Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
HEIMURINN
KÚBA
HAVANA Raul Castro
hóf nýtt fimm ára tímabil
á stóli forseta og lýsti
yfir því um leið að það
yrði hans síðasta. Hann
sagði jafnframt að eftirmaður sinn
yrði Miguel Diaz-Canel, fyrrverandi
menntamálaráðherra, sem var gerður
að varaforseta. Þykja þessi tíðindi
marka upphaf þess að völdin færist í
hendur kynslóðar, sem fæddist eftir
byltinguna á Kúbu árið 1959.
SUÐUR-AFRÍKA
PRETORIA Mikið uppnám varð í Suður-Afríku þegar birt var
myndband sem sýndi lögreglu draga innflytjanda frá Mósambík á eftir
bíl og myrða hann. Átta lögregluþjónar eru sakaðir um athæfið og
hefur þeim verið vikið frá störfum. Jakob Zuma, forseti Suður-Afríku,
fordæmdi verknaðinn. Lögreglan í Suður-Afríku hefur legið undir ámæli
fyrir ofbeldi og fúsk. Þetta bætir ekki orðspor hennar.
SUÐUR-KÓREA
SEOUL Park Geun-hye settist
í embætti forseta Suður-Kóreu.
Hún er fyrsta konan til að gegna
embættinu. Park sigraði Moon Jae-
in í forsetakosningunum. Hún lagði
áherslu á eflingu varna landsins í kosningabar-
áttunni og hét efnahagslegri endurreisn. Stutt
er síðan Norður-Kórea gerði kjarnorkutilraun.
ÍTALÍA
RÓM Úrslit kosninganna á Ítalíu ýttu undir hrakspár um framtíð
evrusvæðisins. Bandalag vinstri- og miðflokka undir forustu Piers
Luigis Bersanis fékk mest fylgi og náði vegna kosningareglna
meirihluta í neðri deild þingsins, en ekki í öldungadeildinni.
Bandalag hægri flokka undir forustu Silvios Berlusconis fékk
næstmest fylgi. Þriðja flokkinn leiðir grínistinn Beppe Grillo og er hann í
oddastöðu. Grillo vill hins vegar ekki sjá samstarf við meginfylkingarnar tvær
og verður því erfitt að mynda starfhæfa stjórn í landinu.
Hvergi eru nauðganir jafn
algengar og í Suður-Afríku.
Hryllileg nauðgun og morð
á 17 ára gamalli stúlku,
Anene Booysen, sem var
skilin eftir með iðrin úti,
hefur hrist upp í þjóðinni og
nú hefur Jakob Zuma forseti
skorið upp herör gegn
nauðgunum. Í fyrra voru til-
kynnt 64.000 tilfelli og er
talið að það sé aðeins brot
af þeim nauðgunum, sem
framdar séu. 2010 var gerð
rannsókn í Suður-Afríku þar
sem einn af hverjum þremur
karlkyns þátttakendum
kvaðst hafa nauðgað
að minnsta kosti
einni konu á ævinni
og ein af hverjum
fjórum konum sagði
að sér hefði verið
nauðgað.
Suður-Afríka er land óttans. Þar
lifir fólk í stöðugum ótta við náung-
ann, er við öllu búið og sefur helst
með byssu undir rúminu. Þeir sem
hafa efni á kaupa sér hús í afgirt-
um hverfum þar sem verðir fylgjast
með mannaferðum allan sólarhring-
inn. Þetta er sú mynd, sem dregin
hefur verið upp af Suður-Afríku
eftir að spretthlauparinn Oscar Pi-
storius skaut kærustu sína, Reevu
Steenkamp, á heimili sínu í Preto-
ríu fyrr í mánuðinum.
Gróska í öryggisiðnaði
Hin afgirtu samfélög eru kölluð
„öryggisþorp“ í Suður-Afríku. Sér-
fræðingar segja margir að þau gefi
íbúum þeirra falska öryggiskennd.
„Fólk leitast við að búa sér til lífs-
stíl, sem er ekki í samræmi við
raunverulegt borgarlíf á okkar tím-
um,“ sagði Erna Van Wyk, sálfræð-
ingur við Witwatersrand-háskóla, í
samtali við fréttastofuna AFP.
Rannsóknir hennar sýna að sam-
eiginleg viðhorf laði fólk inn í hin
lokuðu þorp. Það hafi á tilfinning-
unni að allar hættur séu ut-
anaðkomandi. „Hins vegar er heim-
ilisofbeldi alveg jafn algengt í
hinum afgirtu samfélögum.“
Silver Woods þar sem Pistorius á
heima er eitt af fjölmörgum afgirt-
um samfélögum. Undanfarinn ára-
tug hefur eftirspurnin eftir húsnæði
í þeim farið hraðvaxandi. Miklar
fjárhæðir fara í öryggisviðbúnað í
þessum þorpum og reyndar er ör-
yggisiðnaðurinn snar þáttur í efna-
hagslífi landsins. Innbrotsvarnir
fyrir heimili, verslanir og fyrirtæki
velta 60 milljörðum randa (um 847
milljörðum króna) samkvæmt tölum
Samtaka suðurafrískra innbrots-
varnafyrirtækja. 2011 var talið að
rúmlega 400 þúsund öryggisverðir
störfuðu í landinu. Lögreglumenn í
Suður-Afríku eru 200 þúsund.
