Morgunblaðið - 30.01.2013, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
Fyrsti leiðsöguhundur Þjónustu- og
þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda,
sjónskerta og daufblinda ein-
staklinga verður formlega afhentur
á Patreksfirði í dag.
Fram kemur í tilkynningu, að
hundinum, sem sé af Golden Retrie-
ver-kyni og heiti Sebastían, hafi
verið úthlutað til Fríðu Eyrúnar
Sæmundsdóttur. Fríða, sem er 38
ára gömul, missti sjónina nýlega af
völdum sykursýki.
Sebastían er íslenskur hundur og
þjálfaður á Íslandi. Hann hefur ver-
ið í þjálfun hjá leiðsöguhundaþjálf-
ara miðstöðvarinnar undanfarið ár.
Sebastían er sjötti leiðsöguhund-
urinn sem verður í notkun á Íslandi
núna.
Leiðsöguhundur
til Patreksfjarðar
Fimmti fundur af sjö í fundaröð
nokkurra deilda Háskóla Íslands í
samvinnu við Háskólann í Reykja-
vík, Háskólann á Akureyri og Há-
skólann á Bifröst um fyrirhugaðar
breytingar á stjórnarskránni verð-
ur haldinn í dag kl. 12-14 í Hátíða-
sal Háskóla Íslands.
Yfirskrift fundarins er Hlutverk
og staða Alþingis.
Framsögumenn og þátttakendur
í pallborði eru Hafsteinn Þór
Hauksson, lektor við Lagadeild HÍ,
Ragnhildur Helgadóttir, prófessor
við lagadeild HR, og Stefanía Ósk-
arsdóttir, lektor við Stjórnmála-
fræðideild HÍ. Fundarstjóri er Óm-
ar H. Kristmundsson, deildarforseti
og prófessor við Stjórnmálafræði-
deild Háskóla Íslands.
Umræða Háskólar hafa staðið fyrir funda-
röð um breytingar á stjórnarskránni.
Ræða um stjórnar-
skrá og Alþingi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
STUTT
Jóhann Pétursson Svarfdælingur
hefði orðið 100 ára þann 9. febrúar
en Jóhann var um tíma talinn vera
hæsti maður heims.
Af því tilefni stendur byggða-
safnið Hvoll á Dalvík fyrir málþingi
í Bergi menningarhúsi, á afmæl-
isdegi Jóhanns, laugardaginn 9.
febrúar, en þar verður fjallað um
þennan óvenjulega mann frá ýms-
um hliðum. Málþingið hefst klukk-
an 13.30.
Málþing um Jóhann
Svarfdæling
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verktakar þurfa að fá til landsins
bora og ýmsan annan sérhæfðan
búnað, áður en hægt verður að
hefja sprengingar fyrir Vaðlaheið-
argöngum. Stefnt er að undirskrift
verksamnings næstkomandi föstu-
dag.
„Við erum aðeins farnir að huga
að því en miðað við reynsluna er
ekki hægt að hefja undirbúning af
fullum krafti fyrr en gengið hefur
verið frá samningum,“ segir Karl
Þráinsson, framkvæmdastjóri ÍAV
hf. Fyrirtækið og móðurfélag þess,
Marti Contractors Ltd. í Sviss, voru
lægstbjóðendur þegar fram-
kvæmdir við Vaðlaheiðargöng voru
boðnar út á árinu 2011. Tilboðið
hljóðaði upp á 8,8 milljarða króna
en það verður uppfært í verksamn-
ingi. Dregist hefur allan þennan
tíma að ganga frá samningi vegna
deilna um fjármögnun verksins. Að
lokum var gengið frá því að íslenska
ríkið tæki lán og endurlánaði fram-
kvæmdaraðilanum, Vaðlaheiðar-
göngum ehf.
Vinnubúðir og verkstæði
Karl segir að eftir undirritun
samninga verði ráðist í að koma upp
vinnubúðum og verkstæði og útvega
þau tæki og efni sem til þarf. Stefnt
er að því að sprengingar hefjist í
júní eða júlí. Byrjað verður Eyja-
fjarðarmegin og eingöngu unnið þar
fyrsta árið. Á næsta ári verður byrj-
að að sprengja úr Fnjóskadal.
Til að byrja með verða um þrjátíu
starfsmenn við gangagerðina en
tvöfalt fleiri þegar vinnan nær há-
marki, á árunum 2015 og 2016.
Meirihluti efnisins sem keyrt
verður úr göngunum fer í vegi í
Fnjóskadal og Eyjafirði. Isavia tek-
ur um þriðjung til að nota við breyt-
ingar á flughlöðum á Akureyrar-
flugvelli og grjót úr göngunum
verður notað í grjótvörn við Drottn-
ingarbraut á Akureyri.
Þarf að kaupa
búnað til landsins
Samið við verktaka Vaðlaheiðarganga
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bið Vegagerðin hefur aðeins getað undirbúið framkvæmdasvæðið í biðinni eftir samningum.
Vaðlaheiðargöng
» Skrifað verður undir verk-
samninga vegna Vaðlaheið-
arganga á föstudag.
» Jafnframt verður gengið frá
samningum við eftirlitsaðila
verksins, Geotek ehf.
» Göngin á að afhenda í lok
árs 2016.
F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M
Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M !
KRINGLUNNISími: 5513200
ERUM AÐ
TAKA UPP
NÝJAR VÖRUR
FYRIR HERRA!
Fitulítil og
próteinrík . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA