Morgunblaðið - 30.01.2013, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
Í tilefni 60 ára afmælis síns fyrir ári sendi Ingvi Þór Kormákssonfrá sér diskinn Latínudeildina fyrir nýliðin jól og um þessarmundir vinnur hann að því að koma disknum á stafrænan
markað um allan heim. Diskarnir eru í raun tveir, annar með ís-
lenskum textum og hinn með enskum textum, og gefnir út til stuðn-
ings SOS barnaþorpum í Suður-Ameríku. „Ég vinn nú sem skrif-
stofustjóri og framkvæmdastjóri hjá lagasmiðnum Ingva Þór
Kormákssyni og tek um viku í þetta,“ segir afmælisbarn dagsins,
„fer bara inn í vinnuherbergi mitt og þar er alheimurinn í tölvunni.“
Hann bætir við að ensku textarnir, sem J. J. Soul samdi, hafi orðið til
á undan þeim íslensku með erlendan markað í huga.
Tónlist hefur verið ríkur þáttur í lífi Ingva Þórs og með Latínu-
deildinni hefur hann samið tónlist fyrir 11 diska, en fyrsta lagið eftir
hann kom út 1982. Hann segir að nafn nýjasta disksins hafi orðið til
eftir hádegisverð með bekkjarfélögum úr latínudeild MR, en lögin
séu öll útsett í suðuramerískri sveiflu, séu undir áhrifum frá Bras-
ilíu og Kúbu. „Þar með var komin latínudeildin,“ segir hann.
Ingvi Þór er bókmenntafræðingur að mennt og starfar sem verk-
efnastjóri á Borgarbókasafninu. Hann ætlar að fara í vinnuna í dag
og tekur væntanlega köku með sér. „Það verður tekið vægt á mér ef
ég gleymi því,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Ingvi Þór Kormáksson 61 árs
Afmælisbarn Ingvi Þór Kormáksson, tónskáld með meiru, stefnir að
því að fá sér afmælisköku með vinnufélögunum í dag.
Plata til stuðnings
SOS barnaþorpum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Ilmur fæddist
2. febrúar kl. 14.11. Hún
vó 2.120 g og var 45 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Helga Árnadóttir og
Arngrímur Stefánsson.
Nýr borgari
Þ
orbjörn fæddist í Reykja-
vík 30.1. 1943 og ólst þar
upp við Marargötu og
Sporðagrunn. Hann
lauk stúdentsprófi frá
MR 1963, B.Sc.-prófi í félagsvís-
indum frá Edinborgarháskóla 1967.
M.Sc.-prófi frá Lundarháskóla 1970
og fil.dr.-prófi frá Lundarháskóla
1996.
Þorbjörn var blaðamaður við Al-
þýðublaðið 1963-’64, stundakennari
við Réttarholtsskóla 1964, aðstoð-
arkennari við Lundarháskóla 1968-
’70, lektor við félagsvísindadeild HÍ
1970-’79, dósent þar 1979-’92 og pró-
fessor frá 1992.
Þorbjörn var prófessor í hluta-
starfi við háskólann í Jönköping,
gistifræðimaður við Ríkisháskólann
í Michigan, East Lansing, við Lund-
arháskóla og Wisconsin-háskóla í
Madison. Hann sat í ráðgjafanefnd
Norræna ráðherraráðsins um al-
menn menningarmál 1972-’84, var
formaður nefndar um hugsanlega
fjölmiðlakennslu við HÍ, sat í stjórn
Norrænu skráningarmiðstöðvar-
innar fyrir fjölmiðlarannsóknir
1979-’98, í nefnd vegna lagasetn-
ingar um ofbeldiskvikmyndir 1982,
formaður nefndar um fjölmiðla-
kennslu á öllum skólastigum, for-
maður útvarpsréttarnefndar 1990-
’91, sat í nefnd til undirbúnings
breytinga á útvarpslögum 1991, í
starfsnefnd Norræna ráðherraráðs-
ins um eignasamþjöppun á sviði fjöl-
miðla 1990, í stjórnhópi norrænnar
rannsóknar á áhrifum nýrrar tækni
og aukins viðskiptafrelsis á sviði
boðskipta á neytendur 1991 og for-
maður undirbúningsnefnda nor-
rænu ráðstefnanna um boðskipta-
og fjölmiðlarannsóknir 1981, 1991
og 2001.
Þorbjörn var borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík 1974-
’78, sat í félagsmálaráði Reykjavík-
ur 1974-’82 og 1988-’90, var formað-
ur stjórnar Borgarbókasafns
Reykjavíkur 1978-’82 og sat í
fræðsluráði Reykjavíkur 1982-’90.
Eftir Þorbjörn liggur fjöldi rita á
sviði félagsfræða og fjölmiðla. Hann
hefur skrifað fjölda fræðigreina í
innlend og erlend tímarit og safnrit
Þorbjörn Broddason, prófessor við HÍ - 70 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Prófessorinn Dr. Þorbjörn hefur verið helsti fræðimaður okkar á sviði fjölmiðla – eðli þeirra og þróunar.
Þróun fjölmiðla er afar
hröð og spennandi
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.isVandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
KROM 53x80 cm
• Aluminum / Ál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is