Morgunblaðið - 30.01.2013, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
Sumir meðlimir
stjórnlagaráðs virðast
álíta að ráðið hafi
ekki verið fært um að
semja tillögu að nýrri
stjórnarskrá fyrir Ís-
land heldur þurfi að
leita aðstoðar út-
lendra fræðimanna.
En kurteisir menn
eru ekkert að gagn-
rýna það sem þeim
kemur ekki við og svo
eru ekki til neinar reglur um
hvernig stjórnskipun eins lands
skuli vera og því ekki neinn fróð-
leik að sækja til útlanda í því
efni. Hvað útlendum mönnum
finnst hefur hins vegar enga þýð-
ingu.
Það lítur einmitt út fyrir að ráð
þetta hafi ekki verið þessu starfi
vaxið þrátt fyrir stóran hóp há-
skólaborgara (eða kannski vegna
þeirra?)
Í fyrstu grein tillögunnar er
ákvæði um að Ísland sé „lýðveldi
með þingræðisstjórn“ og í annarri
grein er sagt að Alþingi hafi lög-
gjafarvald. Þó segir í 60. grein að
forseti geti neitað að staðfesta lög
innan viku frá því hann fékk þau í
hendur og skal þá efnt til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um málið. En
þjóðaratkvæðagreiðsla sem þann-
ig er haldin gegn vilja Alþingis er
ekki þingræði. Forseti fær þarna
viku frest til að ákveða sig og ef
hann synjar ekki um staðfestingu
hlýtur hann að staðfesta lögin.
Synjun forseta ef því er að skipta
skal vera rökstudd. Eins og lög
frá Alþingi séu ekki rökstudd! En
því er slegið föstu hér að rök for-
setans hafi meira gildi en rök Al-
þingis.
Í 65. grein segir svo að 10%
kjósenda geti krafist þjóð-
aratkvæðagreiðslu um venjuleg
þingmál og skal sú krafa vera
lögð fram innan þriggja mánaða
frá því að Alþingi samþykkti lög-
in. En forsetinn hefur aðeins viku
til að staðfesta, samt á að vera
hægt að heimta þjóðaratkvæða-
greiðslu eftir að lögin eru frá-
gengin að öllu leyti, búið að stað-
festa þau og birta og þau jafnvel
komin til fram-
kvæmda.
Allt þetta sýnir að
ákvæðin í fyrstu og
annarri grein eru
eintóm blekking.
Þingræði er ekki
tryggt, löggjafarvald
Alþingis er ekki
tryggt. Er hægt að
trúa því að nokkur
maður vilji byggja
stjórnskipun landsins
á slíkum blekkingum.
Ein krafa þjóð-
fundarins var heiðarleiki en nú
geta bæði forsetinn og 10% kjós-
enda komið aftan að Alþingi og
sagt „nei ekki þetta“ eftir að allri
vinnu við lagasmíðina er lokið,
sem oft er mikið verk. Og Alþingi
getur aðeins beygt sig í duftið.
Hvers vegna getur t.d. forsetinn
ekki aðvarað þingið á fyrri stigum
þeirrar vinnu og sparað þannig
heilmikla fyrirhöfn? Nei, forset-
inn má ekki skipta sér af pólitík,
hann er „ábyrgðarlaus á öllum
stjórnarathöfnum“ þá er augljóst
að sá sem er ábyrgðarlaus er að
sama skapi réttlaus. Réttur og
ábyrgð eru tvær hliðar á hinu
sama. Þetta tvennt verður því
ekki aðskilið. En því má hann þá
skipta sér af pólitík eftir á, þegar
Alþingi hefur tekið ákvörðun.
Það er algerlega óskiljanlegt af
hverju þess er krafist að meiri-
hlutinn sé yfir 90% kjósenda. 60%
fylgi þykir firnasterk stjórn. Ef
65. greinin verður lögfest þá
verður varla hægt að stjórna
landinu, stjórnarandstaðan hlýtur
að nýta þennan rétt sinn til að
gera meirihlutanum erfitt fyrir,
tefja mál og hindra framgang
mála eins og hægt er. Það sýnir
reynzlan.
