Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012
Markaskorarar eru íbrennidepli um þessarmundir. Messi hinn arg-
entínski, Messías fótboltans, setti
heimsmet þegar hann gerði 86.
mark sitt á árinu og hinn „heitasti“
leikmaður Evrópu í vetur, Falcao
hjá Atletic Madrid, gerði fimm
mörk í leik nýverið.
Ekki ætla ég að líkja Atla Eð-
valdssyni við þessar kempur en
vert er að rifja upp þegar hann
gerði fimm mörk í leik.
Eftir að Messi bætti met Gerds
Müllers hefur hann skorað tvö til
og á enn tvo leiki eftir á árinu. Því
er nú haldið fram að áður hafi leik-
maður gert fleiri mörk á einu ári í
gamla daga en það hefur ekki verið
staðfest og verður því látið liggja á
milli hluta að þessu sinni.
Enginn efi er hins vegar á afreki
Atla. Höfundur þessa pistils var
viðstaddur og marktækt vitni!
Atli var sannarlega maður dags-
ins í Vestur-Þýskalandi laugardag-
inn 4. júní 1983. Eintracht Frank-
furt var í heimsókn í síðustu
umferð deildarkeppninnar og leik-
urinn skipti í sjálfu sér engu máli.
En Atla var ekki sama; gaf tóninn
snemma og linnti ekki látum fyrr
en með fimmta markinu skömmu
fyrir leikslok.
Strax að loknum þessum eftir-
minnilega leik stigu Atli, Pétur
Ormslev, sem einnig lék með For-
tuna, Helgi Daníelsson, formaður
landsliðsnefndar, og þrír íslenskir
blaðamenn upp í flugvél Arnarflugs
og héldu heim á leið undir dyggri
stjórn Arngríms Jóhannssonar
flugstjóra. Og til að kóróna frá-
bæra frammistöðu á laugardeg-
inum skoraði Atli í 1:0-sigri Íslands
gegn Möltu í undankeppni EM.
Sannarlega maður helgarinnar í ís-
lenskum fótbolta.
Landsliðsmiðherjinn Rudi Völler
varð markakóngur í Vestur-
Þýskalandi þennan vetur, gerði 23
mörk, Atli og Karl Allgöwer, sam-
herji Ásgeirs Sigurvinssonar hjá
Stuttgart, gerðu 21 og Karl-Heinz
Rummenigge hjá Bayern 20.
Dieter Müller er sá leikmaður
sem hefur gert flest mörk í einum
leik í þýsku deildarkeppninni.
Hann skoraði sex sinnum fyrir 1.
FC Köln í leik gegn Werder Brem-
en (7:2) árið 1977.
Tólf leikmenn hafa gert fimm
mörk í einum og sama leiknum í
þýsku deildinni. Einn þeirra, hinn
ótrúlegi Gerd Müller sem mikið
hefur verið í fréttum undanfarið,
afrekaði það fjórum sinnum með
Bayern München; fyrst 1972, þá
1973 og síðan tvisvar árið 1976.
Meðal annarra eru Karl-Heinz
Thielen (sem varð fyrstur til þess,
með Köln 1973), Jupp Heinckes,
Manfred Burgsmüller, Dieter Hön-
eß og Jürgen Klinsmann.
Atli Eðvaldsson var stöðugt ógnandi í leiknum eftirminnilega 1983. Eins og sjá má var hans ekki alltaf sérlega vandlega gætt af varnarmönnum!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Atli gerði
fimm mörk
í einum leik
FYRSTU HELGI Í JÚNÍ 1983 GERÐI ATLI EÐVALDSSON SEX
MÖRK. FIMM Í DEILDARLEIK Í VESTUR-ÞÝSKALANDI Á LAUG-
ARDEGI OG EITT Í LANDSLEIK Í REYKJAVÍK DAGINN EFTIR.
Ef þú ert í vítateignum en veist ekki hvert er ákjósanlegast að
senda boltann, skoraðu bara og við ræðum valkostina síðar.
Bob Paisley, þáverandi knattspyrnustjóri enska liðsins Liverpool.
Boltinn
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Ted Drake, leik-
maður Arsenal,
hefur skorað flest
mörk allra í efstu
deild á Englandi í
einum og sama
leiknum. Drake af-
rekaði það 14. des-
ember árið 1935,
þegar Arsenal
burstaði Aston villa
7:1 á útivelli; gerði
sér þá lítið fyrir og
skoraði öll mörkin.
Hann ætti reyndar
með réttu að vera skráður með átta mörk í
leiknum, skv. gömlum fregnum, því einu sinni
þrumaði hann boltanum í þverslána en hvorki
dómarinn né línuvörðurinn tóku ekki eftir því
að hann lenti innan við línuna.
Síðan úrvalsdeildin var stofnuð 1992 hafa
nokkrir leikmenn gert fimm mörk í einum leik.
Andy Cole, 1995: Man. Utd. – Ipswich 9:0
Alan Shearer, 1999: Newc. – Sh. Wedn. 8:0
Jermain Defoe, 2009: Tottenh. – Wigan 9:1
D. Berbatov, 2010: Man. Utd. – Blackb. 7:1
Tveir leikmenn hafa skorað fimm mörk í
deildarleik á Spáni:
Fernando Morientes, febrúar 2002: Real
Madrid – UD Las Palmas 7:0
Radamel Falcao, desember 2012: Atletico
Madrid – Deportivo La Coruna 6:0
Á Ítalíu og í Frakklandi hefur engum leik-
manni tekist að skora oftar en fjórum sinnum í
einum og sama deildarleiknum.
TED DRAKE GERÐI SJÖ MÖRK
Í LEIK MEÐ ARSENAL
Ted Drake
Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao
hefur farið hamförum með Atletico
Madrid undanfarið. Markamaskínan
og samherjar hans ráðast ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur
næst, því þeir sækja heim snilling-
ana í Barcelona þar sem undrið
Messi freistar þess að bæta heims-
metið enn frekar. Rétt að benda
áhugamönnum um að gleyma því
ekki að setjast við sjónvarpið rétt
fyrir klukkan átta í kvöld, sunnudag,
og stilla á Stöð 2 Sport.
Maskínurnar
mætast
Radamel Falcao hefur farið á kostum.
AFP
MÖRKIN FIMM
1:0Atli fékk sendingu innfyrir vörnina og skor-
aði með föstu skoti rétt innan
víteigs. (3. mín)
2:0Atli skoraði meðskalla eftir fyrirgjöf
frá hægri. (10.)
3:0Aftur var gefið fyrirmarkið frá hægri;
Atli skallaði en markvörðurinn
sló boltann í þverslána þaðan
sem hann hrökk aftur til Atla
og hann skallaði í markið. (36.)
4:1 Fallegasta markleiksins. Atli fékk
boltann nokkru fyrir utan víta-
teig, tveir varnarmenn sóttu
að honum en Atli gerði sér lít-
ið fyrir og vippaði boltanum yf-
ir þá, skaust svo á milli þeirra
og sendi þrumufleyg í bláhorn-
ið! Frábært mark. (54.)
5:1 Brotið var á RudiBommer innan víta-
teigs. Atli tók vítið og skoraði
af öryggi í vinstra hornið niðri.
(82.)
Dieter Müller Gerd Müller