Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Síða 39
SOTHYS er
með krem sem
henta hverju
aldursstigi.
Sýnileg
ummerki
öldrunar eru
skilgreind
fjögur stig.
Hvernig eldist húðin?
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Skechers GOwalk
fisléttir og sveigjanlegir
GO Like Never Before
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage,
Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi
Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi
Blómsturvellir, Hellisandi | Mössuskór, Akureyri
Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík
Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði
Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Skóbúðin, Keflavík
Leikkonan Charlize Theron mætti með drengjakoll á Óskarinnsem haldinn var síðasta sunnudag í Hollywood. Eitt augnablikfannst mér eins og hún væri Sharon Stone, en fattaði eftir að hafa
litið tvisvar á myndina, að þær eru náttúrlega ekki alveg á sama aldri. Sú
síðarnefnda eldist reyndar dálítið betur en gengur og gerist, en hvort það
er á náttúrlegan hátt er ekki gott að segja. Það skiptir heldur engu máli.
Konur á 21. öldinni eiga að geta hagað lífi sínu nákvæmlega eins og
þær listir. Þær mega fara í öll heimsins bótox fyrir mér, fitusog, brjósta-
stækkanir, augnpokaaðgerðir og svuntuaðgerðir (svo framarlega sem
þær hafa efni á því. Það er ekkert eins dapurlegt og að vera með brjóst á
vísa-rað). Í dag þykir jafn sjálfsagt að fara í fegrunaraðgerðir og að fara
reglulega til sálfræðings eða geðlæknis. Hver þarf ekki á því að halda í
lífsins ólgu sjó? Ef aðgerðir og meðferðir auka hamingju kvenna er mér
sama svo framarlega sem þær hafa eitthvað fram að færa og liggur eitt-
hvað á hjarta. Hvaða kona vill vera líflaus, bitlaus, vonlaus, heilsulaus,
andlaus, tannlaus og fatalaus?
Eins yfirborðskennt og það hljómar skiptir hárið miklu máli þegar
heildarmynd fólks er skoðuð. Þess vegna dáist ég alltaf að konum sem
þora að klippa sig stutt, það er mikil áhætta sem fylgir því.
Þegar ég var í 10. bekk var ég beðin um að vera hármódel fyrir ein-
hvern svaka frægan hárgreiðslumeistara sem átti að vera með þeim allra
færustu í heiminum. Miðað við afraksturinn hlýtur það að hafa verið lygi.
Þar sem ég meikaði ekki að fara ein dró ég tvær vinkonur mínar með
mér. Allar áttum við það sameiginlegt að vera bara venjulegir 10. bekkjar
lúðar með þykka makka. Það er því kannski ekkert skrýtið að hár-
greiðslumaðurinn hafi um það bil fríkað út þegar hann komst í hárið á
okkur. „Meistarinn“ byrjaði að klippa og klippa og eitthvað fannst mér
hárið vera að hlaðast upp á gólfinu og hugsaði með mér hvort maðurinn
væri ekki að verða búinn. Ég gleymi ekki tilfinningunni þegar ég horfði í
spegil og áttaði mig á því að það væri búið að eyðileggja á mér hárið,
knallstutt og röndótt á litinn (í voffalit). Ekki leit ég út eins og saklaus 16
ára stelpa heldur eins og afdönkuð bakraddasöngkona í Evróvisjón.
Þegar fyrsta stig sjokksins var yfirstaðið áttaði ég mig á því að það
myndi enginn strákur vilja kyssa mig með þessa klippingu. Það fannst
mér eiginlega verst! Næstu vikur fóru
í að reyna að gera gott úr öllu
saman, prófa milljón hár-
greiðslur en allt kom fyrir
ekki – hárið var hryllingur.
Á einhverjum tímapunkti
síkkaði það og eftir þessi
lífsreynslu lærði ég að segja
alltaf NEI þegar ég er spurð
að því á hárgreiðslustofunni
hvort ég vilji ekki breyta eitt-
hvað til.
Út frá pælingum um stutt hár
er ég fegin að vera kona,
ekki miðaldra hvítur
karl, þótt þeir haldi
ennþá um stjórn-
artaumana í
heiminum og
séu stórhættu-
legir …
Ljótt hár –
enginn sleikur!
Sharon Stone
eldist vel.
Leikkonan Charlize
Theron mætti með
drengjakoll á Óskarinn
martamaria@mbl.is