Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
Heilsa og hreyfing
F
jögurra kvenna vösk sveit hefur undanfarna mán-
uði hist vikulega og gengið um Akureyrarbæ.
Það er ekki merkilegt í sjálfu sér heldur hitt, að
markmið hópsins er að ganga um hverja einustu
götu og er tvíþætt; annars vegar er gangan hugsuð sem
líkamsrækt, hins vegar til að kynnast bænum betur en
áður. Tvær eru innfæddar; Snæfríður Ingadóttir og
Freyja Dögg Frímannsdóttir.
Hagkvæm lausn
Heiðrún Grétarsdóttir og Sólveig Elín Þórhallsdóttir
eru aftur á móti aðfluttar þótt sú síðastnefnda hafi þá
tengingu að amma hennar bjó á Akureyri.
Snæfríður og Freyja Dögg eru leiðsögumenn, ef svo
má segja, og hugmyndin runnin undan rifjum Snæfríð-
ar. Sumar kvennanna vinna saman og aðrar hafa ein-
hvern tíma gert það. Helsta tengingin áður en göngu-
túrarnir hófust var þó sú að allar eiga börn á líkum
aldri og á sama leikskólanum.
„Við töluðum oft um að gaman yrði að hittast reglu-
lega til að spjalla og jafnvel hreyfa okkur í leiðinni.
Þetta er mjög hagkvæm lausn og segja má að við sláum
tvær flugur í einu höggi,“ segir Heiðrún við blaðamann.
„Í upphafi þurftum við að kaupa mannbrodda því
göngutúrarnir hófust í október, þegar fyrsti snjórinn
kom. Það er eina fjárfestingin. Við höfum að vísu þurft
að skipta um brodda en það er ekki mikill kostnaður.“
Þær hittast alltaf á miðvikudagskvöldum. „Það er
gott að komast frá daglegu amstri um stund og næra
líkama og sál. Mér finnst frábært að kynnast bænum á
þennan hátt; ég hef gengið um margar götur sem ég
hafði ekki vitað að væru til og um hverfi sem ég hafði
aldrei komið í.“
Heiðrún segir Freyju og Snæfríði skipuleggja fyrir
fram hvert sé gengið hverju sinni. „Það hefur oft ráð-
ist af veðri og vindum, og færð á götum. Það snjóar til
dæmis oft minna á Oddeyrinni og þar er meira logn
en í öðrum hverfum, þannig að við höfum mikið gengið
þar í vetur. Ég held að við séum því sem næst búnar
með Eyrina.“
Þær hafa einnig gengið um stóran hluta Brekkunnar
en Glerárhverfi er eftir.
„Við höfum verið að þessu í svartasta skammdeginu
þannig að í einhverjum tilfellum væri líklega enn betra
að sjá bæinn í öðru ljósi en samt hefur þetta verið
fróðlegt; það var til dæmis mjög gaman að sjá muninn
á hverfum fyrir jólin. Íbúar á Eyrinni voru miklu fyrri
til að skreyta en á Brekkunni og voru litaglaðari. Það
var mikið um skemmtilegar skreytingar en í nýju
hverfunum var allt mun stílhreinna og einfaldara. Fólk
byrjaði líka mun fyrr að skreyta á Eyrinni, þeir fyrstu
strax í lok október.“
Dagleg rútína takmörkuð
Heiðrún segir ekkert sérstakt hafa komið sér á óvart,
nema helst hve lítið hún þekkti bæinn í raun eftir
rúmlega tveggja ára búsetu. „Maður áttar sig á því
hve hin daglega rútína er takmörkuð; ef maður þekkir
ekki einhvern í ákveðnum bæjarhluta fer maður jafn-
vel aldrei þangað! Þetta er því stórfín leið til að kynn-
ast bænum. Oft skapast mjög skemmtilegar umræður
á göngunni, um hver býr hvar og ýmsar sögur sagðar
af húsum, hverfum og íbúum, núverandi eða fyrrver-
andi. Við höfðum líka kynnst betur; nú veit ég í hvaða
húsi amma Sólveigar bjó, hvar Snæja ólst upp og í
hvaða húsi Freyja leigði á menntaskólaárunum.“
Gönguhópurinn hugmyndaríki.
Frá vinstri: Heiðrún Grét-
arsdóttir, Sólveig Elín Þórhalls-
dóttir, Snæfríður Ingadóttir og
Freyja Dögg Frímannsdóttir.
D
rottningarbraut
Hörgárbraut
Miðhúsabraut
Þingvalla
stræti
Mið
hús
ave
gur
Hlíðarf
jallsveg
ur
Borgarbraut
Vestursíða
M
erkigil
Austursíða
Try
ggv
abr
aut
Stra
ndg
ata
D
al
sb
ra
ut
Skógarlu
ndur
Hamratún
Læ
kj
ar
ga
ta
Þórunnarstræ
ti
Akureyri
Hálfnað er verk...
Götur sem gönguhópurinn
hefur þegar kynnt sér.
ÓVENJULEG OG FRÆÐANDI HEILSURÆKT Á AKUREYRI
Slá tvær flugur í einu höggi
FJÓRAR UNGAR KONUR Á AKUREYRI TÓKU UPP Á ÞVÍ Í HAUST AÐ SKOÐA BÆINN MARKVISST Á TVEIMUR JAFNFLJÓTUM, EKKI SÍST TIL ÞESS AÐ UTAN-
BÆJARMENNIRNIR Í HÓPNUM KYNNTUST HÖFUÐSTAÐ NORÐURLANDS ALMENNILEGA. ALLUR BÆRINN ER UNDIR OG VERKIÐ UM ÞAÐ BIL HÁLFNAÐ.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson