Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 13
gerð en það undarlega er að nú er
uppi umræða um að þeir verði að
snúa til baka. Þeir hafa verið að
framleiða þætti sem njóta gríð-
arlegra vinsælda víða um heim þar
sem konur á virðulegum aldri eru
stjörnurnar en íhuga að snúa sér
aftur að körlum í aðalhlutverkin.
Þeim finnst sem sagt að konur hafi
fengið of mikið vægi. Allt í einu er
það ekki velgengni þáttanna sem
stjórnar för heldur þykir nauðsyn-
legt að gefa karlkyninu tækifæri.
Gott og vel, við viljum ekki eins-
leitni, en það er nokkuð sér-
kennilegt að umskipti eins og þessi
séu talin eðlileg einungis þegar
hallar á karla.“
10 æðisleg mynd
Það er þér greinilega mikið hjart-
ans mál að rétta hlut kvenna í
kvikmyndagerð. Eru aðrir þættir
varðandi konur og stöðu þeirra sem
þér finnst ástæða til að nefna sér-
staklega í þessu viðtali?
„Það er fjölmargt, en kannski
eitt atriði sérstaklega. Mig langar
að sjá konur og karla hætta að
hafa áhyggjur af útliti kvenna. Það
sem konur hafa að segja eiga þær
að fá að segja hátt og snjallt en
ekki eyða dýrmætum tíma og orku
í að framfylgja óraunhæfum út-
litskröfum.“
Þú vinnur sem klippari og ert
lokuð inni í herbergi að klippa
kvikmyndir. Hvað er skemmtilegt
við það?
„Ég get skipulagt líf persóna og
fengið hluti til að virka. Upplifað
stjórn sem mig oft skortir svo
sárlega í lífinu sjálfu. Það er svo
margt í handriti sem verður óþarfi
þegar leikstjóri, kvikmyndatöku-
maður, leikarar, leikmynd, förðun
og búningar hafa lagt sitt í efnið
sem getur skapað sömu tilfinningu
og samtal gerði í handritinu. Mér
finnst mjög gaman að hreinsa
burt allan óþarfa og fá myndina
þannig til að flæða betur. Ég vil
ekki að hlutirnir séu þvingaðir
heldur að eitt leiði af öðru á sem
eðlilegastan hátt. Þetta þýðir ekki
að það hafi verið galli í handritinu
heldur breytist svo margt í töku-
ferlinu og þá þarf stundum að
endurraða atriðum eða losa sig við
atriði sem eru óþörf í því stóra
samhengi sem ein kvikmynd er.“
Fékkstu áhuga á kvikmynda-
gerð strax sem stelpa?
„Sem krakki safnaði ég bíópró-
grömmum og á enn fulla kassa af
þeim. Ég var hugfangin af kvik-
myndum og fannst unaðslegt að
sitja inni í bíósal. Ég var vön að
skrifa á þau stutta dóma um
myndirnar sem ég sá. Ekki voru
það merkilegir dómar. Ég man að
ég skrifaði með stórum stöfum á
prógrammið um kvikmyndina 10
þar sem Bo Derek var í aðal-
hlutverki: 10 æðisleg mynd. Ég
hef tekið út mikinn þroska síðan
þá.
Ég eignast barn mjög ung og
fyrir tilviljun fékk ég starf sem
símastúlka hjá SÝN sem sá um
auglýsingagerð og sjónvarpsþætti
eins og Maður er nefndur. Eftir
tvo daga á símanum var ég farin
að vinna á setti. Síðan fór ég í
skóla í London og lærði kvik-
myndagerð og ætlaði að verða
kvikmyndatökumaður. Ég var að-
stoðartökumaður hér heima en svo
endaði ég inni í klippiherbergi,
orðin ólétt aftur.“
Engin löngun til að giftast
Hvað áttu mörg börn?
„Ég á fjögur börn sem ég hef
meira og minna alið upp ein og
ógift. Ég fór aldrei í fæðing-
arorflof og á einhverjum tíma fóru
öll börnin kornung með mér í
vinnuna. Ég á óskaplega þolinmóð
og hjálpleg börn. Ég er hinsvegar
nokkuð viss um að ég hefði ekki
náð sama árangri í kvikmynda-
gerð ef ég væri gift. Karlmenn
eiga auðveldara með fjarveru
vegna vinnu þó að kvikmynda-
gerðin taki toll af báðum kynjum
og sé ekki fjölskylduvænt starf.
Elsti sonur minn, Þorsteinn Máni,
er orðinn fullorðinn og vinnur við
kvikmyndagerð. Hann á fjögurra
ára son þannig að ég er orðin
amma. Sindri er tvítugur, Birta
þrettán ára og Logi minn er átta
ára. Logi, sem er dásamlegur, er
með einkenni einhverfu og það
breytti aðeins dagskránni hjá okk-
ur.“
Hefur þig aldrei langað til að
gifta þig?
„Nei, ég hef aldrei haft löngun
til að gifta mig. Ég segi þetta
með fullri virðingu fyrir vali ann-
arra en fyrir mér er hjónabandið
byggt á hefð sem ég get ekki
gengist inn á.“
Skiptir frelsið þig miklu máli?
„Frelsi skiptir mig miklu máli
en sömuleiðis ábyrgð því frelsinu
fylgir ábyrgð. Ég tek þá ábyrgð
mjög alvarlega. Fyrir mér þýðir
frelsið að fá að ákveða næstu
skref með tilliti til þeirrar ábyrgð-
ar sem ég tek sjálfviljug á mig.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985 • Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
HallóVetur.
við bjuggum okkur undir komu þína
með skynvæddu fjórhjóladrifi.
*B
es
ti
4
x4
bí
ll
ár
si
ns
sa
m
kv
æ
m
tT
ot
al
4
x4
M
ag
az
in
e.
HALLÓ. MEIRA NÝTT.
www.honda.is/cr-v
Með CR-V erum við vel undirbúin þegar snjórinn kastar til okkar tækifærum.
Skynvætt stöðugt vaktandi fjórhjóladrif reiknar út þörfina á gripi og dreifir aflinu
aðeins í þau dekk sem þurfa þess. Á meðan brekku-hraðastjórnandinn hjálpar
þér að halda fullri stjórn og mýkt niður brekkuna, án þess að þú þurfir að bremsa.
Fjórða kynslóð Honda CR-V setur ný viðmið í ferðaþægindum, gæði innréttinga
og gagnsemi í akstri. Náðu taki á vetrinum. Lifðu meira nýtt, keyrðu Honda CR-V.
Besta 4x4 bíl ársins*.
Vel útbúinn Honda cr-V 4x4
sjálfskiptur, frá kr. 5.890.000