Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013 H ið nýja Ion hótel fer ekki framhjá nokkrum manni þar sem það gægist fram úr hrauninu á Nesjavöllum. Hefur yfir sér blæ ævintýra. Þegar stigið er út úr bílnum í hlaðinu fyllir hveralyktin vit og fullkomnar upplifunina af landinu okkar, þessu tæra en hrjúfa djásni. Það er helst að veðrið villi um fyrir manni, á að vera 9 stiga hiti á Celcius í endaðan febrúar? Ætli það sé ekki hið nýja Ísland, fyrst menn eru á annað borð byrjaðir að taka til í landinu má alveg lappa upp á veðrið í leiðinni. Í lobbíinu er hótelstýran sjálf, Sigurlaug Sverrisdóttir, að spjalla við tvo gesti. Í ljós kemur að það eru bresk hjón að halda upp á fjörutíu ára brúðkaupsafmæli. „Já, ég er mjög umburðarlyndur og þolinmóður maður að eðlisfari. Þessi stúlka hérna er ein- staklega heppin,“ segir bóndinn kíminn á svip. Frúin glottir og Sigurlaug skellir upp úr. Ekkert jafnast á við breskan húmor. Þau hafa áhuga á að komast í hvalaskoðun og Sigurlaug gengur án vífilengja í málið. Hringir tvö símtöl og allt er klárt. „Hvort viljið þið fara í dag eða á morgun?“ Hjónin þakka pent fyrir sig með handabandi og bóndinn kveður Sigurlaugu með þeim orðum að vonandi sjáist þau aftur að ári. „Þessi staður er yndislegur!“ Ekki er til betri auglýsing en ánægðir viðskiptavinir og Sigurlaug segir hið nýja hótel leggja mikið upp úr hlýju viðmóti og persónulegri en um leið faglegri þjónustu. Stífleiki og kuldi eigi aldrei við. „Þessi ágæti maður,“ segir hún, „var búinn að leggja mikið á sig til að gleðja konuna sína á þess- um merku tímamótum. Kaupa fjögurra rú- bína hring sem hann bað okkur að bera fram með eftirréttinum. Frúin var að vonum í skýjunum. Þess utan sendum við þeim freyðivín og blóm inn á herbergi, sem hann hafði ekki hugmynd um. Þau voru í skýj- unum með þetta.“ Gekk yfir alpana Sigurlaug Sverrisdóttir er Seltirningur í húð og hár, dóttir hjónanna Sverris Hann- essonar, sem starfað hefur í áratugi hjá Samskipum, á sjó og í landi, og Helgu Val- lýjar Björgvinsdóttur, ritara bæjarstjóra á Seltjarnarnesi og prjónakonu, en Sigurlaug sýnir mér stolt ullarvörur eftir móður sína sem hægt er að kaupa á Ion-hótelinu. Sigurlaug er fædd 1. mars 1973 og varð því fertug í gær, föstudag. Viðtalið fór fram fáeinum dögum áður og þá hafði Sigurlaug ekki ákveðið endanlega hvernig hún ætlaði að fagna tímamótunum. „Það hefur verið brjálað að gera að undanförnu og ætli ég verðlauni mig ekki með spa á föstudaginn og skelli mér svo á skíði á laugardaginn. Það hefur alltof lítill tími gefist til þess í vetur.“ Sigurlaug er ekki aðeins forfallin skíða- manneskja heldur ann hún útivist almennt. Hún hjólar, hleypur, syndir, gengur á fjöll, veiðir í ám og vötnum og Guð má vita hvað. „Ég hef alltaf æft af kappi en lítið hefur farið fyrir því síðustu mánuði vegna anna. Nú sé ég loksins fram úr þessari törn og þá tek ég upp þráðinn,“ segir Sigurlaug sem meðal annars hefur tekið þátt í þríþraut í Lausanne í Sviss, hafnaði meira að segja í öðru sæti í sínum aldursflokki. Af öðrum þrekraunum sem hún hefur lagt á sig var að fara svonefnda „Haute Route“ eða háu leiðina í Ölpunum á fjallaskíðum. Þá ferð fór Sigurlaug ásamt eiginmanni sínum, Halldóri Hafsteinssyni, og fleirum síðastlið- inn vetur. Um er að ræða vikuferð sem hófst í Chamonix, við rætur Mount Blanc og endaði í Zermatt, við rætur Matterhorn. „Við þurftum að klífa heilmikið og vorum eiginlega meira með skíðin á bakinu en fót- unum,“ rifjar hún upp. „Þetta var mikil þol- raun og án efa ein skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í um dagana.