Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
Lífið kemur stöðugt á óvart og
oftast er engin leið að vita hvaða
aðstæður geta komið upp. Enda
stýrum við ekki alltaf aðstæð-
unum, höfum aðeins áhrif á okkar
eigin viðbrögð við þeim. Dagur
sem virðist ætla að ganga snurðu-
laust fyrir sig endar með ósköp-
um, verkefni sem líta út fyrir að
vera flókin leysast á augabragði.
Við vitum í raun ósköp fátt og lík-
lega er það best þannig.
Elísabet Ronaldsdóttir ræðir
við Sunnudagsblað Morgunblaðs-
ins um kvikmyndir og fæð kvenna
á þeim vettvangi. Hún og hópur
annarra kvenna vöktu athygli á
Eddunni á dögunum þegar þær
mættu í jakkafötum. Tilgangurinn
var ekki að líkjast körlum heldur
sýna fram á einsleitnina sem
myndi ríkja ef allir væru eins.
Sigurlaug Sverrisdóttir er
orkumikil kona sem ræðir um líf
sitt og starf í viðtali. Hún hefur
ástríðu fyrir því að kynna Ísland
fyrir ferðamönnum, rekur flug-
félag og hótel á milli þess sem hún
fer á fjöll. Sögur af orkumiklu
fólki er alltaf gaman að segja.
Sigríður Hanna Jóhannesdóttir
segir okkur frá vináttu fjölskyldu
sinnar við spretthlauparann Osc-
ar Pistorius. Engum kemur á
óvart að sá afreksmaður skuli
komast í heimsfréttir, en það var
reiðarslag fyrir aðdáendur hans
um heim allan þegar tilefni frétta-
flutningsins var ekki enn eitt af-
rekið á hlaupabrautinni heldur
byssuskot á heimili hans. Pistor-
ius tengist Íslandi sterkum bönd-
um og hefur komið hingað til
lands á vegum Össurar, sem fram-
leiðir fæturna sem hann er svo
þekktur fyrir að hlaupa á. Hér á
hann vini sem hugsa til hans. Ef-
laust hefði Pistorius frekar viljað
komast í fréttirnar fyrir enn eitt
heimsmetið, en örlögin haga því
víst öðruvísi um þessar mundir.
RABBIÐ
Við vitum ósköp lítið
Eyrún Magnúsdóttir
Fregnir bárust af því í gærmorgun að íslenska krónan væri á batavegi eftir langvarandi veikindi. Ekki var nánari fréttir að hafa, en líðanin sögð eftir atvik-
um. Þjóðin tók tíðindunum af stóískri ró eins og henni einni er lagið. Við höfuðstöðvar Landsbanka Íslands var allt með kyrrum kjörum og hvorki bar
heldur á fagnaðarlátum né mótmælum við önnur fjármálamusteri lýðveldisins. Eftir hefðbundna skúr í tilefni dagsins var loft tært og heilnæmt í mið-
bænum, einhverjir gerðu sér ferð í bankann til að taka út, aðrir hugsanlega til að leggja inn, hækka yfirdráttinn eða jafnvel bara að spjalla við kunningja
sinn, gjaldkerann. Landsbankahúsið virðulega speglaðist í pollinum en það er ekki talið tengjast krónunni á nokkurn hátt. Einhvern tíma hefði þótt tíma-
bært að ausa þegar heill banki lenti í polli en fjáraustur er ekki lengur í tísku nema í laumi og því er þess beðið að holræsakerfið sinni hlutverki sínu.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Golli
FJÁRAUSTUR
HVER GENGUR ÞARNA EFTIR AUSTURSTRÆTI? ALLTJENT EKKI KRÓNAN OG ER HÚN ÞÓ SÖGÐ HAFA BRAGGAST
ÖGN Í GÆR EFTIR ERFIÐ VEIKINDI. FARA VERÐUR MEÐ GÁT OG EKKI OF SNEMMA ÚT Í NÆÐINGINN.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Melódískt víkingarokk!
Hvar? Græni hatturinn á Akureyri.
Hvenær? Sunnudag kl. 21.00.
Skálmöld á Akureyri
Hvað? Afmælistón-
leikar Siggu Beinteins.
Hvar? Hof á Ak-
ureyri.
Hvenær? Laugardag
kl. 20.
Nánar: Gestir eru Friðrik Ómar og
Regína Ósk.
Eitt lag enn
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? ÍR – Akureyri.
Hvar? Austurberg í Reykjavík.
Hvenær? Laugardag kl. 15.00.
Nánar: N1-deild karla í handbolta.
Lykilleikur fyrir Akureyringa í barátt-
unni um sæti í úrslitakeppninni.
Mikilvægur handbolti
Hvað? Nýtt leikrit
Jóns Atla Jónassonar.
Hvar? Borgarleik-
húsið.
Hvenær? Laugardag
kl. 20 og sunnud. 20.
Nánar: Hjón á fimm-
tugsaldri standa allslaus og ein eftir
hrunið.
Nóttin nærist á deginum
Hvað? Leikrit.
Hvar? Þjóðleikhúsið - Kassinn.
Hvenær? Laugard og sunnud. 19.30.
Nánar: Óvenjulegt, nýtt íslenskt leikrit
eftir tvær ungar skáldkonur, um ofbeldi,
ójafnvægi, ranglæti og fegurð.
Karma fyrir fugla
Hvað? Tónleikar karlakórsins Heimis.
Hvar? Langholtskirkja.
Hvenær? Laugardag kl. 14 og 17.
Nánar? Guðrún Gunnarsdóttir, Óskar
Pétursson og Ari Jóhann Sigurðsson.
Heimir í heimsókn
* Forsíðumyndina tók RAX.