Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
H
ið nýja Ion hótel fer ekki
framhjá nokkrum manni þar
sem það gægist fram úr
hrauninu á Nesjavöllum.
Hefur yfir sér blæ ævintýra.
Þegar stigið er út úr bílnum í hlaðinu fyllir
hveralyktin vit og fullkomnar upplifunina af
landinu okkar, þessu tæra en hrjúfa djásni.
Það er helst að veðrið villi um fyrir manni,
á að vera 9 stiga hiti á Celcius í endaðan
febrúar? Ætli það sé ekki hið nýja Ísland,
fyrst menn eru á annað borð byrjaðir að
taka til í landinu má alveg lappa upp á
veðrið í leiðinni.
Í lobbíinu er hótelstýran sjálf, Sigurlaug
Sverrisdóttir, að spjalla við tvo gesti. Í ljós
kemur að það eru bresk hjón að halda upp
á fjörutíu ára brúðkaupsafmæli. „Já, ég er
mjög umburðarlyndur og þolinmóður maður
að eðlisfari. Þessi stúlka hérna er ein-
staklega heppin,“ segir bóndinn kíminn á
svip. Frúin glottir og Sigurlaug skellir upp
úr. Ekkert jafnast á við breskan húmor.
Þau hafa áhuga á að komast í hvalaskoðun
og Sigurlaug gengur án vífilengja í málið.
Hringir tvö símtöl og allt er klárt. „Hvort
viljið þið fara í dag eða á morgun?“ Hjónin
þakka pent fyrir sig með handabandi og
bóndinn kveður Sigurlaugu með þeim orðum
að vonandi sjáist þau aftur að ári. „Þessi
staður er yndislegur!“
Ekki er til betri auglýsing en ánægðir
viðskiptavinir og Sigurlaug segir hið nýja
hótel leggja mikið upp úr hlýju viðmóti og
persónulegri en um leið faglegri þjónustu.
Stífleiki og kuldi eigi aldrei við. „Þessi ágæti
maður,“ segir hún, „var búinn að leggja
mikið á sig til að gleðja konuna sína á þess-
um merku tímamótum. Kaupa fjögurra rú-
bína hring sem hann bað okkur að bera
fram með eftirréttinum. Frúin var að vonum
í skýjunum. Þess utan sendum við þeim
freyðivín og blóm inn á herbergi, sem hann
hafði ekki hugmynd um. Þau voru í skýj-
unum með þetta.“
Gekk yfir alpana
Sigurlaug Sverrisdóttir er Seltirningur í húð
og hár, dóttir hjónanna Sverris Hann-
essonar, sem starfað hefur í áratugi hjá
Samskipum, á sjó og í landi, og Helgu Val-
lýjar Björgvinsdóttur, ritara bæjarstjóra á
Seltjarnarnesi og prjónakonu, en Sigurlaug
sýnir mér stolt ullarvörur eftir móður sína
sem hægt er að kaupa á Ion-hótelinu.
Sigurlaug er fædd 1. mars 1973 og varð
því fertug í gær, föstudag. Viðtalið fór fram
fáeinum dögum áður og þá hafði Sigurlaug
ekki ákveðið endanlega hvernig hún ætlaði
að fagna tímamótunum. „Það hefur verið
brjálað að gera að undanförnu og ætli ég
verðlauni mig ekki með spa á föstudaginn
og skelli mér svo á skíði á laugardaginn.
Það hefur alltof lítill tími gefist til þess í
vetur.“
Sigurlaug er ekki aðeins forfallin skíða-
manneskja heldur ann hún útivist almennt.
Hún hjólar, hleypur, syndir, gengur á fjöll,
veiðir í ám og vötnum og Guð má vita hvað.
„Ég hef alltaf æft af kappi en lítið hefur
farið fyrir því síðustu mánuði vegna anna.
Nú sé ég loksins fram úr þessari törn og þá
tek ég upp þráðinn,“ segir Sigurlaug sem
meðal annars hefur tekið þátt í þríþraut í
Lausanne í Sviss, hafnaði meira að segja í
öðru sæti í sínum aldursflokki.
Af öðrum þrekraunum sem hún hefur lagt
á sig var að fara svonefnda „Haute Route“
eða háu leiðina í Ölpunum á fjallaskíðum. Þá
ferð fór Sigurlaug ásamt eiginmanni sínum,
Halldóri Hafsteinssyni, og fleirum síðastlið-
inn vetur. Um er að ræða vikuferð sem
hófst í Chamonix, við rætur Mount Blanc og
endaði í Zermatt, við rætur Matterhorn.
„Við þurftum að klífa heilmikið og vorum
eiginlega meira með skíðin á bakinu en fót-
unum,“ rifjar hún upp. „Þetta var mikil þol-
raun og án efa ein skemmtilegasta ferð sem
ég hef farið í um dagana.“
Gleymið ekki „ælunni“!
