Morgunblaðið - 30.01.2013, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Norska heimildarmyndin Til ung-
dommen verður frumsýnd í kvöld kl.
19.30 í Bíó Paradís. Í myndinni er
fjórum meðlimum í ungliðahreyf-
ingum fjögurra stjórnmálaflokka í
Noregi fylgt eftir, þeim Sönu, Hen-
rik, Haakon og Johanne, á árunum
2009-11. Ungmennum sem mörkuð
eru fyrir lífstíð af fjöldamorðum
Anders Behrings Breiviks í Ósló og
Útey þann 22. júlí árið 2011. Breivik
myrti 77 manns áður en tókst að
stöðva hann, þar af 69 í Útey. Fórn-
arlömbin í Útey
voru langflest
ungmenni úr
ungliðahreyfingu
norska Verka-
mannaflokksins,
voru þar stödd í
sumarbúðum
þegar morðin
voru framin.
Höfundur
myndarinnar,
Kari Anne Moe, verður viðstödd
frumsýningu myndarinnar í kvöld
ásamt Mariu Kristine Göthner frá
ungliðahreyfingu Hægriflokksins og
Renate Tårnes frá ungliðahreyfingu
Verkamannaflokksins en sú síðar-
nefnda var í Útey daginn sem morð-
in voru framin.
Var sjálf í ungliðastarfi
Blaðamaður ræddi við Moe í gær
og sagði hún myndina upphaflega
hafa átt að fjalla um starf ungliða-
hreyfinganna, ungmenni sem taki
þátt í pólitískri baráttu, vilji bæta
samfélag sitt og efla lýðræðið. „Áður
en ég ákvað að gerast kvikmynda-
gerðarmaður var ég mjög virk í póli-
tík, ég var formaður ungliðahreyf-
ingar Sósíalíska vinstriflokksins í
Noregi þannig að þetta hefur verið
afar persónuleg mynd að gera að
vissu leyti,“ segir Moe. Hún hafi
gengið í ungliðahreyfingu sósíalista
15 ára, tekið þátt í kappræðum og
farið í sumarbúðir í Útey.
Í myndinni er m.a. fylgst með
fyrrnefndum ungmennum taka þátt
í undirbúningi kosninga og hljóta
þjálfun í framsögn og framkomu,
fjallað um vonir þeirra og hugsjónir.
Moe segist upphaflega hafa ætlað að
gera mynd sem væri einhvers konar
bræðingur af Karate Kid og Break-
fast Club en þær áætlanir breyttust
að sjálfsögðu þegar fjöldamorðin
voru framin. Hún var stödd í Útey
með tökuliði sama dag og Breivik
framdi voðaverkin, var að fylgjast
með Johanne úr ungliðahreyfingu
norska Verkamannaflokksins og
taka upp efni í sumarbúðunum fyrir
myndina. Moe fór frá eyjunni nokkr-
um klukkustundum áður en Breivik
kom þangað.
Þykir vænt um að fá að sýna
myndina á Íslandi
Moe segir að þó myndin fjalli um
voðaverk Breiviks og afleiðingar
þeirra fjalli hún ekki síður um hið
pólitíska hugsjónastarf ungmenn-
anna. „Það var gerð árás þennan dag
á þau ungmenni í Noregi sem eru
virk í pólitík,“ ítrekar hún.
-Það hlýtur að hafa verið afar erf-
itt að gera þessa mynd?
„Algjörlega, þetta er það erfiðasta
sem ég hef nokkurn tíma gert. Sem
betur fer reyndust framleiðendur
myndarinnar mér afar vel, Tone
Grøttjord og Anita Rehoff Larsen
hjá fyrirtækinu Sant & Usant. Við
vorum í miklu sambandi við fjöl-
skyldur sem misstu ástvini sína og
áttum samráð við þær um hvernig
myndefnið yrði notað,“ segir Moe.
Myndin var frumsýnd í fyrra í
Noregi og hefur einnig verið sýnd í
Svíþjóð. Hún verður brátt sýnd í
Danmörku, Þýskalandi og í Hollandi
og segir Moe að henni hafi verið boð-
ið að sýna hana á ýmsum kvik-
myndahátíðum. Það sé vissulega
ánægjulegt en henni þyki þó sér-
staklega vænt um að hafa verið boð-
ið að sýna hana í Reykjavík því
eiginmaður hennar sé íslenskur,
Guðmundur Gunnarsson sem vann
myndina með henni. Samfélagið sé
fámennt á Íslandi líkt og í Noregi og
því hljóti Íslendingar að eiga auðvelt
með að setja sig í spor Norðmanna.
„Það erfiðasta sem ég
hef nokkurn tíma gert“
Heimildarmyndin Til ungdommen sýnd í Bíó Paradís
Sorg Úr heimildarmyndinni Til ungdommen. Ungliðinn Sana hughreystir
vinkonu sína eftir fjöldamorð Breiviks í Útey og miðborg Óslóar.
Kari Anne Moe
www.tilungdommen.com
Nýjasta plata SigurðarGuðmundssonar ogMemfismafíunnar, Okk-ar menn í Havana, var
hljóðrituð á örskömmum tíma, fimm
dögum, í hljóðverinu Egrem í Ha-
vana á Kúbu. Platan er 100% Kúbu-
plata, engu líkara en hér sé komin sú
öndvegissveit Buena Vista Social
Club á íslensku. Við fyrstu hlustun
grípa lögin mann, engu líkara en
maður hafi heyrt þau öll áður, þau
eru eitthvað svo kunnugleg. Samt
sem áður eru þau frumsamin og
textahöfundurinn Bragi Valdimar
Skúlason klikkar ekki frekar en
fyrri daginn, hvort sem sungið er um
öndvegisdrykkinn mojito (eða mó-
hító eins og hann er nefndur í laginu,
rétts framburðar blessunarlega
gætt) eða sældarlífið í borginni
frægu, Havana, og okkar menn sem
gerðu þar garðinn frægan, drukku
romm og reyktu vindla og gæddu
sér á mojito eins og Hemingway
forðum.