En viti menn. Þess er ekki
krafist að tíu prósentin rökstyðji
sína kröfu um þjóðaratkvæða-
greiðslu. Hvers vegna ekki?
Það hlýtur að vera lágmarks-
krafa að það sé meirihluti kjós-
enda sem stendur að slíkri kröfu,
ef lögfesta á slíkan kröfurétt á
annað borð, annað samræmist
ekki grundvallarreglu lýðræðis
sama hvort minnihlutinn er einn
maður eða fleiri.
Þessi tillaga að stjórnarskrá
felur mun frekar í sér anarkisma
heldur en lýðræði. Vissulega virð-
ast oft þokukennd mörkin milli
lýðræðis og anarkisma en hafa
má það til marks að ef fólkið á að
stjórna stjórnvöldunum … hvar er
þá stjórnin? Hvar er þá hin pólí-
tíska ábyrgð? Þá er búið að snúa
lýðræðinu á hvolf.
Vert er að minna á kosninga-
fyrirkomulagið, þar sem menn
geta boðið sig fram á landslista
eða kjördæmislista eða báðum á
vegum sömu samtaka. (Í tillög-
unni er talað um „samtök fram-
bjóðenda“, sem virðist þýða
„flokkar“ Kjósandinn velur nöfn
af hvaða lista sem er í sínu kjör-
dæmi og af landslista líka, t.d.
sum nöfn af einhverjum landslista
og önnur af einhverjum kjördæm-
islista. Þannig virðist hann geta
blandað saman nöfnum manna á
listum allra samtaka (flokka) og
virðist meira að segja geta kosið
sama manninn tvisvar, bæði af
landslista og kjördæmislista?
Það er auðséð að það verður
æði erfitt fyrir kjósandann að
átta sig á öllum þeim fjölda fram-
bjóðenda, sem yrði úr að velja.
Reyna að meta hvað menn vilja
og fyrir hvað menn standa, yf-
irleitt hvaða erindi hver og einn
þeirra ætti á þing.
Einnig yrði nær ómögulegt að
mynda fastan meirihluta á
þinginu svo hætt er við að sam-
þykktir Alþingis verði handahófs-
kenndar, ómarkvissar og mót-
sagnakenndar, enda byggt á
geðþótta þingmanna eingöngu.
Persónukjör kallar á geðþótta
stjórn.
Stjórnmálaflokkarnir samræma
skoðanir flokksmanna á rökrænan
hátt, menn þurfa ekki annað en
lesa stjórnmálaályktanir flokk-
anna til að vita fyrir hvað þeir
standa og hvaða tillagna er að
vænta frá hverjum og einum
þeirra.
Stimpill útlendinga
Eftir Pétur
Guðvarðsson
» Þessi tillaga er meira
í ætt við anarkisma
en lýðræði.
Pétur
Guðvarðsson
Höfundur er lýðræðissinni.
Stjórnmálamenn
tala gjarnan fagurlega
um mikilvægi þess að
hafa samráð við al-
menning og hags-
munaaðila þegar laga-
setning er undirbúin.
Sannleikurinn er hins
vegar sá að oftast er
ekkert hlustað á þá
sem eru kallaðir til að
gefa álit.
Þetta var að minnsta kosti raunin
þegar við í Ferðaklúbbnum 4x4 vor-
um beðin að koma með athugasemd-
ir við frumvarp að nýjum nátt-
úruverndarlögum. Nú, þegar
frumvarpið liggur fyrir Alþingi, er
ljóst að nær ekkert hefur verið á
okkur hlustað. Rýnivinna er því unn-
in fyrir gýg og alvarlegar at-
hugasemdir okkar hunsaðar. Ég
skora hér með á alþingismenn að
fresta afgreiðslu málsins og vinna
frumvarpið aftur frá grunni.
