Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Page 24
F
jallapúðarnir frá Markrúnu eru
skemmtileg hönnun Leópolds Krist-
jánssonar og Steinunar Arnardóttur.
Parið er búsett í Berlín og er hver
púði handgerður. „Þetta byrjaði sem jóla-
gjafahugmynd í fyrra,“ segir Steinunn. Inn-
blásturinn að púðunum kemur frá listaverk-
um Stórvals, Stefáns Jónssonar frá
Möðrudal, en hann málaði Herðubreið marg-
oft. „Við höfum verið miklir aðdáendur hans
í gegnum tíðina,“ segir hún og bætir við að
Herðubreið sé „drottning íslenskra fjalla“.
„Okkur fannst fyndið að gera sama hlut-
inn aftur og aftur. Við vorum búin að gera
slatta fyrir seinustu jól,“ segir Leópold en
síðan þá hefur framleiðslan komist á næsta
stig en þetta er enn sannkallaður heimilis-
iðnaður. „Við gerum þetta allt sjálf, allavega
enn sem komið er,“ segir Steinunn en parið
er búsett í hverfinu Friedrichshain í Berlín
og kann afskaplega vel við sig þar sem lista-
lífið blómstrar.
Leópold útskrifaðist með BS-gráðu í arki-
tektúr frá TU Berlín í haust og vinnur nú
sjálfstætt við gerð þrívíddarteikninga. Stein-
unn er í fullri vinnu sem hljóðverkfræðingur.
Þau langar til að gera meira með Mark-
rúnu og ekki ólíklegt að fleiri gripir líti
dagsins ljós. Þau einbeita sér þó að púð-
unum sem stendur enda nóg að gera í
vinnu.
Hérlendis fást púðarnir í Postulínsvirkinu
á Laugavegi og í Kaffifélaginu á Skólavörðu-
stíg. Ennfremur fást þeir í verslun í Berlín
og Kaupmannahöfn og „einhverjar fleiri búð-
ir eru að fara að bætast við“.
Samvinnan gengur vel. „Við höfum engin
föst hlutverk í rauninni,“ segir Steinunn.
„Við fáum hugmynd og köstum henni á
milli,“ segir Leópold. „Þessi vinna er svo
gott mótvægi við tölvuvinnuna sem við er-
um í.“
Púðarnir verða líka til
sölu á næsta Pop-
Up-markaði í
Hörpu, 22. og 23.
desember. Þau
koma til Íslands
rétt fyrir jólin
og munu sjálf
standa vakt-
ina á Þor-
láks-
messu.
Púðarnir fást í þremur stærð-
um og mörgum litum og er
skemmtilegt að raða mis-
munandi stærðum saman.
HEIMILISIÐNAÐUR Í BERLÍN
Fjallmyndarlegir
púðar
PÚÐARNIR FRÁ MARKRÚNU BYRJUÐU SEM JÓLAGJAFAHUGMYND FYRIR
FJÖLSKYLDU OG VINI EN HAFA NÚ FENGIÐ SJÁLFSTÆTT LÍF.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Leópold Kristjánsson og
Steinunn Arnardóttir eru
fólkið á bak við púðana.
Herðubreið
er „drottning
íslenskra
fjalla,“ segir
Steinunn.
*Heimili og hönnunLifandi blóm eru fyrirtaks efni í jólaskreytingar og ekki spillir að hafa smá glimmer með »26