Búseta í hinum lokuðu sam-
félögum snýst hins vegar ekki að-
eins um öryggi, heldur einnig stöðu
og ákveðna fortíðarþrá.
„Margir íbúar hinna afgirtu sam-
félaga leitast við að búa til einhvers
konar unaðsreit, sem passar við
þorpslífið fyrir hina hröðu borg-
arvæðingu,“ sagði Van Wyk. „Um
leið byggist þessi lífsstíll á auði og
ákveðinni sérhyggju, sem útilokar
þá sem standa utan við mörk
slíkra samfélaga.“
Sumum finnst þetta einnig
minna á myrkari tíma í sögu
landsins. Víggirt þorp
enduspegli nýja aðskiln-
aðarstefnu þar sem vel-
megandi hvítir menn
leitist við að skilja sig
frá fátækari blökku-
mönnum. AFP vísar í
tímaritsgrein, sem starfs-
félagar Van Wyk við Miðstöð borg-
ar- og mannvirkjafræða, skrifuðu
þar sem segir að sagt sé „að ótt-
anum við glæpi sé teflt fram til að
fela ótta vegna kynþáttafordóma“.
Gríðarleg misskipting
Þegar aðskilnaðarstefnan var
kvödd 1994 fengu blökkumenn póli-
tísk réttindi til jafns við hvíta. Þótt
blökkumönnum hafi fjölgað í röðum
hinna velmegandi hefur lítið unnist
í að brúa bilið á milli ríkra og fá-
tækra í landinu, sem er með því
mesta í heiminum. Atvinnuleysi er
25% og tæp 45% meðal ungs fólks.
Þetta ástand ýtir undir glæpi.
Það er vandasamt að bera saman
glæpatíðni milli landa, en sam-
kvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna
eru tíu lönd ofar en Suður-Afríka
hvað tíðni morða snertir. Þá hefur
morðum fækkað verulega í landinu
og farið úr 64,9 morðum á hverja
100 þúsund íbúa 1995, árið eftir að
Nelson Mandela varð forseti, í 31,8
morð á hverja 100 þúsund íbúa árið
2010. Í helmingi tilfella eru byssur
morðvopnið.
Ástæðurnar fyrir ofbeldinu geta
verið margvíslegar. Sumir vísa til
misskiptingarinnar í landinu. Auður
hinna ríku blasi við hinum alls-
lausu. Aðrir benda á arfleifð að-
skilnaðarstefnunnar, sem byggðist
á ofbeldi og einnig þess að and-
stæðingar aðskilnaðarstefnunnar
beittu ofbeldi, þótt á endanum hafi
hún verið afnumin friðsamlega.
Ljóst er að í hugum margra íbúa
Suður-Afríku ríkir umsátursástand.
Árið 2004 var Rudi Visagie, at-
vinnumaður í rúbbíi, sýknaður af
ákæru um að hafa myrt 19 ára
dóttur sína í bílskúrnum heima hjá
sér. Hann hélt hún væri bílaþjófur.
Pistorius kveðst hafa haldið að
kærastan sín væri innbrotsþjófur.
Ákæruvaldið segir að hann hafi
myrt hana. Andlát Reevu Steen-
kamp breytir litlu um tölfræðina
um hina föllnu í Suður-Afríku, en
það hefur beint sviðsljósinu að
ástandinu í landinu.
Helst með
byssu undir
rúminu
Í SUÐUR-AFRÍKU ER HÆGT AÐ MALA GULL Á ÓTTANUM.
ÞAR KAUPA ÞEIR SEM HAFA EFNI Á ÍBÚÐIR Í AFGIRTUM
ÞORPUM MEÐ STRANGRI ÖRYGGISGÆSLU. HELMINGI
FLEIRI VINNA VIÐ ÖRYGGISVÖRSLU EN LÖGGÆSLU.
Jakob Zuma,
forseti Suður-
Afríku.
GEGN NAUÐGUNUM
Oscar Pistorius bjó í þorpi, sem er umgirt háum veggjum til að halda innbrotsþjófum frá. Hann sá engu að síður
ástæðu til að sofa með skotvopn við höndina. Í Suður-Afríku kjósa margir að búa í slíkum þorpum.
AFP
* Glæpamenn gera ráð fyrir að fórnarlömb þeirra séu með byssu. Þegar þeirbrjótast inn er fyrsta verk þeirra að leita að byssu eigandans.Geoffrey York blaðamaður í grein í kanadíska blaðinu Globe and Mail.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is