Ferðaklúbburinn 4x4 vill vekja at-
hygli alþingismanna og lesenda
Morgunblaðsins á eftirfarandi sjón-
armiðum og staðreyndum:
1) Ekkert samráð var haft við
Ferðaklúbbinn 4x4 við undirbúning
að frumvarpi til breytinga á nátt-
úruverndarlögum. Þar með voru
sjónarmið þúsunda fjallamanna og
náttúruunnenda sniðgengin. Þá var
frestur til að skila inn athugasemd-
um allt of stuttur.
2) Á frumvarpinu eru alvarlegir
formgallar sem gera að verkum að
nær ómögulegt verður að framfylgja
nýjum lögum. Efnislega felur frum-
varpið í sér breytingar sem stór-
skaða ferðamennsku á Íslandi og
gera almenningi nær ókleift að
ferðast um hálendið.
3) Í frumvarpinu er ákveðnum úti-
vistarhópum ítrekað mismunað eftir
ferðamáta. Sérstakt horn er haft í
síðu þeirra sem ferðast um á eigin
bílum. Ekkert tillit er tekið fatlaðra,
aldraðra, fólks með ung börn eða
þeirra sem af ýmsum ástæðum geta
ekki farið um hálendið fótgangandi.
4) Samkvæmt frumvarpinu er ráð-
herra falið óhóflegt vald til geðþótta-
ákvarðana. Honum er
m.a. heimilað að banna
umferð ákveðinna hópa
ef hann metur það svo
að þeir geti valdið öðr-
um óþægindum án þess
að tilraun sé gerð til að
skilgreina í hverju þau
felist. Við teljum slíka
stjórnarhætti gam-
aldags tímaskekkju.
5) Almennt eru
frumvarpsdrögin hroð-
virknislega unnin.
Samráð við útivist-
arfélög hefur verið sýndarmennskan
ein. Ljóst er að þúsundir nátt-
úruunnenda eru hundóánægðar með
þetta frumvarp og að nær ómögu-
legt verður að framfylgja sumum
ákvæðum nýrra náttúruvernd-
arlaga, verði frumvarpið að lögum.
Mikilvægt er að sátt ríki um skip-
an náttúruverndarmála. Sátt næst
ekki nema með víðtæku samráði við
alla náttúruunnendur, óháð því
hvaða ferðamáta þeir kjósa sér. Því
fer Ferðaklúbburinn 4x4 þess ein-
dregið á leit við þingmenn að þeir
fresti afgreiðslu frumvarpsins og
sendi það aftur til frekari vinnslu. Í
þeirri vinnu þarf að hafa raunveru-
legt samráð við fólkið í landinu í stað
þess sýndarsamráðs sem til þessa
hefur verið raunin.
Ferðaklúbburinn 4x4 lýsir sig sem
fyrr reiðubúinn til að funda um mál-
efnið sé þess óskað og/eða tilnefna
sérfræðinga til setu í nefndum eða
starfshópum er fjalla munu um mál-
efni tengd náttúruvernd og rétt al-
mennings til að ferðast um eigið
land.
Eftir Hafliða S.
Magnússon
» Í frumvarpinu er
ákveðnum útivist-
arhópum ítrekað mis-
munað eftir ferðamáta.
Sérstakt horn er haft í
síðu þeirra sem ferðast
um á eigin bílum.
Hafliði S. Magnússon
Höfundur er formaður
Ferðaklúbbsins 4x4.
Við viljum samráð en
ekki sýndarmennsku
Vatnagörðum 12 - 104 Reykjavík - Sími: 588 5151 - Fax: 588 5152 - glerslipun.is
Glerslípun & Speglagerð ehf.
Speglar Flotgler Öryggisgler Hert gler Bílspeglar Sandblástur
Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Sjáðu sjálfan þig
í nýju ljósi
Við leggjum metnað okkar
í að bjóða sérhæfðar og
vandaðar lausnir á
baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtuskilrúm.
Þá erum við komnir með
nýja útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. febrúar.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku & förðun
föstudaginn 15. febrúar
Í blaðinu verður fjallað
um tískuna vorið 2013 í
förðun, snyrtingu, fatnaði
og fylgihlutum, auk
umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
Tíska & förðun