Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 34
É
g er mikill safnari þegar kemur að hljóðfærum og á t.d. fjölmarga gítara, fullt af
orgelum, rafmagnspíanóum og trommusettum. Nú hefur safnarinn í mér líka tekið
upp á því að safna nokkru sem hér áður mátti ekki sjást inni í hljóðverinu mínu –
nýjasta æðið er sem sagt hljóðgervlar,“ segir Kiddi og slær á létta strengi.
Eins og gefur að skilja taka uppáhaldsgræjur Kidda töluvert mið af starfsvettvangi hans,
þ.e. tónlistinni. Auk þess að standa á sviði ýmist með Hjálmum, Memfismafíunni, Baggalúti
eða öðrum böndum hefur hann verið iðinn við að stýra upptökum á ófáum plötum annarra
listamanna í hljóðverinu Hljóðrita þetta árið. Má þar nefna plötur með tónlistarmönnum eins
og Ásgeiri Trausta, SJS Big Band, Magnúsi og Jóhanni, Hjálmum og fleirum. Fylgir slíkri
vinnu oftar en ekki áhugi á græjum á borð við míkrófóna, stúdíóhátalara og önnur tónlistar-
tengd tæki sem nauðsynleg eru.
Heimilisgræjurnar eru þó ekki með öllu undanskildar enda létta þær löngum lífið. Rata
bæði glæný uppþvottavél og blandari á græjulista Hjálmsins. Gefur hann
m.a. uppskrift að ís úr blandara sem hann skellir í reglulega
til að gleðja fjölskylduna. Verður annars að telj-
ast líklegt að takmörkuð þörf sé fyrir
slíkt á næstunni. Forskot var nefnilega
tekið á jólin á heimili Kidda í vikunni
sem leið en hann varð pabbi í þriðja
sinn þegar lítill drengur kom í heim-
inn. Fá hamingjuóskir að fljóta hérna
með til fjölskyldunnar.
Gibson SG Junior
Frá upphafi Hjálma notaði ég
alltaf Gibson Les Paul Light sem
ég keypti af Erlingi Björnssyni í
Hljómum. Í einni ferðinni til
Noregs brotnaði gítarinn í flugi.
Þessi gítar var í miklu uppáhaldi
hjá mér, því lét ég líma hann
saman. Í næstu ferð og það aftur
til Noregs brotnaði hann aftur!
Eftir þessa reynslu ákvað ég að
fara til New York með alla pen-
ingana mína og kaupa mér nýjan
uppáhaldsgítar. Fyrir valinu varð
Gibson SG Junior 1964.
Mini Moog - Model D
Áhuginn á hljóðgervlum
hófst fyrir u.þ.b. einu ári
og síðan þá hef ég komið
mér upp dágóðu safni.
Nýjasti gripurinn þar er
Mini Moog - Model D
sem ég keypti á eBay fyrir
þremur vikum. Ég hef ekki
notað hann mikið enn
sem komið er en hann á
örugglega eftir að setja
svip sinn á næstu plötur
sem ég mun vinna að.
Neumann U47
Draumur allra hljóðmanna
er að eignast konung
míkrófónanna, Neumann
U47. Þessi tegund var
framleidd á árunum 1949
- 1965. Ég keypti minn
notaðan á netinu fyrir um
ári, vitandi það að mögu-
lega væri hann ekki í full-
komnu ástandi. Þegar ég
loksins fékk hann til lands-
ins var eiginlega allt að
honum, lampinn farinn og
membran illa leikin. Þar
sem þetta er míkrófónn
frá sirka 1950 er ekki
hlaupið að því að fá vara-
hluti í hann en eftir mikið
vesen og óheyrilegan
kostnað er hann fyrst
núna kominn í fullkomið
stand og uppi stend ég
með sannkallaðan konung.
Siemens-uppþvottavélin
Ég keypti þessa elsku fyrir stuttu
og hefði aldrei trúað því hvað ég
gæti elskað uppþvottavél mikið.
UPPÁHALDSGRÆJUR KIDDA HJÁLMS
Elskar
uppþvottavélina
GUÐMUNDUR KRISTINN JÓNSSON, BETUR ÞEKKTUR SEM KIDDI HJÁLMUR,
HEFUR Í MÖRG HORN AÐ LÍTA. EKKI AÐEINS ER JÓLATÓNLEIKATÖRNIN
Í FULLUM GANGI HELDUR FÆDDIST HONUM EINNIG SONUR Í VIKUNNI.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
KitchenAid-blandarinn
Ég nota hann óspart til að gleðja
fjölskylduna með Maríu-ís:
1½ l vanilluís (Mjúkís frá Kjörís)
1 dl frosin hindber
50 g 56-70% súkkulaði
dass af mjólk
-Öllu skellt í blandarann sem sér
svo um rest.
Adam S3X
Ég hef átt marga stúdíóhátalara í
gegnum tíðina. Ég var alltaf leit-
andi og prufandi nýjar tegundir en
eftir að ég fékk þessa hef ég ver-
ið sáttur. Ég stefni að því að
kaupa mér risa Adam-hátalara á
næsta ári. Þá verður hægt að
blasta í Hljóðrita í Hafnarfirði.
*Græjur og tækniAð hverju var mest leitað á netinu á árinu og um hvað var mest talað á samskiptavefjum? »36