Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 39
SOTHYS er með krem sem henta hverju aldursstigi. Sýnileg ummerki öldrunar eru skilgreind fjögur stig. Hvernig eldist húðin? 3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Skechers GOwalk fisléttir og sveigjanlegir GO Like Never Before Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi Blómsturvellir, Hellisandi | Mössuskór, Akureyri Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum Skóbúðin, Keflavík Leikkonan Charlize Theron mætti með drengjakoll á Óskarinnsem haldinn var síðasta sunnudag í Hollywood. Eitt augnablikfannst mér eins og hún væri Sharon Stone, en fattaði eftir að hafa litið tvisvar á myndina, að þær eru náttúrlega ekki alveg á sama aldri. Sú síðarnefnda eldist reyndar dálítið betur en gengur og gerist, en hvort það er á náttúrlegan hátt er ekki gott að segja. Það skiptir heldur engu máli. Konur á 21. öldinni eiga að geta hagað lífi sínu nákvæmlega eins og þær listir. Þær mega fara í öll heimsins bótox fyrir mér, fitusog, brjósta- stækkanir, augnpokaaðgerðir og svuntuaðgerðir (svo framarlega sem þær hafa efni á því. Það er ekkert eins dapurlegt og að vera með brjóst á vísa-rað). Í dag þykir jafn sjálfsagt að fara í fegrunaraðgerðir og að fara reglulega til sálfræðings eða geðlæknis. Hver þarf ekki á því að halda í lífsins ólgu sjó? Ef aðgerðir og meðferðir auka hamingju kvenna er mér sama svo framarlega sem þær hafa eitthvað fram að færa og liggur eitt- hvað á hjarta. Hvaða kona vill vera líflaus, bitlaus, vonlaus, heilsulaus, andlaus, tannlaus og fatalaus? Eins yfirborðskennt og það hljómar skiptir hárið miklu máli þegar heildarmynd fólks er skoðuð. Þess vegna dáist ég alltaf að konum sem þora að klippa sig stutt, það er mikil áhætta sem fylgir því. Þegar ég var í 10. bekk var ég beðin um að vera hármódel fyrir ein- hvern svaka frægan hárgreiðslumeistara sem átti að vera með þeim allra færustu í heiminum. Miðað við afraksturinn hlýtur það að hafa verið lygi. Þar sem ég meikaði ekki að fara ein dró ég tvær vinkonur mínar með mér. Allar áttum við það sameiginlegt að vera bara venjulegir 10. bekkjar lúðar með þykka makka. Það er því kannski ekkert skrýtið að hár- greiðslumaðurinn hafi um það bil fríkað út þegar hann komst í hárið á okkur. „Meistarinn“ byrjaði að klippa og klippa og eitthvað fannst mér hárið vera að hlaðast upp á gólfinu og hugsaði með mér hvort maðurinn væri ekki að verða búinn. Ég gleymi ekki tilfinningunni þegar ég horfði í spegil og áttaði mig á því að það væri búið að eyðileggja á mér hárið, knallstutt og röndótt á litinn (í voffalit). Ekki leit ég út eins og saklaus 16 ára stelpa heldur eins og afdönkuð bakraddasöngkona í Evróvisjón. Þegar fyrsta stig sjokksins var yfirstaðið áttaði ég mig á því að það myndi enginn strákur vilja kyssa mig með þessa klippingu. Það fannst mér eiginlega verst! Næstu vikur fóru í að reyna að gera gott úr öllu saman, prófa milljón hár- greiðslur en allt kom fyrir ekki – hárið var hryllingur. Á einhverjum tímapunkti síkkaði það og eftir þessi lífsreynslu lærði ég að segja alltaf NEI þegar ég er spurð að því á hárgreiðslustofunni hvort ég vilji ekki breyta eitt- hvað til. Út frá pælingum um stutt hár er ég fegin að vera kona, ekki miðaldra hvítur karl, þótt þeir haldi ennþá um stjórn- artaumana í heiminum og séu stórhættu- legir … Ljótt hár – enginn sleikur! Sharon Stone eldist vel. Leikkonan Charlize Theron mætti með drengjakoll á Óskarinn martamaria@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.