Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
Föt og fylgihlutir
T
ískumerkið Ostwald Helgason er að slá í gegn
um þessar mundir en nýafstaðin sýning þess
á tískuviku í New York hefur fengið góðar
viðtökur. Við stjórnvölinn í Ostwald Helgason
er þýsk-íslenska parið Susanne og Ingvar. Hann er al-
inn upp að hluta í Reykjavík og að hluta í Kaup-
mannahöfn en býr nú í London.
„Það er búið að vera mjög mikið að gera síðustu
vikur. Við ákváðum að sýna aftur í New York eins og
við höfum gert síðustu skipti,“ segir Ingvar í viðtali
frá London, þar sem höfuðstöðvar Ostwald Helgason
eru.
„Við sóttum oft um tískuvikuna í London en kom-
umst aldrei að. Við erum ekki með sérstök sambönd
hér miðað við þá sem lærðu í Saint Martins. Við feng-
um þá ráð að kíkja á aðrar borgir þar sem haldnar
eru góðar tískuvikur. Ameríkanar hafa alltaf verið
hrifnir af því sem við erum að gera,“ segir hann og
því var rökrétt að stefna á New York og var þeim vel
tekið vestra.
„Við fengum mjög góðar undirtektir eftir fyrstu
sýninguna en vissum ekki hvert það myndi leiða. En
þegar salan byrjaði fyrir næsta tímabil í september
sáum við að þetta borgaði sig,“ útskýrir hann.
Til sölu í 45 verslunum
„Stórverslanirnar taka alltaf lengri tíma og prófa sig
áfram og sjá hvort velgengnin haldi áfram. Browns,
sem við höfum selt hjá í nokkur ár er búin að stækka
pöntunina sína mikið. Og við erum komin upp í 45
búðir núna,“ segir hann en hróður Ostwald Helgason
breiðist hratt út um þessar mundir.
Minni sýning var síðan haldin í London og fram-
undan er sölusýning í París sem stendur yfir 28. febr-
úar til 9. mars. Ostwald Helgason er komið með samn-
ing hjá breskum sölufulltrúa í París, sem er með stórt
sölusvæði. „Þau eru með bestu ungu hönnuðina í
London eins J.W. Anderson og Peter Pilotto,“ segir
Ingvar og bætir við að allar búðir komi þangað að
skoða. „Það tók alveg þrjú ár að komast að hjá þeim
eftir að ég talaði við þau fyrst,“ segir hann en núna
sér manneskja hjá fyrirtækinu alfarið um þau, sem
munar miklu og því líklegt að vörur Ostwald Helgason
eigi eftir að fást í enn fleiri verslunum á komandi
mánuðum.
Ostwald Helgason hefur fengið veglegan styrk frá
Hönnunarsjóði Áróru til að sýna á tískuvikunni í New
York. „Þetta bjargaði okkur algjörlega. Það er svo
mikill kostnaður við þetta, við höfum þurft að ráða
starfsfólk og erum komin með nýtt stúdíó,“ segir hann
en verkefnunum hefur fjölgað í takt við aukna eft-
irspurn.
Fyrir utanaðkomandi getur litið svo út að Ostwald
Helgason hafi skotist upp á stjörnuhimininn á örskots-
stundu en þarna liggur mikil vinna að baki. „Við sett-
um fyrirtækið af stað árið 2006 en byrjuðum ekki af
alvöru fyrr en 2008 en þá flutti Susanne frá Þýska-
landi til London og við stofnuðum okkar fyrsta stúdíó.
Ég er búinn að búa hérna í tíu ár en við hittumst þeg-
ar við vorum í starfsnámi hjá Marjan Pejoski,“ segir
Ingvar en fatahönnuðurinn sá er frægastur fyrir að
hafa hannað svanakjól Bjarkar.
Þrjár línur á ári
Susanne og Ingvari gefst vel að vinna saman. „Þetta
er besta vinna sem við getum hugsað okkur. Þetta er
erfitt og krefjandi starf en virkar merkilega vel hjá
okkur,“ segir Ingvar sem hefur búið í útlöndum meiri-
hluta lífs síns en er sáttur í London þar sem þau eru
búin að koma sér vel fyrir. Hann segir London skap-
andi stað en New York komi ef til vill til greina en
það sé ekki á planinu á næstunni.
„Við erum að byggja upp gott teymi hérna í Lond-
on.“
Ostwald Helgason gerir þrjár línur á ári og ætlar
mögulega að bæta þeirri fjórðu við. „Við ætlum að sjá
hversu mikilli vinnu við getum bætt á okkur.“
Hvernig er að lesa góðar umsagnir um sig í þekkt-
um blöðum og vefmiðlum?
„Það tók okkur mörg ár að komast á það stig að fá
dóm og að fá góða umsögn er ennþá skemmtilegra.
Þegar maður hefur fengið góða dóma vill maður fá
góða dóma næsta tímabil. Í þessum bransa gengur
manni bara eins vel og síðustu línunni. Maður vonast
til að hitta í mark en veit ekki hvernig fólk tekur lín-
unni fyrr en maður les dómana. Ein slæm umsögn
getur komið niður á sölu og öllu öðru.“
Ennfremur getur það hjálpað hverjir klæðast föt-
unum. Eftir að Miroslava Duma og Anya Ziourova,
sem eru þekktar og áhrifamiklar stælpíur og líka mik-
ið ljósmyndaðar, mættu á hátískusýningu Chanel í
Ostwald Helgason fékk merkið mikla athygli.
„Þetta hjálpaði alveg rosalega mikið og núna erum
við bara að vinna í næstu umferð,“ segir Ingvar en
einhverjir Hollywood-stílistar stjarnanna hafa haft
samband og vilja fá klæðnað frá þeim.
„Þetta er langur ferill og sem betur fer erum við
með manneskju sem sér um þetta fyrir okkur núna og
við getum einbeitt okkur að hönnuninni.“
Hvernig lítið þið á ykkur? Sem íslenskt-þýskt fyr-
irtæki?
„Ég er íslenskur, Susanne er þýsk, við erum búsett
í London og sýnum í New York. Ég held að við séum
frekar alþjóðleg,“ útskýrir Ingvar og bætir við að
hann muni alltaf líta á sjálfan sig sem Íslending.
Sem stendur er ekki hægt að kaupa fatnað Ostwald
Helgason á Íslandi en Ingvar vonast til þess að það
breytist. „En ef þetta fer ekki í búðir þar reynir mað-
ur áreiðanlega að setja eitthvað upp. Það er alltaf gott
að hafa afsökun til að heimsækja Ísland.“
Susanne og Ingvari gefst vel að vinna saman. „Þetta er
besta vinna sem við getum hugsað okkur. Þetta er erfitt
og krefjandi starf en virkar merkilega vel hjá okkur.“
Tískuveldi í London
INGVAR HELGASON HANNAR OG STÝRIR HÁTÍSKUMERKINU OSTWALD HELGASON
ÁSAMT UNNUSTU SINNI SUSANNE OSTWALD. FRAMI ÞEIRRA Í TÍSKUHEIMINUM
ÞYKIR HRAÐUR EN INGVAR SEGIR Í SAMTALI VÐ SUNNUDAGSBLAÐ
MORGUNBLAÐSINS AÐ VELGENGNIN HAFI EKKI KOMIÐ Á EINNI NÓTTU.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
* „Ég er íslenskur, Susanneer þýsk, við erum búsett íLondon og sýnum í New York.
Ég held að við séum frekar al-
þjóðleg.“
Amerískra áhrifa gætir einnig í línunni samanber derhúfuna.
Tvíeykið notar efni sem gætu verið gamaldags á nýstárlegan hátt.
Ljósmyndir/Pavel Antonov