Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
K
ærar þakkir. Í augna-
blikinu veit ég satt
best að segja ekki
hvernig ég á að kom-
ast í gegnum þetta.
Bugaður af sorg. Stuðningur ykkar
skiptir mig miklu máli. Biðjið fyrir
fjölskyldu Reevu og fjölskyldu
minni. Oscar.“
Þannig hljóðuðu símaskilaboð
sem suðurafríski spretthlauparinn
Oscar Pistorius sendi vinkonu
sinni, Sigríði Hönnu Jóhann-
esdóttur og fjölskyldu hennar hér
á Íslandi, á mánudaginn var. Pi-
storius er sem kunnugt er laus
gegn tryggingu eftir að hafa verið
ákærður fyrir að verða unnustu
sinni, Reevu Steenkamp, að bana í
síðasta mánuði.
„Oscar er mjög góðviljaður mað-
ur sem vill láta gott af sér leiða.
Hann er ákaflega trúaður og þrátt
fyrir þétta dagskrá gefur hann sér
alltaf tíma fyrir fólk, sérstaklega
þá sem eiga um sárt að binda.
Hann hefur verið Hafliða dótt-
ursyni mínum góð fyrirmynd og
vinur en þeir eiga það sameiginlegt
að hafa fæðst án sperrileggja,“
segir Sigríður Hanna.
Hún segir Pistorius hafa mikla
útgeislun og eiga auðvelt með að
hrífa fólk með sér. „Hann er ekki
skaplaus en það er ekki til illt í
honum. Ég fullyrði það. Oscar er
einn hugrakkasti maður sem ég
hef kynnst og mjög staðfastur.
Setji hann sér markmið gefur hann
sér engan afslátt og lætur ekkert
stöðva sig. Það hefur hann ítrekað
sýnt, ekki bara á hlaupabrautinni
heldur almennt í lífinu sjálfu. Osc-
ar er líka einn mesti herramaður
sem ég hef hitt. Helst vildi ég ætt-
leiða hann, stæði það til boða.“
Hlýtur að hafa verið slys
Hún segir sér og fjölskyldu sinni
að vonum hafa brugðið þegar
fregnir bárust af handtöku Pistor-
ius. „Mér brá mjög en hugsaði
strax með mér: Þetta hlýtur að
hafa verið slys, Oscar gæti aldrei
banað nokkrum manni að yfirlögðu
ráði. Ég trúi hans skýringum á því
sem gerðist þessa örlagaríku nótt
og stend heilshugar með honum í
þessu hörmulega máli.“
Hún segir foreldra Hafliða litla,
sem er sjö ára, og Hönnu Huldu
systur hans, sem er að verða ellefu
ára, hafa sett þau inn í málið strax
um morguninn sem fréttirnar bár-
ust en þau líta bæði upp til Pistor-
ius. „Þau útskýrðu fyrir börnunum
að þetta hefði verið slys en þau
þekkja suðurafrískar aðstæður eft-
ir að hafa búið þar. Þau sögðu
þeim einnig að við stæðum með
Oscari og að hann væri ennþá vin-
ur okkar.“
Viðbrögð Hafliða voru á þennan
veg: „Já, þetta var óvart.“
Sigríður Hanna segir átakanlegt
að skoða myndir af Pistorius í
dómsalnum á dögunum, varla sé
hægt að þekkja hann fyrir sama
mann. „Það sést á andlitsdráttum
hans að hann er bugaður af sorg.“
Sigríður Hanna ræddi við um-
boðsmann Pistorius, Peet van Zyl,
daginn eftir handtökuna. „Hann
var í miklu uppnámi. Kvaðst hafa
horft í augun á Oscar og hann væri
hreinlega ekki til staðar. Peet er
sem klettur við hliðina á Oscar,
eins þjálfarinn hans, Ampie Louw.
Hann hefur sagt að hann geti ekki
beðið eftir að sjá strákinn sinn aft-
ur á hlaupabrautinni. Ég hygg að
þetta eigi við um alla sem þekkja
Oscar, hann á stuðning þeirra vís-
an.“
Hæ, þetta er Oscar
Kynni Sigríðar Hönnu og Oscars
Pistorius má rekja aftur til ársins
2005. Dóttir hennar, Ebba Guðný
Guðmundsdóttir, var barnshafandi
og þegar hún fór í tuttugu vikna
sónar í lok maí það ár kom í ljós
að ófæddur sonur hennar væri án
sperrileggja eins og Pistorius.
Sigríður Hanna hafði ekki heyrt
Pistorius getið á þessum tíma en
það höfðu systir hennar, afarnir,
og tengdasonur, faðir drengsins,
Hafþór Hafliðason, hins vegar gert
og fór Hafþór strax í að afla upp-
lýsinga um hann. Fann meðal ann-
ars fjölda mynda af Pistorius sem
Sigríður Hanna hengdi upp heima
hjá sér. „Þetta var auðvitað mikið
áfall en þegar ég var að missa mig
í áhyggjum, þá breytti það öllu að
horfa á myndirnar af Oscari, þess-
um einbeitta og glæsilega íþrótta-
manni,“ segir hún.
7. október 2005 fæddist ömmu-
drengurinn sem hlaut nafnið Haf-
liði. Sigríði Hönnu langaði að
þakka Pistorius þessa miklu hjálp
sem hann veitti henni án þess að
vita af því, og kom sér í samband
við íþróttafréttakonu í Bretlandi
sem hún vissi að tekið hafði viðtal
við Pistorius. Hann var ekki ná-
lægt því eins þekktur þá og í dag.
Íþróttafréttakonan tók vel í mála-
leitan Sigríðar Hönnu og fáeinum
dögum síðar fékk hún tölvupóst.
„Hæ, þetta er Oscar. Mér skilst að
Alltaf með
faðminn opinn
SIGRÍÐUR HANNA JÓHANNESDÓTTIR STENDUR HEILSHUGAR MEÐ VINI SÍNUM, OSCAR
PISTORIUS, Í DÓMSMÁLINU SEM HÖFÐAÐ HEFUR VERIÐ Á HENDUR HONUM FYRIR AÐ
VERÐA UNNUSTU SINNI, REEVU STEENKAMP, AÐ BANA. HÚN SEGIR VERKNAÐINN
HLJÓTA AÐ HAFA VERIÐ SLYS ENDA SÉ PISTORIUS GULL AF MANNI. HANN HEFUR
REYNST ÖMMUDRENGNUM HENNAR, HAFLIÐA HAFÞÓRSSYNI, BETRI EN ENGINN EN ÞEIR
ERU BÁÐIR FÆDDIR ÁN SPERRILEGGJA. AÐEINS MEÐ STÚFA FYRIR NEÐAN HNÉ.
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ljósmyndir: Úr einkasafni Oscar Pistorius og Hafliði Hafþórsson bera saman fætur sína í Manchester.
Oscar Pistorius og Sigríði
Hönnu Jóhannesdóttur
er vel til vina.
Viðtal