Morgunblaðið - 30.01.2013, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
BAKSVIÐ
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Það voru náttúrlega mjög skiptar
skoðanir í þingflokknum og þetta
var nú niðurstaðan,“ segir Pétur
H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, en hann var einn af
fjórum þingmönnum flokksins sem
sögðu nei við síðasta Icesave-
samningnum sem gjarnan er
kenndur við Lee Buchheit. Auk
Péturs sögðu Birgir Ármannsson,
Unnur Brá Konráðsdóttir og Sig-
urður Kári Kristjánsson nei við
samningnum. Þá sat Guðlaugur
Þór Þórðarson hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Hefðum ekki getað borgað
Að sögn Péturs er hann með þá
áráttu að reikna alltaf yfir á höfða-
tölu. Það hafi hann gert strax
haustið 2008 þegar fyrsti samning-
urinn við Hollendinga var kynntur.
„Ég sá það að við gætum ekki
borgað þetta,“ segir Pétur og bæt-
ir við að þegar síðasti samningur-
inn lá fyrir hafi hann einnig séð að
þjóðin gæti ekki borgað þetta til
viðbótar við allt það sem dunið
hafði á henni.
„Það hefur verið mitt leiðarljós
að það þýðir ekki að gera samn-
inga sem menn geta ekki borgað
eftir,“ segir Pétur.
Þá bendir hann á að nú sé komið
í ljós, sem hann raunar hafi ekki
vitað þá, að hin svokallaða snjó-
hengja sé orðin töluvert mikið
stærri heldur þingmenn hafi fengið
upplýsingar um. „Guði sé lof að
dómurinn fór svona í gær því að
Icesave er mjög stór hluti af snjó-
hengjunni,“ segir Pétur og bendir
á að þessi dómur geri okkur kleift
að meðhöndla þær kröfur eins og
aðrar kröfur, t.d. með því færa
þær yfir í krónur.
Aðspurður hvort sú ákvörðun að
segja nei við síðasta Icesave-
samningnum hafi reynst honum
erfið segir Pétur að menn myndi
flokka til þess að móta sameig-
inlega stefnu til að ná fram sínum
markmiðum, sem að hver og einn
myndi ekki ná.
„Það er alltaf erfitt þegar að
maður sér sig tilneyddan til að
vera ekki hluti af sameiginlegri
stefnu,“ segir Pétur og bætir við
að sá samningur hafi verið sá lang-
besti af þeim samningum sem
gerðir voru. Þá bendir Pétur á að
vandamál þjóðarinnar séu ekki
leyst þó svo að dómurinn hafi farið
svona en þau séu hinsvegar veru-
lega einfaldari og léttari en ella.
Var prinsippmál
Unnur Brá Konráðsdóttir bendir
á að slagurinn hafi verið mestur
við atkvæðagreiðsluna sem fór
fram við lok annarrar umræðu
málsins en hún var eini þingmaður
Sjálfstæðisflokksins sem sagði nei
í þeirri atkvæðagreiðslu.
Aðspurð hvort hún hafi ávallt
verið sannfærð um að þetta mál
myndi enda með þessum hætti
segir hún svo vera. „Þó svo að það
hefði komið dómur þar sem ekki
væri fallist á öll okkar sjónarmið
þá áttu Bretar og Hollendingar
alltaf eftir að fara fyrir dómstóla
hér á landi og sanna sitt tjón,“
segir Unnur Brá og bætir við að
hún sjái ekki hvernig það hefði átt
að takast.
Að sögn Unnar Brár var þetta
prinsippmál í hennar huga. „Laga-
rökin voru okkar megin, ég var al-
veg sannfærð um það. Þessi samn-
ingur sem við vorum komin með,
mér fannst hann ósanngjarn, í
honum var náttúrlega falin mikin
óvissa og ég taldi að það væri
betra að fá úr þessari óvissu skor-
ið fyrir dómstólum,“ segir Unnur
Brá og bætir við: „Þetta snýst líka
um frelsi. Ef við hefðum samþykkt
þetta þá fannst mér við vera að
viðurkenna það að ríki ættu að
bera ábyrgð á öllum einkarekstri
og hvert erum við þá komin? Þurfa
þá ekki skattgreiðendur að hafa
áhrif á það hvernig þessi einkafyr-
irtæki eru rekin? Erum við þá að
segja að öll fyrirtæki eigi að vera
undir stjórn ríkisins?“
Hafði alltaf efasemdir
Að sögn Birgis Ármannssonar
hafði hann miklar efasemdir um að
það væru nokkrar lögfræðilegar
forsendur fyrir greiðsluskyldu Ís-
lands í þessu máli alveg frá því að
þetta mál kom upp. „Það má segja
að sú afstaða hafi ráðið ferðinni
hjá mér í gegnum allt ferlið og
ekkert sem kom upp meðan á allri
þesari málsmeðferð í þinginu, í
þremur lotum, stóð var til þess
fallið að breyta þessari afstöðu
minni,“ segir Birgir.
Aðspurður hvort hann hafi alltaf
átt von á því málið myndi enda vel
segir Birgir: „Auðvitað hafði ég
trú á þessum málstað. Ég gat þó
ekki sagt fyrir um niðurstöður
dómsins frekar en nokkur annar
en ég er auðvitað afskaplega
ánægður að þau rök sem teflt var
fram af Íslands hálfu voru tekin
gild og þetta mál sé þar með úr
sögunni.“
„Þetta snýst líka um frelsi“
Einungis fjórir af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sögðu „nei“ við síðasta Icesave-samningnum
Pétur H. Blöndal segir dóminn ekki leysa vandamál þjóðarinnar en hinsvegar séu þau nú einfaldri
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Atkvæði um Icesave III.
Pétur H.
Blöndal
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Birgir
Ármannsson
HREINLÆTISTÆKJADAGAR Í TENGI
ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM*
MORA Junior
Handlaugartæki
Tilboð kr. 4.900,-
MORA Verde
Eldhústæki
Tilboð kr. 5.900,-
ADRIA
Sturtuhorn 90x90
Verð kr. 59.900
Tilboð kr. 38.935,-
ADRIA
Sturtuhorn 80x80
Verð kr. 58.500
Tilboð kr. 38.285,-
Tilboð án botns
MEDALLION
Handlaug 48.5 cm
Verð kr. 29.647.-
Tilboð kr. 17.788,-
GÆÐI ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
BAÐINNRÉTTINGAR Á 20 % AFSLÆTTI
* Gildir meðan birgðir endast.