“ Gleymið ekki „ælunni“! Franskur leiðsögumaður fór fyrir hópnum og á undirbúningstímanum hjó Sigurlaug eftir því að hann skrifaði þeim einatt á bjag- aðri íslensku. „Fyrst héldum við að hann væri bara að þýða upplýsingarnar í Google Translate. Klóruðum okkur til dæmis mikið í höfðinu þegar hann brýndi fyrir okkur að gleyma ekki „ælunni“. Síðar kom í ljós að hann meinti „ýlunni“, það er að segja snjóflóðaýlunni. Þegar við hittum manninn svo loksins kom í ljós að hann talaði ljóm- andi góða íslensku eftir að hafa verið hér skiptinemi í tólf mánuði fjórtán árum áður.“ Á nóttunni var gist í þar til gerðum skál- um, þar sem göngugarparnir höfðu trakter- ingar. „Fjallamenningin er mjög flott í Sviss og í þessum skálum er ekki aðeins boðið upp á gistingu heldur líka þriggja rétta málsverð. Það er ekki í kot vísað. Þetta ætt- um við Íslendingar að taka okkur til fyr- irmyndar enda möguleikarnir miklir á há- lendinu hér heima.“ Sigurlaug hóf störf sem flugfreyja hjá Atl- anta liðlega tvítug og vann þar í þrettán ár, fram til ársins 2007. Á þeim tíma ferðaðist hún vítt og breitt um heiminn. Fór meðal annars öll árin í pílagrímaflug. „Allir músl- imar þurfa að fara í slíkt ferðalag að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Ég hlýt því að standa vel að vígi langi mig að ganga íslam á hönd,“ segir hún hlæjandi. Enda þótt gaman sé að kynnast ólíkum menningarheimum kveðst Sigurlaug fljótlega hafa áttað sig á því á ferðum sínum hvílík forréttindi það séu að fæðast á Íslandi. Fáir íbúar heimsins búi við slíkt frelsi og vel- sæld. Eitt atvik situr sérstaklega í henni. Það átti sér stað á flugvelli í Nígeríu. „Þegar við lentum beið eftir okkur broshýr ungur drengur sem langaði að skoða flugvélina. Hann bauð af sér svo góðan þokka að ég gat ekki ímyndað mér annað en að það væri í lagi. Þá skarst vörður á flugvelllinum hins vegar í leikinn og lét sér ekki nægja að vísa drengnum frá heldur þurfti hann líka að slá hann með byssuskeftinu. Réttlætiskennd minni var gróflega misboðið og það sauð hreinlega á mér. Flugstjórinn kom þó í veg fyrir að ég skipti mér að atvikinu enda hefði það örugglega ekki haft góðar afleiðingar.“ Eftir að Sigurlaug hætti störfum sem flugfreyja stofnaði hún eigið félag, SEP, í þeim tilgangi að þjálfa flugfreyjur í Lett- landi, Litháen og víðar. Áherslan í því námi er á öryggisþáttinn. Þá lagði hún stund á heilsutengt nám í New York og hafði veg og vanda af undirbúningi flugfreyjunámsins hjá Keili. Viðskiptafélaginn fórst Halldór er viðskiptafræðingur að mennt og var um árabil fjármálastjóri Atlanta, þar sem þau Sigurlaug kynntust. Árið 2009 urðu straumhvörf í lífi þeirra hjóna þegar náinn vinur og viðskiptafélagi, Hafþór Hafsteinsson féll frá. Þetta fékk þau hjónin til að endurmeta lífsgildin og skipu- leggja lífsmynstur sitt uppá nýtt. Eftir þetta var félagið ACP stofnað ásamt Davíð Mássyni og Garðari Forberg með það fyrir augum að fara út í flugrekstur. ACP festi síðan kaup á 50% hlut í litháíska flug- félaginu Avion Express sem meðal annars leigði WOW Air fyrstu vélarnar á síðasta ári. Félagið á nú átta Airbus-vélar sem það leigir öðrum flugfélögum. „Við höfum mikla reynslu af flugi og þegar þetta tækifæri kom upp létum við ekki segja okkur það tvisvar,“ segir Sigurlaug. Síðla árs 2009 fluttu Sigurlaug og Halldór til Sion, höfuðborgar kantónunnar Valais í Sviss. Borgin er í hjarta Alpanna og stutt til allra átta. Sannkölluð paradís skíðamanns- ins. Í Sion stofnuðu þau félag, Ibex Lodges, sem heitir eftir frægustu fjallageitinni í ölp- unum. Það sérhæfir sig í útleigu húsnæðis, að sumri jafnt sem vetri. Þá tók Sigurlaug að sér að skipuleggja ferðir af ýmsum toga fyrir Íslendinga, svo sem heilsuferðir, jóga- ferðir, hráfæðisvikur og fjallgönguferð fyrir konur. „Síðastnefnda ferðin var mjög skemmtileg. Ég bjóst við svona tíu konum en þær urðu 26 og allar hæstánægðar.