Franskur leiðsögumaður fór fyrir hópnum
og á undirbúningstímanum hjó Sigurlaug
eftir því að hann skrifaði þeim einatt á bjag-
aðri íslensku. „Fyrst héldum við að hann
væri bara að þýða upplýsingarnar í Google
Translate. Klóruðum okkur til dæmis mikið
í höfðinu þegar hann brýndi fyrir okkur að
gleyma ekki „ælunni“. Síðar kom í ljós að
hann meinti „ýlunni“, það er að segja
snjóflóðaýlunni. Þegar við hittum manninn
svo loksins kom í ljós að hann talaði ljóm-
andi góða íslensku eftir að hafa verið hér
skiptinemi í tólf mánuði fjórtán árum áður.“
Á nóttunni var gist í þar til gerðum skál-
um, þar sem göngugarparnir höfðu trakter-
ingar. „Fjallamenningin er mjög flott í Sviss
og í þessum skálum er ekki aðeins boðið
upp á gistingu heldur líka þriggja rétta
málsverð. Það er ekki í kot vísað. Þetta ætt-
um við Íslendingar að taka okkur til fyr-
irmyndar enda möguleikarnir miklir á há-
lendinu hér heima.“
Sigurlaug hóf störf sem flugfreyja hjá Atl-
anta liðlega tvítug og vann þar í þrettán ár,
fram til ársins 2007. Á þeim tíma ferðaðist
hún vítt og breitt um heiminn. Fór meðal
annars öll árin í pílagrímaflug. „Allir músl-
imar þurfa að fara í slíkt ferðalag að
minnsta kosti einu sinni á ævinni. Ég hlýt
því að standa vel að vígi langi mig að ganga
íslam á hönd,“ segir hún hlæjandi.
Enda þótt gaman sé að kynnast ólíkum
menningarheimum kveðst Sigurlaug fljótlega
hafa áttað sig á því á ferðum sínum hvílík
forréttindi það séu að fæðast á Íslandi. Fáir
íbúar heimsins búi við slíkt frelsi og vel-
sæld.
Eitt atvik situr sérstaklega í henni. Það
átti sér stað á flugvelli í Nígeríu. „Þegar við
lentum beið eftir okkur broshýr ungur
drengur sem langaði að skoða flugvélina.
Hann bauð af sér svo góðan þokka að ég
gat ekki ímyndað mér annað en að það væri
í lagi. Þá skarst vörður á flugvelllinum hins
vegar í leikinn og lét sér ekki nægja að vísa
drengnum frá heldur þurfti hann líka að slá
hann með byssuskeftinu. Réttlætiskennd
minni var gróflega misboðið og það sauð
hreinlega á mér. Flugstjórinn kom þó í veg
fyrir að ég skipti mér að atvikinu enda hefði
það örugglega ekki haft góðar afleiðingar.“
Eftir að Sigurlaug hætti störfum sem
flugfreyja stofnaði hún eigið félag, SEP, í
þeim tilgangi að þjálfa flugfreyjur í Lett-
landi, Litháen og víðar. Áherslan í því námi
er á öryggisþáttinn. Þá lagði hún stund á
heilsutengt nám í New York og hafði veg og
vanda af undirbúningi flugfreyjunámsins hjá
Keili.
Viðskiptafélaginn fórst
Halldór er viðskiptafræðingur að mennt og
var um árabil fjármálastjóri Atlanta, þar
sem þau Sigurlaug kynntust.
Árið 2009 urðu straumhvörf í lífi þeirra
hjóna þegar náinn vinur og viðskiptafélagi,
Hafþór Hafsteinsson féll frá. Þetta fékk þau
hjónin til að endurmeta lífsgildin og skipu-
leggja lífsmynstur sitt uppá nýtt.
Eftir þetta var félagið ACP stofnað ásamt
Davíð Mássyni og Garðari Forberg með það
fyrir augum að fara út í flugrekstur. ACP
festi síðan kaup á 50% hlut í litháíska flug-
félaginu Avion Express sem meðal annars
leigði WOW Air fyrstu vélarnar á síðasta
ári. Félagið á nú átta Airbus-vélar sem það
leigir öðrum flugfélögum. „Við höfum mikla
reynslu af flugi og þegar þetta tækifæri
kom upp létum við ekki segja okkur það
tvisvar,“ segir Sigurlaug.
Síðla árs 2009 fluttu Sigurlaug og Halldór
til Sion, höfuðborgar kantónunnar Valais í
Sviss. Borgin er í hjarta Alpanna og stutt til
allra átta. Sannkölluð paradís skíðamanns-
ins.
