Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 51
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
þú sért að reyna að ná í mig.“
Sigríður Hanna segir Pistorius
strax hafa sýnt Hafliða mikinn
áhuga enda afar sjaldgæft að fólk
fæðist með fötlun af þessu tagi.
Hann sendi henni líka símanúmerið
hjá lækninum sínum í Suður-
Afríku, Gerry Versveld, og hefur
hann ráðið fjölskyldu og læknum
Hafliða heilt.
Vildi hitta Hafliða
Haustið 2006 þegar Pistorius kom í
fyrsta skipti til Íslands vegna sam-
starfs síns við stoðtækjafyrirtækið
Össur, sem séð hefur honum fyrir
gervifótum og blöðkum
til að hlaupa á, óskaði
hann eftir því að fyrra
bragði að fá að hitta
drenginn og fjölskyld-
una.
„Það var frábært að
hitta Oscar sem heillaði
okkur með jákvæðni
sinni og hlýju. Ebba, mamma Haf-
liða, var hvergi bangin við að
spyrja hann spjörunum úr, meðal
annars um samskiptin við hitt kyn-
ið. Það þótti mér nú fullmikið af
því góða, svona við fyrstu kynni,“
segir Sigríður Hanna hlæjandi. Pi-
storius var þó hvergi brugðið.
„Hann sagði það ekkert vandamál
enda hefur hann alltaf notið mik-
illar kvenhylli.“
Þarna var komið á persónulegt
samband og allar götur síðan hafa
Sigríður Hanna og fjölskylda heyrt
reglulega í Pistorius, bæði í síma
og tölvupósti. „Ég hef leyft honum
að fylgjast með Hafliða og hann
hefur alltaf verið mjög duglegur að
svara. Oscar er óþreytandi að gefa
okkur góð ráð varðandi Hafliða og
gervifæturna hans enda býr hann
að mikilli reynslu og margir hafa
notið góðs af hönnun Össurar á
Blades, sem Oscar hefur notað frá
því hann byrjaði að hlaupa. Það er
ómetanlegt að hafa aðgang að Osc-
ar og starfsmönnum Össurar.“
Fyrir þig, meistari
Þau hafa líka hist nokkrum sinn-
um. Pistorius kom aftur til Íslands
sumarið 2007 og þá bauð Hafþór
honum meðal annars á svifnökkva
á Faxaflóa. „Mér fannst það glap-
ræði en Oscar var til í tuskið.
Hann er alveg ótrúlega hugrakkur
og getur allt. Það er mjög auðvelt
að gleyma því að hann sé fatl-
aður.“
Vorið 2009 fóru Sigríð-
ur Hanna og fjölskylda utan
til að horfa á Pistorius keppa á
bikarmóti fatlaðra í Manchester í
Englandi. Það var ógleymanleg
ferð. „Blaðamenn og ljósmyndarar
umkringdu Oscar eftir að hann
hafði unnið gullið, að mig minnir í
400 metra hlaupinu. Skyndilega reif
hann sig út úr hópnum og kom
hlaupandi upp í brekkuna þar sem
við Hafliði sátum. Ég vissi ekki
hvaðan á mig stóð veðrið. Þá tók
Oscar af sér gullmedalíuna og
hengdi hana um hálsinn á Hafliða
og sagði: „Þetta er handa þér,
meistari!“ Þessu mun Hafliði aldrei
gleyma og eftir að Oscar var farinn
aftur spurði hann mig: „Amma, var
ég að vinna?“ Þetta var einstakt og
skemmti-
legt.“
Hún seg-
ir fjölmiðla-
mennina
ekki hafa
veitt þessu
athygli
enda hafi
Pistorius verið að gera þetta til að
gleðja Hafliða en ekki fyrir þá.
„Hann hafði enga þörf fyrir að
vekja athygli á þessu þó að það
hefði eflaust verið fréttnæmt í ljósi
aðstæðna,“ segir Sigríður Hanna.
Fjölskyldan fór út að borða með
Pistorius um kvöldið og gekk að því
búnu með honum heim á hótel. Þar
spurði Ebba hvort hún mætti taka
ljósmynd af fótum þeirra saman og
það var auðsótt mál. „Það augna-
blik breytti öllu fyrir Hafliða. Ég
spurði hann einmitt um daginn
hvort hann myndi hvað hann hefði
verið að hugsa þarna. Hann þagði
stutta stund en sagði svo: „Það sem
ég hugsaði var að ég væri í lagi!““
Hleypur hraðar en bíll
Sigríður Hanna segir Hönnu
Huldu, systur Hafliða, einnig halda
mikið upp á Pistorius enda hafi
hann líka hjálpað henni. „Það vill
stundum gleymast að systkini fatl-
aðra barna hafa líka áhyggj-
ur og að þekkja Oscar hef-
ur hjálpað Hönnu Huldu.
