Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012
Heilsa og hreyfing
Þ
að var gaman að þekkja þig, Krist-
inn minn,“ segi ég við Kristin
Ingvarsson ljósmyndara áður en
hann heldur út á ísinn með liðs-
mönnum í Brunavarðafélagi Reykjavíkur.
„Sömuleiðis,“ svarar hann. „Þú skrifar
kannski eitthvað fallegt um mig.“
Kristinn stillir sér upp við annað markið,
til að ná myndum úr sem mestu návígi, og
leikurinn hefst. Ekki er að sjá að íshokkí-
leikararnir haldi aftur af sér. Ég hef í
raun og veru áhyggjur af Kristni þarna í
hringiðunni, það sem þeir leggja ekki á sig
þessir ljósmyndarar. „Ég hefði líklega átt
að vera með hjálm,“ segir hann eftir á,
sloppinn heilu og höldnu, „en á móti kem-
ur að hefði eitthvað komið upp á gat ég
varla verið í betri höndum.“
Það er mánudagsmorgunn og Bruna-
varðafélag Reykjavíkur, íshokkílið Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins, er mætt á æf-
ingu í Skautahöllinni í Laugardal. Þá
fyrstu af þremur í vikunni.
Ævintýrið hófst snemma á síðasta ári en
þá skoraði Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu á slökkviliðsmenn í íshokkí í tilefni af
mottumars. „Það var mjög drengilegt af
þeim að skora á okkur með tveggja daga
fyrirvara,“ segir Helgi Finnbogason, einn
slökkviliðsmanna, glottandi. „Þeir búnir að
æfa stíft en aðeins þrír eða fjórir hjá okk-
ur sem stóðu á skautum, hvað þá meira.“
Vilja að löggan stofni lið
Slökkviliðið vék sér þó ekki undan áskor-
uninni og mætti í leikinn. Það varð söguleg
rimma. „Við töpuðum,“ rifjar Helgi upp en
harðneitar að fara frekar út í þá sálma.
En áhuginn hafði kviknað og slökkviliðs-
menn ákváðu að setja saman lið. Tæplega
fjörutíu manns mæta nú reglulega á æfing-
ar Brunavarðafélags Reykjavíkur, mest
slökkviliðsmenn en einnig þrír lögreglu-
menn, tveir frá landhelgisgæslunni og einn
fangavörður. Og nei, sá síðastnefndi hefur
ekki bara það hlutverk að standa yfir þeim
sem sendir eru í skammarkrókinn!
Ísinn brennur!
FÉLAGAR Í SLÖKKVILIÐI HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS BYRJUÐU
FYRIR HREINA TILVILJUN AÐ IÐKA ÍSHOKKÍ Í FYRRA, LÖGREGLAN
SKORAÐI Á ÞÁ Í LEIK Í TILEFNI AF MOTTUMARS. NÚ ER ÆFT ÞRISVAR
Í VIKU OG STEFNAN SETT Á HEIMSLEIKA LÖGREGLU- OG
SLÖKKVILIÐSMANNA Í BELFAST Á NÆSTA ÁRI.
Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Hvergi er gefið eftir á
æfingum enda enginn
annars bróðir í leik.
Merki félagsins.
Handbókin Frábær eftir fertugt eftir
Jónu Ósk Pétursdóttur er komin út
hjá bókaútgáfunni Sölku. Í bókinni
fjallar Jóna Ósk á opinskáan hátt um
líkamlega og andlega heilsu kvenna
á breytingaskeiði.
„Ég er sjálf handbókasjúk og hef
alltaf átt margar handbækur fyrir
hvert stig lífsins, það er kynþrosk-
ann, getnað, meðgöngu, fæðingu,
uppeldið og svo framvegis. Svo þeg-
ar ég fór að leita að íslenskri bók
fyrir konur eftir fertugt þá var bara
ekkert til fyrir mig, þannig að ég
varð bara að skrifa hana sjálf,“ segir
Jóna Ósk.
„Á undanförnum árum hafa kom-
ið út margar bækur fyrir unglings-
stelpur, sem fjalla um það hvernig
þær eru að breytast. Mér finnst
ótrúlegt að það hafi ekki verið til
bók fyrir konur sem eru að ganga í
gegnum þetta lífsskeið,“ segir hún
og útskýrir nánar: „Bókin tekur fyr-
ir allt það sem tengist því að eldast,
ekki bara breytingaskeiðið heldur
það sem fylgir því að vera yfir fer-
tugt.“
Viska og þroski
Í bókinni er talað við konur sem eru
á þessu umrædda skeiði. „Það var
erfitt fyrir mig að finna réttu kon-
urnar til að tala við, það eru ekki
allar tilbúnar til að opna sig, þetta er
viðkvæmt málefni og líka víðfeðm-
ara en ég hafði gert mér grein fyrir,“
segir hún en þess má geta að í bók-
inni er líka sér kafli fyrir makann.
„Það getur verið viðkvæmt fyrir
þá að konan sé komin á breyt-
ingaskeiðið því það er líka staðfest-
ing á því að þeir séu að eldast.“
Jóna Ósk verður 48 ára í janúar.
„Ég kveið því svakalega að verða
fertug en svo áttaði ég mig á því
svona tveimur árum síðar að margt
gott fylgdi aldrinum, eins og viska
og þroski.“
Allt er fertugum fært? „Já, það er
hverju orði sannara. Ef við horfum í
kringum okkur og sjáum konurnar
sem eru í toppstöðum í þjóðfélag-
inu, þær eru allar yfir fertugt,“ segir
hún.
Öll fjölskyldan undir
„Þetta er bók fyrir eldri stelpur, við
þurfum ekkert síður á svona bók að
halda en unglingsstelpur. Það er
meira í gangi hjá okkur og öll fjöl-
skyldan jafnvel undir. Þetta snýr
ekkert bara að okkur konunum.“
ingarun@mbl.is
FRÁBÆR EFTIR FERTUGT
Bók fyrir eldri stelpur
Jóna Ósk Pétursdóttir
* Kannanir sýna fram á að meðalaldur kvenna á
breytingaskeiði í iðnríkjum
heimsins er rúmlega 51 ár.
* Meðalaldur kvenna þegar breytingar byrja er
47 og hálft ár.
* Dæmigerður aldurkvenna sem eru á einhverju
tímabili breytingaskeiðs
er 40-58 ár.
* Dæmigerð tímalengdbreytinganna er tæp sex ár.
* Möguleg tímalengdbreytinganna getur verið
eitt til tólf ár.