Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
Matur og drykkir
Fyrir 8
8-12 risahörpuskeljar (1-2 á mann)
hvítlauksolía
truffluolía
salt og pipar
Penslið hörpuskelina með hvítlauksolíu
og steikið hvora hlið á snarpheitri pönnu
í 1-2 mínútur. Kryddið með salti og pip-
ar. Látið truffluolíu drjúpa á hverja skel.
Vanillumyntu-
sósa:
1 dós hrein jógúrt
½ vanillustöng
6 myntulauf,
fínskorin
1 msk. hlynsíróp
salt og pipar
Skerið vanillustöngina
að endilöngu og skafið
burt fræin og hrærið
saman við jógúrtina.
Bætið í niðurskornum
myntulaufum, sírópi,
salti og pipar. Best er
að láta sósuna bíða í
sólarhring í ísskáp áður
en hún er borin fram.
Hörpuskel með
vanillumyntusósu
8 msk. olía
1 tsk. sinnepsfræ (eða grófkorna sinnep ef
ekki finnast fræ)
4 msk. ferskt engifer, fínsaxað
6 hvítlauksrif, fínsöxuð
1 tsk. kumminfræ
1 tsk. túrmerik
1-2 laukar, fínsneiddir
800 g blómkál, hlutað niður í litla bita
500 g tómatar, saxaðir
2 grænir chilialdin, fræhreinsuð og smátt
skorin
salt
handfylli af fersku kóríanderlaufi
Hitið olíu á pönnu og ristið sinnepsfræin þar til
þau skoppa á pönnunni (eða hitið grófa sinnepið).
Bætið engiferi, hvítlauk, kumminfræjum, túrmeriki
og lauk út í. Steikið í 8-10 mínútur. Bætið blómkál-
inu út í og veltið því vel upp úr kryddinu. Bætið að
lokum tómötum og chilialdini út í og látið krauma
við vægan hita í 8 mínútur. Saltið. Berið fram heitt
og stráið handfylli af fersku kóríander yfir réttinn.
Blómkáls-masala
M
ér finnst mjög gaman að prófa eitthvað nýtt og er ekki hrædd
við að ráðast í frumraunir í matarboði. Aðalréttinn fann ég í
bókinni Góður matur - gott líf en ég breytti uppskriftinni örlít-
ið,“ segir Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis
og skóla. Hún bauð góðum vinum heim í indverskan aðalrétt, með hörpuskel
í forrétt og ís í eftirrétt. „Ég er með dellu þessa dagana fyrir einhverju sem
ég get sett í ofninn og haft þar endalaust og látið malla.“
Gestasamkoman samanstóð af þremur meðlimum Mótettukórsins; það er
að segja Kristín, Sverrir og Hrefna tilheyra kórnum. Þá var unnusti Krist-
ínar, Einar Baldvin, arkitekt og starfsmaður Farmers Market, með í för.
Einnig sátu til borðs Ríkharður Sigurjónsson nemi og bróðir húsfreyju, hús-
bóndinn Þorgeir Ragnarsson, deilarstjóri á Borgarskjalasafni og að sjálf-
sögðu heimilisfólkið minnsta, Áslaug Lilja, 6 ára, og Sigurjón Kári, tveggja
ára.
„Við hjónin erum mjög hrifin af indverskum mat og ég vissi fyrirfram að
gestir væru sammála mér. Mér finnst bragðsterkur matur líka eiga afar vel
við í febrúar, þegar það er dimmt og frekar hryssingslegt. Indverskur mat-
ur er þá hressandi – með honum koma litir og krydd sem vantar í til-
veruna.“
Hrefna er mjög hrifin af matreiðslubókum og notar internetið líka tals-
vert í leit að nýjum uppskriftum. Þar sem nóg er að gera hjá öllum velur
hún oft að hafa mat sem hún getur undirbúið fyrirfram og er ekki mikið
mál að útbúa. „Þótt uppskriftin virki kannski flókin þá er hún það í raun
ekki því það er einmitt hægt að gera hana daginn áður og hita upp og það
er alls ekki verra. Þá er rétturinn búinn að jafna sig og verður bragðmeiri.
Ísinn er svo að sjálfsögðu verk sem tilheyrir að gera nokkru áður. En ann-
ars má segja að ég sé nokkuð oft með fjölskyldu og vini í mat, þannig séð,
þótt ég væri alveg til í að gera það oftar. En þetta er þá matur sem er ekk-
ert sérstaklega borinn fram í umgjörð veislu og með litlu tilstandi.“
Hrefna nefnir að lokum að blómkálsrétturinn sé með því betra sem hún
hafi bragðað. „Þetta er sérstaklega gott meðlæti og grænmetisætur geta
haft hann sem aðalrétt, með grjónum og brauði. Hann var ekki síður vin-
sæll en lambið.“
Hrefna Sigurjónsdóttir í eldhúsinu á Seilugranda.
FÉLAGAR ÚR MÓTETTUKÓR SNÆÐA INDVERSKT
Vinaveisla í
Vesturbæ
HJÓNIN HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR OG ÞORGEIR
RAGNARSSON BUÐU HEIM Í INDVERSKAN MAT,
FORRÉTT OG PIPPÍS Í EFTIRRÉTT.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Lambaskanka á indverska vísu útbjó
Hrefna eftir uppskrift úr bókinni
Góður matur - gott líf en breytti henni
þó lítillega.