Í Sion stofnuðu þau félag, Ibex Lodges,
sem heitir eftir frægustu fjallageitinni í ölp-
unum. Það sérhæfir sig í útleigu húsnæðis,
að sumri jafnt sem vetri. Þá tók Sigurlaug
að sér að skipuleggja ferðir af ýmsum toga
fyrir Íslendinga, svo sem heilsuferðir, jóga-
ferðir, hráfæðisvikur og fjallgönguferð fyrir
konur. „Síðastnefnda ferðin var mjög
skemmtileg. Ég bjóst við svona tíu konum
en þær urðu 26 og allar hæstánægðar.“
Fyrir hálfu þriðja ári eignuðust Sigurlaug
og Halldór sitt fyrsta barn, dóttur sem skírð
var Alexía Helga. „Hafandi heitið Sigurlaug
í útlöndum öll þessi ár vildi ég gera dóttur
minni þann greiða að gefa henni alþjóðlegt
nafn,“ segir Sigurlaug og hlær við tilhugs-
unina um framburðinn. Raunar notast hún
mest við gælunafn sitt. „Ég hef alltaf verið
kölluð Laulau, eins og amma.“
Ígildi meistaranáms
Alexía Helga er eina barnabarn foreldra
Sigurlaugar og segir hún þá staðreynd hafa
spilað inn í þegar þau Halldór ákváðu að
flytja aftur heim á síðasta ári. Þau hafa þó
hvergi sagt skilið við Sviss en hugmyndin er
að dveljast þar reglulega í framtíðinni, eink-
um að vetrarlagi. „Ég hefði til dæmis ekk-
ert á móti því að dóttir mín færi í skóla í
Sviss, alla vega að hluta. Fjögur tungumál
eru töluð í landinu og eins og við vitum er
fátt mikilvægara en tungumálanám á þess-
um síðustu tímum.“
Rekstur Ion-hótelsins er ekki eina verk-
efni hjónanna hér heima um þessar mundir.
Þau eiga einnig hlut í ferðaskrifstofunni
Arctic Adventures og er ætlunin að þetta
tvennt vinni náið saman, hótelið og ferða-
skrifstofan enda markhópurinn nátengdur.
Að auki koma hjónin að leigu á Þverá og
Kjarrá næstu fimm árin en eins og fram
hefur komið eru þau bæði forfallið veiðifólk.
Áður en Ion-verkefnið náði heljartökum á
Sigurlaugu ætlaði hún að fara í meist-
aranám í lögfræði. Af því varð ekki. „Ég
ákvað að byggja hótel í staðinn og hef
örugglega lært alveg álíka margt á því – lík-
lega meira,“ segir hún brosandi.
Verkefnin eru mörg og fjölbreytnin mikil.
Spurð hvort þetta sé ekki með nokkrum
ólíkindum skellir Sigurlaug upp úr. „Það
getur vel verið. Ég er bara léleg í því að
hafa lítið fyrir stafni!“
Alltaf að leita að tækifærum
Sigurlaug og eiginmaður hennar, Halldór
Hafsteinsson, keyptu Hótel Hengil af Orku-
veitunni í árslok 2010 en Stefnir fjárfest-
ingasjóður á 50% á móti þeim í húsnæðinu.
Rekstrarfélagið er aðskilið en fjárfestinga-
félagið Gistiver hefur aðkomu að því, auk
hjónanna. Sigurlaug er ekki ókunnug hót-
elrekstri en hún rak um tíma lúxusgisti-
heimili á Túngötu í Reykjavík.
Spurð um ástæðuna fyrir kaupunum segir
Sigurlaug þau lengi hafa dreymt um að
eignast sumarhús á eða við Þingvelli sem er
að hennar dómi fallegasti staður á Íslandi,
fyrir utan Mývatn. „Það er bara svo langt
þangað,“ segir hún brosandi. Sumarhúsið
losnaði að vísu ekki en það gerði hótelið,
þannig að þau létu bara slag standa. „Ég
held að enginn sem þekkir okkur hafi orðið
undrandi á því. Við erum alltaf að leita að
nýjum tækifærum.“
Nafnið Ion er enska heitið yfir jón (í
efnafræðilegum skilningi). Í því felst einnig
orðaleikur, „I on Iceland“, sem erlendir
gestir geta tengt við. Þá enda fjölmörg
nafnorð í enskri tungu á -ion, svo sem „exp-
loration“, „sophistication“ og „relaxation“,
sem eru einkunnarorð Ion-hótels. „Annars
er fólki frjálst að túlka nafnið að vild,“ segir
Sigurlaug. „Þannig kom barnabarn Jóns
heitins á Nesjum til mín nýverið og þakkaði
mér fyrir að nefna hótelið í höfuðið á afa
sínum.“
22 herbergi voru í gamla hótelinu en
hjónin ákváðu strax að stækka það enda
væri það óhagkvæm rekstrareining. Byggt
Enginn meðal-Jón
SIGURLAUG SVERRISDÓTTIR, HÓTELSTÝRAN Á NÝJU FJÖGURRA STJÖRNU HÓTELI Á NESJAVÖLLUM, ION LUXURY
ADVENTURE HOTEL, HEFUR VERIÐ Á FERÐ OG FLUGI UNDANFARNA TVO ÁRATUGI ENDA Á HÚN ERFITT MEÐ
AÐ HAFA LÍTIÐ FYRIR STAFNI. HÚN HEFUR VERIÐ FLUGFREYJA, SKIPULAGT ÆVINTÝRAFERÐIR Í SVISS, SETT Á
LAGGIRNAR FLUGFREYJUNÁM, TEKIÐ ÞÁTT Í ÞRÍÞRAUT OG GENGIÐ YFIR ALPANA, SVO FÁTT EITT SÉ NEFNT.
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is
Sigurlaug Sverrisdóttir fagnar
fjölgun ferðamanna á Íslandi og
segir sóknarfærin ótvíræð.
Viðtal