Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Hjónin Hrefna og Þorgeir eru hrifin af indverskum mat og þykir gaman að bjóða vinum heim »32
R
agnar félagi minn til margra ára spurði hvort ég
vildi ekki koma og vera með og hann hefur verið
mér hjálplegur í mörg ár. Nú er komið að mér að
gera eitthvað fyrir hann. Þess vegna er ég hér. Ég
sleppti meira að segja ferð til Miami fyrir þetta,“ segir Paul
Cunningham kokkur sem tekur þátt í Food and Fun. Eldar á
Grillinu í góðum félagsskap og í stórkostlegu útsýni.
„Siggi Hall hefur alltaf verið aðeins of seinn að bóka mig á
hátíðina. Ég hef alltaf verið á leiðinni en núna bókaði ég mig
fyrir ári.“
Paul er risanafn í kokkaheiminum, veitingastaðurinn hans í
Kaupmannahöfn fékk fljótt Michelin-stjörnu og stjörnurnar
löðuðust að staðnum. „Ég eldaði fyrir Paris Hilton, Metallica,
REM, Helen Christiansen og fleiri. En mér fannst eins og
ríka og fræga fólkið væri að borða þarna af því það gat það
– ekki vegna þess að það vildi það. Þannig að einn daginn
hætti ég bara. Gekk út. Lífið er ekki bara Michelin-stjörnur
og fræga fólkið. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta
um að koma heim til fjölskyldunnar. Ég hef ekki áhuga á
verðlaunum. Ég vil vera góður maður og góður fjölskyldu-
maður. En ég skil unga kokka sem tala stórt og vilja stjörn-
ur í sitt líf, bæði lifandi og Michelin. Ég vil styðja næstu
kynslóð kokka. Maður verður að gera það.“
Eins og gefur að skilja hefur mestur tími Pauls verið inni í
eldhúsinu en hann hefur ekki náð að skoða landið jafnvel og
hann vildi.
„Við höfum aðeins skroppið út. Ég fór og fékk mér þessa
frægu íslensku pylsu. Það var allt í lagi. Ekkert meir. Pylsan
er góð en það vantaði eitthvað. Kannski betra sinnep,“ segir
hann og hlær. Paul yfirgaf England 1994 og settist að í Dan-
mörku þar sem hann rekur í dag fallegt sveitahótel og veit-
ingastað á vesturströndinni. „Í sumar verðum við með 12
svefnherbergi og 12 borð eftir stækkun. Hugmyndin er að
fólk komi, gisti og borði og njóti náttúrunnar allt á sama
stað.
Ég fer snemma á sunnudag því ég vil ekki missa af afmæl-
isveislu sonar míns en ég vil koma aftur alveg klárlega.
Ég segi því bara: Til hamingju með daginn, Christian.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
PAUL CUNNINGHAM Á FOOD AND FUN
Enskur Dani á Íslandi
PAUL CUNNINGHAM GEKK ÚT ÚR STJÖRNULÍFINU Í KAUPMANNAHÖFN ÞAR SEM HANN
ELDAÐI FYRIR STJÖRNUR EINS OG PARIS HILTON OG METALLICA Á VEITINGASTAÐ MEÐ
MICHELIN STJÖRNU. Í DAG REKUR HANN SVEITAHÓTEL OG VEITINGSTAÐ SEM ER
80% SJÁLFBÆR, ENDA MEÐ 4.000 FERMETRA GARÐ.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Kokkarnir Paul Cunningham og Ragnar Eiríksson hafa unnið
lengi saman. Paul elskar fisk og kann vel við íslenskt hráefni.
Hráefni
heill skötuselur
1 hvítlaukur
Aðferð
Hvítlauknum skipt í geira sem eru af-
hýddir og settir í pott með mjólk. Suðan
látin koma upp og hvítlaukurinn látinn
malla í nokkra stund í mjólkinni. Þá er hvít-
laukurinn þurrkaður yfir nótt í ofni við 120
gráða hita. Við þessa meðhöndlun verður
hvítlaukurinn svartur og nánast að púðri.
Fiskinn á að þekja með hvítlauknum
þannig að hann verður alveg svartur.
Fiskinum pakkað inn í álpappír og grill-
aður á opnu grilli. Paul mælir sjálfur með
því að viðarkol séu notuð.
Hunangsbörkur
1 söltuð sítróna
hunang
edik
Aðferð
„Það tekur mjög langan tíma að gera
saltaða sítrónu.
Endinn er skorinn af sítrónunni. Maður
sker í sítrónuna þannig þa það verða til
fjórir hlutar en hún hangir samt saman.
Hafið engar áhyggjur þó að þið farið alla
leið í gegn, hún nýtist alveg en lítur ekki
jafn vel út. Kreistið safann úr í skál.
Stráið salti yfir.
Setjið í vel lokaða krukku, hellið safanum
yfir og lokið þétt. Látið standa í einn til sex
mánuði í ísskáp og snúið af og til.
Þegar hún er tilbúin tekur maður sítrón-
una úr og vinnur bara með börkinn. Ekkert
meira. Börkurinn er eldaður með hunangi
og ediki og borið fram með fiskinum.
Bragðast ótrúlega,“ segir Paul Cunn-
ingham.
Grillaður
skötuselur