Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Side 24
*Heimili og hönnunVinnustofa vöruhönnuðanna Snæbjörns og Rósu er vettvangur sköpunar og iðar af lífi »26
H
úsgögn og ýmsir heimilismunir úr plasti eru ekki nýir af nálinni. Hönnuðir á
borð við Charles og Ray Eamas hönnuðu eina þekktustu stóla sína úr trefja-
plasti og það sama gerðist í Evrópu. Hönnuðir á Norðurlöndum og á Ítalíu
hafa ætíð leitað í þennan stórskemmtilega efnivið og má nefna að Normann
Copenhagen og Design House Stockholm hafa framleitt nokkra af sínum flottustu mun-
um úr plasti. Víða um bæ má finna dýrari og ódýrari muni sem gleðja fagurkera.
Sniðugheit Uppþvottagrind þessi
er ein nýjasta varan frá helsta
fagurkera í eldhúsmunum Vestur-
landa; Joseph Joseph. Epal, Skeif-
unni 6. Verð: 10.750
krónur.
Handhægt Óvenjulegt frá Svíþjóð;
plasthægindastóll með pullu. IKEA,
Kauptúni 4. Verð: 9.950 krónur.
Íslenskt Sniðugar geymslu-
krukkur sem eru íslensk
hönnun en hönnuðurinn
Hlynur Atlason, sem hann-
ar undir heitinu Atlason,
gerði þær fyrir Umbra.
Tekk-company, Kauptúni 3.
Verð: 5.800 krónur, þrjú
box saman í pakka.
Stórbrotið Norm 69 ljósið frá
Dönunum í Normann Copenhagen
er með skemmtilegri plastljósum á
markaðnum. Það er til í tveimur
stærðum. Epal, Skeifunni 6. Verð:
20.800 og 24.200 krónur.
Undir allt Skemmtileg skál undir
hvað sem er. ILVA, Korputorgi.
Verð: 3.995 krónur.
Eldast vel Klassísku Tam tam-
plastkollarnir úr Habitat hafa feng-
ist þar í fjöldamörg ár. Habitat,
Kauptúni 3. Verð: 2.900-4.980
krónur.
Svart plast Marcus
Arvonen hannaði
þennan skemmtilega
stól fyrir IKEA sem
kallast einfaldlega PS
2012. IKEA, Kauptúni
4. Verð: 13.950 krónur.
Retró Mr. Impossible-stólarnir eftir Philippe Starck
eru í anda þeirra meistarastykkja sem hönnuðir á
borð við Ray og Charles Eames hönnuðu um miðja
síðustu öld. Stólana er hægt að panta hjá Pennanum
og kosta um 66.000 krónur stykkið.
PLAST ER KLASSÍSKT
Að punta
með plasti
SMÁ RANNSÓKNARLEIÐANGUR UM BORGINA LEIÐIR Í LJÓS AÐ FAG-
URKERAR MEGA EKKI GLEYMA PLASTINU. ÞAÐ ER HEIMILISPRÝÐI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Þýskt plast Babell-kökustand-
urinn frá einum þekktasta plast-
framleiðanda Þýskalands og jafn-
framt Evrópu; Koziol. Kokka,
Laugavegi 47. Verð: 2.800 - 9.900
krónur (margar stærðir).