Með Sigurði og Memfismafíunni
var í för Tómas R. Einarsson
kontrabassaleikari en hann þekkir
vel til tónlistarlífsins á eyjunni og
kom hljómsveitinni í tengsl við vana
og þekkta tónlistarmenn meðal eyj-
arskeggja, tres-gítarleikarann og
hljómsveitarstjórann Cesar Hecha-
varria, píanóleikarann Eilio Mor-
ales, trompetleikarann Julio Padrón
og hóp slagverksleikara. Útkoman
er svo kúbönsk að maður greinir
varla að Íslendingar hafi komið við
sögu, þ.e. ef ekki væri fyrir íslenska
lagatexta. Guðmundur Kristinn
Jónsson, jafnan kallaður Kiddi
Hjálmur, stýrði upptökum af fag-
mennsku og ellefu lög eru afrakst-
urinn. Sigurður syngur mjúklega oft
á tíðum kostulegan texta Braga
Valdimars og það er engin leið að
hrífast ekki með og taka undir. Ekki
verra að hafa móhító við höndina,
platan vekur með manni móhító-
löngun. Platan er öll hin fagmann-
legasta og algjörlega trú Kúbu-
tónlistinni en enn skemmtilegra
hefði þó verið að fá smá áhættu,
meiri íslensk-kúbanskan bræðing.
Það kemur kannski í næstu ferð
okkar manna til Havana, ef hún
skyldi standa til.
Heimildarmyndin er ágæt, tæpar
40 mín. að lengd og segir allt sem
segja þarf um þessa ferð þeirra fé-
laga og upptökur plötunnar. Það er
gaman að sjá lögin verða til og
myndin hefur að geyma nokkur tón-
listarmyndbönd tekin á staðnum,
hrá og skemmtileg í fögru umhverfi
borgarinnar góðu.
Okkar menn í Havana er fyrirtaks
plata til að ylja sér við, sérsniðin fyr-
ir matarboð í léttari kantinum eða
teiti með Kúbu-þema. Hönnun og
ljósmyndun prýðileg að auki. Upp-
skrift að móhító vantar hins vegar.
Á Kúbu Umslag Okkar manna í
Havana, prýtt ljósmynd af Sigurði.
Ég vil móhító!
Okkar menn í Havana bbbbn
Breiðskífa Sigurðar Guðmundssonar og
Memfismafíunnar auk heimildar-
myndar. Við gerð plötunnar nutu Sig-
urður og félagar liðsstyrks kúbanskra
tónlistarmanna . Sena gefur út. 2012.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
NAOMI WATTS TILNEFND
TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
ITS PART JASON BOURNE,
PART DIRTY HARRY.
-EMPIRE
-TOTAL FILM
-THE HOLLYWOOD REPORTER
MÖGNUÐ NÝ ÍSLENSK MYND
“THE BEST FILM OF “SPELLBINDING
DGA
AWARD NOMINEE
BEST DIRECTOR
PGA
AWARD NOMINEE
BEST PICTURE OF THE YEAR
WGA
AWARD NOMINEE
BEST ADAPTED SCREENPLAY
SAG AWARD®
N O M I N A T I O N S
OUTSTANDING PERFORMANCE BY A
MALE ACTOR IN A SUPPORTING ROLE
OUTSTANDING PERFORMANCE BY A
CAST IN A MOTION PICTURE
2
ACADEMY AWARD
®
NOMINATIONS7
INCLUDING
BEST PICTURE
GRANT HESLOV BEN AFFLECK GEORGE CLOONEY
WINNER
BEST PICTURE BEST DIRECTOR
CRITICS CHOICE AWARDS
BEN AFFLECK
WINNER
BEST PICTURE BEST DIRECTOR
GOLDEN GLOBE® AWARDS
DRAMA
7 TILN FNING R TILÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA MYND
BESTA YND
BESTA MYND
BESTI LEIKSTJÓRI
BESTI LEIKSTJÓ I
SIGURVEGA I
MEÐAL ANNARS
SIGURVEGA I
-MBL
-FBL
FRÁBÆR MYND MEÐ
GERALD BUTLER OG ELISABETH SUE
SURPRISING
-ROGER EBERT
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAU ERU KOMIN AFTUR
NÚ Í FRÁBÆRRI ÞRÍVÍDD
SKRÍMSLIN SEM ALLIR ELSKA
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
GANGSTER SQUAD KL. 6 - 8 - 10:30
GANGSTER SQUAD VIP KL. 5:30 - 8 - 10:30
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
XL KL. 10:30
CHASING MAVERICKS KL. 8
JACK REACHER KL. 5:20 - 8 - 10:40
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY KL. 8:30
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50
KRINGLUNNI
GANGSTER SQUAD KL. 5:30 - 8 - 10:30
XL KL. 6 - 8 - 10:10
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
GANGSTER SQUAD KL. 5:30 - 8 - 10:30
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
DJANGO UNCHAINED KL. 8 - 10:30
JACK REACHER KL. 8 - 10:40
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8
ARGO KL. 5:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
GANGSTER SQUAD KL. 8 - 10:20
XL KL. 8
CHASING MAVERICKS KL. 10:10
AKUREYRI
GANGSTER SQUAD KL. 8
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 6
XL KL. 10:20
CHASING MAVERICKS KL. 6
JACK REACHER KL. 10:20
THE IMPOSSIBLE KL. 8
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á