Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 47
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
var við hótelið og herbergjum fjölgað í 46.
„Það þarf nánast sama starfsmannafjölda til
að sinna 46 herbergjum eins og 22.“
Æskuvinkonan teiknaði
Arkitektar voru Erla Ingjaldsdóttir og
Tryggvi Þorsteinsson hjá Minarc í Los Ang-
eles en Erla og Sigurlaug eru einmitt æsku-
vinkonur. „Það var frábært að vinna þetta
með þeim en Erla og Tryggvi hafa fengið
verðlaun fyrir náttúruvænar byggingar. Þau
höfðu aldrei teiknað hótel áður og fannst
þetta fyrir vikið mjög spennandi,“ segir Sig-
urlaug sem þess utan gerði þarfagreiningu
og leitaði til margra sérfræðinga á sviði hót-
elreksturs.
Smám saman vatt hugmyndin upp á sig
og breytingarnar urðu á endanum meiri en
til stóð í upphafi. „Við veltum þessu mikið
fyrir okkur, hvort við ættum að hrökkva eða
stökkva. Niðurstaðan var að fara alla leið
með breytingarnar enda eru yfirgnæfandi
líkur á því að breytingar verði aldrei gerðar
geri maður þær ekki strax.“
Eldri byggingunni var breytt að utan sem
innan, svo sem með því að klæða hana með
steypuplötum í stíl við sjónsteypuna sem
prýðir nýbygginguna. „Hótelið fellur mjög
vel að umhverfinu og aðkoman er allt önnur
en áður. Það verður prýði að þessu til fram-
tíðar.“
Sigurlaug og Halldór voru búsett í Sviss
þegar þau keyptu hótelið og byrjuðu á því
að leigja reksturinn út. Þegar framkvæmdir
fóru af stað varð verkefnið á hinn bóginn
hálfu meira spennandi, þannig að þau
Hjónin Sigurlaug Sverrisdóttir og Halldór Hafsteinsson, eigendur hótelsins. Norðurljósabarinn er stolt Ion-hótels, ekki síst á kvöldin þegar norðurljósin dansa á himnum.
Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað
ört hérlendis á allra síðustu árum, ekki
síst yfir vetrartímann. Sigurlaug fagnar
þessari þróun að vonum en hvetur aðila í
ferðaþjónustu til að halda vöku sinni.
„Ég er svolítið smeyk um að þjónustu-
stigið sé ekki að þróast nægilega hratt.
Aukinn fjöldi ferðamanna kallar á aukna
þjónustu en við verðum að vera tilbúin til
að taka á móti gestunum okkar. Það er
mikið í umræðunni að salernisaðstöðu og
þjónustu við helstu ferðamannastaði sé
ábótavant – þetta getur haft áhrif á
ímynd okkar til lengri tíma. Einnig er
mikilvægt að verð og gæði haldist í
hendur því nú hefur eftirspurnin aukist
gríðarlega á stuttum tíma sem þýðir að
verðlag hækkar um stund þar til fram-
boðið eykst og jafnar þetta út. Við meg-
um ekki hugsa í skammtímalausnum –
þurfum að byggja til framtíðar og vernda
vörumerkið Ísland.“
Höldum vöku okkar!