Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaSkeggvöxtur kallar á rakstur en kostnaður getur verið hár. Sumir láta skegg vaxa í nafni sparnaðar
G
runnkostnaður vegna raksturs með sköfu,
þ.e. rakvélablöð, raksköfur og raksápa
getur numið frá fjögur þúsund krónum
upp í tíu þúsund krónur. Allt eftir því
hvaða merki er notað, hvers kyns sköfur og hvort
notast er við rakgel eða sápu.
Rakvélablöðin eru dýrasti þátturinn, en algengt
verð á pakka af Gillette Fusion-rakvélablöðum sem
inniheldur fjögur blöð er í kringum 1.799 krónur,
eða um 450 krónur á hvert rakvélablað. Allur
gangur er á því hversu oft hvert blað er notað, en
óformleg könnun leiðir í ljós að karlmenn sem
raka sig reglulega fara í gegnum 1-2 blöð á mán-
uði.
Fjölmargar tegundir af raksköfum og blöðum eru
á markaðnum en sé miðað við Gillette Fusion
raksköfu þá kostar hún 1.498 krónur í Bónus. Al-
geng tegund raksápu kostar 599 krónur á sama
stað.
Rakskafa, blöð og raksápa kosta því samtals
rúmar 4.000 krónur, sé miðað við ódýra tegund.
Möguleikarnir eru nánast endalausir þegar kemur
að hvernig hníf eigi að notast við til að skerða lík-
amshár í andliti og verðbilið sömuleiðis. Til eru
raksköfur með batteríi, einnota rakvélar sem kosta
lítið og hægt er að fá vandaða rakhnífa á rakara-
stofu sem kosta sitt.
Hætti að raka sig vegna kostnaðar
Karlmenni í dag halda aftur af skeggvextinum með
skeggsnyrtum sem fást í flestum raftækjabúðum.
Flestir kaupa sér skeggsnyrti sem einnig er nef-
og eyrnaháraklippir og losa sig við ljóta ásýnd.
„Í fyrsta lagi er það verðið og svo er það ekki
töff að vera alveg rakaður,“ segir Stefán Jak-
obsson, söngvari í þungarokkshljómsveitinni Dimmu,
en þungarokk og skegg hafa lengi gengið saman
hönd í hönd. „Ekki það að ég viti hvað er töff en
mér finnst ég allsber í framan þegar ég er ekki
með skegg – og ég er ekki einu sinni með töff
skeggvöxt,“ bætir Stefán við en hann man ekki
hvenær hann rakaði sig síðast með sköfu. „Í upp-
hafi hætti ég að raka mig vegna kostnaðar. Bart-
skeri kostar fimm þúsund og dugar nánast enda-
last. En fjórir hausar kosta nánast það sama og
duga mun skemur.“
Gillette auglýsti að nýja rakvélin frá þeim entist
í allt að fimm vikur. Það kvittar Stefán og fleiri
karlmenn þó ekki undir svo glatt. „Ég notaði mín
blöð að hámarki þrisvar. Þá var orðið vont að
raka mig. Blaðið orðið bitlaust og skítugt. Þá fór
ég að nota skeggsnyrti í staðinn,“ segir Stefán.
Maður sem rakar sig reglulega og notar til
dæmis tvö rakvélarblöð (hausa) á mánuði ver 900
krónum á mánuði í blöðin sjálf, eða 10.800 krónum
árlega, fyrir utan kostnað við sköfuna sjálfa og
raksápu. Eins og sjá má í ramma til hliðar er al-
gengt verð á skeggsnyrtum og rafmagnsrakvélum
fimm til átta þúsund krónur. Slíkt tæki er því
fljótt að borga sig upp og getur talist hagkvæm-
ara, þótt eflaust þyki einhverjum gæðin vera meiri
ef gamla góða skafan er notuð.
KARLMENN VILJA VERA LOÐNIR
Bartskeri í stað blaða
RAKVÉLABLÖÐ OG RAKVÉLASKÖFUR KOSTA MIKIÐ. AÐ ÞVÍ KOMUST MARGIR ÞEGAR ÞEIR
ÆTLUÐU AÐ RAKA Á SIG MYNDARLEGA MOTTU FYRIR MOTTUMARS. Í STAÐINN ER
KOMINN SKEGGSNYRTIR OG BARTSKERI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Remington PG520
Verð: 9.995 krónur
Fæst í Elko
Remington
Verð: 9.999 krónur
Fæst í BT
Philips Multi Trimmer
Verð: 6.995 krónur
Fæst í Elko
Vidal Sassoon
Verð: 4.995 krónur
Fæst í Heimilistækjum
Tristar
Verð: 5.990 krónur
Fæst í Rafha
AEG
Verð: 5.995 krónur
Fæst í Elko
ASÍ setti á dögunum af stað vefsíðu fyrir
neytendur, www.vertuaverdi.is, þar sem
þeir eru hvattir til að setja inn upplýs-
ingar um hækkun og lækkun á verði. Hug-
myndin er að neytendur aðstoði hver ann-
an í að vera á verði gagnvart því þegar
verð breytist hjá verslunum, og benda
hver öðrum á verðhækkanir og lækkanir.
Þegar farið var inn á vefinn á hádegi á
föstudag mátti sjá að neytendur höfðu
tekið vel við sér og sett inn 63 ábendingar
um verðhækkanir hjá hinum ýmsu versl-
unum og þjónustuaðilum. Minna fer hins
vegar fyrir því að fólk deili með öðrum
fregnum að lækkuðu verði, en í þeim
flokki voru aðeins þrjár ábendingar.
VERTU Á VERÐI VEFURINN
Fáir tilkynna verðlækkanir
Neytendur hafa tekið vel við sér þegar kemur að verðhækkunum en
benda síður á það þegar verð lækkar.
Þótt mars sé nýgenginn í garð þá
geta þeir sem ætla sér að fara í mat-
jurtaræktun í sumar hafist handa.
Að skipuleggja sig vel er lykilatriðið
í góðum árangri og næstu vikur má
útbúa ræktunaráætlun. Margir tala
um að best sé að gera slíkt nokkur ár
fram í tímann raunar. Slík áætlun er
þá skrá yfir hvað skal rækta, hvenær
á að sá og gróðursetja, áburðargjöf
og svo framvegis. Þá má minna á að
það eru ekki nema um fjórar vikur
þar til óhætt er að hefja forræktun á
kálmeti. Meðan ræktað er má svo
halda dagbók til að geta borið saman
milli ára hvað betur má fara.
MATJURTARÆKT SUMARSINS
Byrjið að skipuleggja
Aðeins fjórar vikur eru í að hefja megi
forræktun á kálmeti.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson