltekið í Nürnberg. „Við fórum þangað þrír félagar og tjölduðum á góðum stað uppi á hæð, eða hól en fyrir neðan okkur var nokkuð stór laut. Síðan kom mígandi rigning og tjöld allra sem voru í lautinni fyrir neðan okkur hurfu í þessari líka ágætu tjörn sem myndaðist. Við það batnaði útsýni okkar töluvert. Á hátíðinni hittum við marga kynlega kvisti. Eftirminnilegur er Dani einn sem hóf samskipti sín við okkur á því að segja okkur frá því að hann hefði einu sinni reykt sjö jónur á einum vinnudegi og karakter þessa manns var eftir því. Á svona hátíðum tíðkast einhverra hluta vegna að kveikja í tjöldum, oftast undir lok hátíðar. Þessi ágæti Dani var helst til hvatvís og ákvað að kveikja í tjaldinu sínu á fyrsta degi. Á hátíðinni fór ég meðal annars á Prodigy-tónleika og þar ákvað ég að leyfa áhorfendum að bera mig á höndum sér. Um leið hélt ég á peysu minni og jakka. Þessar flíkur sá ég aldrei aftur, en meðal annars var um að ræða þennan forláta lillabláa vaxjakka sem ég sé mikið eftir. Við sáum Metallicu, Incubus, Queens of the Stone Age og Rage Ag- ainst the Machine til þess að nefna nokkrar hljómsveitir. Tónleikar síð- astnefndu hljómsveitarinnar voru sérstaklega eftirminnilegir þar sem tónlist þeirra skipaði stóran sess á uppvaxtarárum mínum. Þeir höfðu engu gleymt frá því ég sá þá í Kaplakrika árið 1992, 12 ára gamall. Hátíðin gekk svo til snurðulaust fyrir sig og skemmtum við okkur konunglega. Einn skugga bar þó lokadaginn. Þegar við vorum í þann mund að taka dótið okkar saman kom þar aðvífandi fyrrnefndur Dani og kastaði að okkur einhvers konar flöskusprengju sem eyðilagði tjald- ið okkar. Beint af hátíðinni tók ég svo næturlest til Trier í vinnuferð. Illa lykt- andi og ógeðslegur mætti ég á fund með herramönnum sem vissu ekki hvert þeir ætluðu þegar þeir sáu þetta flak mæta, en það var vel þess virði,“ segir Ari. ARI PÁLMAR ARNALDS FÓR Á ROKKHÁTÍÐ Rokk og ról upp á hól ARI PÁLMAR ARNALDS ER MIKILL AÐDÁANDI TÓNLISTARHÁTÍÐA. HANN DEILIR HÉR UPPLIFUN SINNI AF ROKKHÁTÍÐ Í ÞÝSKALANDI. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ari hefur viðurnefnið Ari rokk en eins og sjá má hefur hann gaman af því að gera kjánalega hluti.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.