“ Fyrir hálfu þriðja ári eignuðust Sigurlaug og Halldór sitt fyrsta barn, dóttur sem skírð var Alexía Helga. „Hafandi heitið Sigurlaug í útlöndum öll þessi ár vildi ég gera dóttur minni þann greiða að gefa henni alþjóðlegt nafn,“ segir Sigurlaug og hlær við tilhugs- unina um framburðinn. Raunar notast hún mest við gælunafn sitt. „Ég hef alltaf verið kölluð Laulau, eins og amma.“ Ígildi meistaranáms Alexía Helga er eina barnabarn foreldra Sigurlaugar og segir hún þá staðreynd hafa spilað inn í þegar þau Halldór ákváðu að flytja aftur heim á síðasta ári. Þau hafa þó hvergi sagt skilið við Sviss en hugmyndin er að dveljast þar reglulega í framtíðinni, eink- um að vetrarlagi. „Ég hefði til dæmis ekk- ert á móti því að dóttir mín færi í skóla í Sviss, alla vega að hluta. Fjögur tungumál eru töluð í landinu og eins og við vitum er fátt mikilvægara en tungumálanám á þess- um síðustu tímum.“ Rekstur Ion-hótelsins er ekki eina verk- efni hjónanna hér heima um þessar mundir. Þau eiga einnig hlut í ferðaskrifstofunni Arctic Adventures og er ætlunin að þetta tvennt vinni náið saman, hótelið og ferða- skrifstofan enda markhópurinn nátengdur. Að auki koma hjónin að leigu á Þverá og Kjarrá næstu fimm árin en eins og fram hefur komið eru þau bæði forfallið veiðifólk. Áður en Ion-verkefnið náði heljartökum á Sigurlaugu ætlaði hún að fara í meist- aranám í lögfræði. Af því varð ekki. „Ég ákvað að byggja hótel í staðinn og hef örugglega lært alveg álíka margt á því – lík- lega meira,“ segir hún brosandi. Verkefnin eru mörg og fjölbreytnin mikil. Spurð hvort þetta sé ekki með nokkrum ólíkindum skellir Sigurlaug upp úr. „Það getur vel verið. Ég er bara léleg í því að hafa lítið fyrir stafni!“ Alltaf að leita að tækifærum Sigurlaug og eiginmaður hennar, Halldór Hafsteinsson, keyptu Hótel Hengil af Orku- veitunni í árslok 2010 en Stefnir fjárfest- ingasjóður á 50% á móti þeim í húsnæðinu. Rekstrarfélagið er aðskilið en fjárfestinga- félagið Gistiver hefur aðkomu að því, auk hjónanna. Sigurlaug er ekki ókunnug hót- elrekstri en hún rak um tíma lúxusgisti- heimili á Túngötu í Reykjavík. Spurð um ástæðuna fyrir kaupunum segir Sigurlaug þau lengi hafa dreymt um að eignast sumarhús á eða við Þingvelli sem er að hennar dómi fallegasti staður á Íslandi, fyrir utan Mývatn. „Það er bara svo langt þangað,“ segir hún brosandi. Sumarhúsið losnaði að vísu ekki en það gerði hótelið, þannig að þau létu bara slag standa. „Ég held að enginn sem þekkir okkur hafi orðið undrandi á því. Við erum alltaf að leita að nýjum tækifærum.“ Nafnið Ion er enska heitið yfir jón (í efnafræðilegum skilningi). Í því felst einnig orðaleikur, „I on Iceland“, sem erlendir gestir geta tengt við. Þá enda fjölmörg nafnorð í enskri tungu á -ion, svo sem „exp- loration“, „sophistication“ og „relaxation“, sem eru einkunnarorð Ion-hótels. „Annars er fólki frjálst að túlka nafnið að vild,“ segir Sigurlaug. „Þannig kom barnabarn Jóns heitins á Nesjum til mín nýverið og þakkaði mér fyrir að nefna hótelið í höfuðið á afa sínum.“ 22 herbergi voru í gamla hótelinu en hjónin ákváðu strax að stækka það enda væri það óhagkvæm rekstrareining. Byggt Enginn meðal-Jón SIGURLAUG SVERRISDÓTTIR, HÓTELSTÝRAN Á NÝJU FJÖGURRA STJÖRNU HÓTELI Á NESJAVÖLLUM, ION LUXURY ADVENTURE HOTEL, HEFUR VERIÐ Á FERÐ OG FLUGI UNDANFARNA TVO ÁRATUGI ENDA Á HÚN ERFITT MEÐ AÐ HAFA LÍTIÐ FYRIR STAFNI. HÚN HEFUR VERIÐ FLUGFREYJA, SKIPULAGT ÆVINTÝRAFERÐIR Í SVISS, SETT Á LAGGIRNAR FLUGFREYJUNÁM, TEKIÐ ÞÁTT Í ÞRÍÞRAUT OG GENGIÐ YFIR ALPANA, SVO FÁTT EITT SÉ NEFNT. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is Sigurlaug Sverrisdóttir fagnar fjölgun ferðamanna á Íslandi og segir sóknarfærin ótvíræð. Viðtal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.