Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Side 49
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
vegna verndunar vatnasviðs og lífríkis Þing-
vallavatns.
Endalausir möguleikar
Ion-hótelið vill nýta sem mest úr héraði,
það á meðal annars við um vinnuafl. „Við
leitum eftir að ráða sem flest starfsfólk
héðan af svæðinu, ég held það borgi sig
alltaf til lengri tíma. Þetta svæði á enda-
lausa möguleika, nægir þar að nefna allt
heita vatnið og spennandi væri að byggja
upp lón. Útlendingar sem hingað koma gera
það fyrst og fremst út af náttúrunni og
tærleikanum. Á því eigum við að byggja og
markaðssetja Ísland á þeim nótum.“
Sigurlaug er mikil áhugamanneskja um
mataræði og heilsu og byggir matseðillinn á
veitingastað hótelsins, Silfru, á þeim hug-
myndum. Boðið er upp á silung úr Þing-
vallavatni, sem veiddur er árið um kring, og
lambakjöt beint frá býli. Helst vill Sig-
urlaug sækja lambið á næstu bæi en því
miður er enginn bóndi í grenndinni þátttak-
andi í verkefninu „Beint frá býli“. Sigurlaug
segir það standa til bóta, jafnvel strax með
vorinu. „Nágrannar okkar hafa tekið okkur
vel og fólkið í sveitinni er ánægt með þessa
uppbyggingu og okkar áhuga á að eiga bein
viðskipti við það.“
Sigurlaug nefnir Sviss, þar sem hún bjó
um tíma, til samanburðar. Hvergi á byggðu
bóli njóti landbúnaður eins mikilla rík-
isstyrkja. „Það er með ráðum gert til að
styðja við ferðamennskuna og samvinnan er
þverfagleg. Hér á landi er líka fullt af tæki-
færum í landbúnaði, þar sem matvælin eru
hrein og tær. Þróunin er þegar orðin mjög
skemmtileg með „Beint frá býli“ og fleiri
verkefnum.“
Hún segir Svisslendinga markaðssetja
„lúxusvörumerkið“ Sviss af mikilli grimmd,
meðal annars fyrir þær sakir að svissneski
frankinn sé svo sterkur. „Það fælir ferða-
menn frá og fyrir vikið þarf að vinna á
móti. Hvað þetta varðar stöndum við miklu
betur að vígi, blessuð krónan verður seint
sökuð um að vera sterkur gjaldmiðill.“
Hnallþórur á sunnudögum
Yfirkokkur í Silfru er Guðmundur Sverr-
isson. Þau Sigurlaug kynntust í Sviss en
þar bjó Guðmundur og starfaði í tólf ár.
„Honum leist það vel á verkefnið að hann
ákvað að flytja heim. Fyrstu viðbrögð gesta
hafa verið svakalega góð enda Guðmundur
matreiðslumðaur í hæsta gæðaflokki sem
hefur unnið á háklassa veitingastöðum bæði
í Sviss og Brussel, þar sem hann var á
Seagrill, 2 stjörnu Michelin-stað,“ segir Sig-
urlaug.
Silfra og Norðurljósabarinn eru ekki ein-
ungis ætluð gestum á hótelinu, Sigurlaug
vonast líka til að fá gesti úr sumarbústaða-
byggðinni á Þingvöllum og frá höfuðborg-
arsvæðinu. Þetta er ekki nema liðlega hálf-
tíma akstur og styttra á sumrin þegar
Nesjavallaleiðin er opin. „Það er upplagt
fyrir fólk að líta hér við um helgar í te eða
kaffi og hver veit nema hnallþórur verði á
borðum á sunnudögum. Þó við séum heilsu-
væn megum við ekki gleyma gleðinni.“
Orð að sönnu.
Herbergin eru stílhrein og íslenski hesturinn vakir yfir gestum. Veitingastaðurinn á hótelinu kallast Silfra.
Frárennslið við hótelið er svo fullkomið að engin hreinsiefni þarf í setlaugina.
• Vetnismeðhöndlun skilar hreinni lífrænni olíu en áður hefur þekkst.
• Íblöndunarhlutfall jafngildir 5% minni koltvísýringsmengun.
• Má nota á allar díselvélar án þess að breyta þeim eða endurstilla.
• Stuðlar að hreinni og betri bruna sem skilar hreinni vél.
• Eykur ekki viðhald eða eyðslu og hefur ekki áhrif á verð.
• Skilar sama afli og venjuleg díselolía og 5% meira afli en hefðbundin lífdíselolía.
• Er mjög kuldaþolin og geymist vel, jafnt í hita sem kulda.
Nánari upplýsingar á olis.is
út í andrúmsloftið. Það má því segja að ef allir díselbílaeigendur fylltu hjá Olís myndi 5% minnkun útblásturs
svæði Reykjavíkur.