Einu sinni var hún spurð
hvað Hafliði ætlaði að
verða þegar hann yrði
stór. Hún var
ekki
sein
til svars: „Hlaupari eins og Oscar
Pistorius. Hann hleypur hraðar en
bíll!“ Sá sem spurði þekkti ekki
Oscar, og horfði opinmynntur á
hana við þetta svar!“
Hafliði fór líka að sjá Pistorius
keppa í Manchester 2010 og 2011
en í seinna skiptið var sá fyrr-
nefndi nýkominn úr aðgerð á fót-
um. „Og eins og alltaf var Oscar
með faðminn opinn.“
Ebba og Hafþór bjuggu um
nokkurra mánaða skeið í Suður-
Afríku frá 2010-11 og hittu þá Pi-
storius nokkrum sinnum. Sigríður
Hanna fór utan að heimsækja þau
og hittu þá vin sinn á sínum
heimaslóðum. „Hann grillaði og
eldaði fyrir okkur og naut aðstoðar
systur sinnar, Aimée, sem er mjög
elskuleg stúlka. Þarna voru líka
vinur hans og fyrrverandi kærasta,
Jenna, sem kom Oscar einmitt til
varnar um daginn. Sagði hann
aldrei hafa gert sér mein, þvert á
móti. Þau eru ennþá góðir vinir þó
að samband þeirra hafi ekki gengið
upp. Þá var þarna líka 8 mánaða
lítill drengur frá Suður-Afríku sem
er eins og Hafliði og Oscar.“
Er og verður fyrirmynd
Hún segir Pistorius mikinn fjöl-
skyldumann, svo sem sést hafi í
réttarsalnum, en bróðir hans, syst-
ir og faðir hafa staðið þétt við bak-
ið á honum. Móður sína missti Pi-
storius þegar hann var fimmtán
ára.
Sigríður Hanna og allt hennar
fólk mun að sjálfsögðu fylgjast vel
með framvindu mála hjá Oscar Pi-
storius. Þau vona það besta. „Ég
get ekki ímyndað mér annað en
hann verði sýknaður. Þetta var
slys, ég er ekki í nokkrum vafa um
það. En hvernig sem fer verður
Oscar Pistorius áfram vinur okkar
og fyrirmynd Hafliða. Þeir eru
bundnir órofa böndum. En ég geri
mér fulla grein fyrir því að hann
er okkur dýrmætari en við hon-
um.“
Pistorius og Hanna Hulda Hafþórsdóttir.
Oscar Pistorius og Ebba Guðný Guðmundsdóttir,
móðir Hafliða og dóttir Sigríðar Hönnu, bregða á leik
í myndatöku fyrir stoðtækjaframleiðandann Össur.
Hafliði með medalíuna góðu.
Pistorius og Hafþór Hafliðason á sæþotum sínum í Faxaflóa.
* „Það sést áandlistdráttumhans að hann er
bugaður af sorg.“
Höfundur þessarar greinarhefur einnig hitt OscarPistorius, tók við hann
viðtal fyrir Morgunblaðið í húsa-
kynnum Össurar sumarið 2007.
Útgeislun, hressleiki og hlýja eru
orð sem koma upp í hugann þeg-
ar sá fundur er rifjaður upp.
Grípum stuttlega niður í grein-
ina:
„Ferðin gegnum húsakynni
Össurar hf. sækist okkur hægt
en Oscar Pistorius nemur staðar
og heilsar öðrum hverjum manni
með virktum og faðmar suma að
sér. Ég hef orð á því að hann
þekki greinilega flesta starfs-
menn fyrirtækisins. „Já,“ segir
hann brosandi. „Fólkið hérna
hefur reynst mér afskaplega vel.
Össur hefur stutt við bakið á mér
síðan fyrir Ólympíuleika fatlaðra
í Aþenu 2004 og fyrirtækið á
stóran þátt í velgengni minni.“
Það geislar af þessum unga
manni og hann er bersýnilega vel
liðinn hjá Össuri enda þótt þetta
sé aðeins önnur heimsókn hans
til landsins.“
Í viðtalinu kvaðst Pistorius
ekki líta á sig sem „fatlaðan“.
„Það er mikilvægt að einblína á
styrkleika sína og láta veikleik-
ana liggja milli hluta. Ég gæti al-
veg látið fótaleysið fara í taug-
arnar á mér en kýs að gera það
ekki, einbeiti mér frekar að hæfi-
leikunum. Ef maður er stöðugt
að vorkenna sér kemst maður
hvorki lönd né strönd í þessu lífi.
Ég get líka gert allt sem mig
langar að gera, ég get hlaupið,
stokkið, synt og hvaðeina.
Kannski verð ég aldrei ball-
ettdansari en það verður bara að
hafa það,“ segir Pistorius og
hlær.“
Hér var aðeins um örstutt
kynni að ræða og greinarhöf-
undur tekur enga afstöðu til
ákærunnar sem Oscar Pistorius
hefur hangandi yfir höfði sér –
enda hefur hann engar forsendur
til þess.
AFP
Verð aldrei ballettdansari
Oscar Pistorius
áhyggjufullur fyrir
dómi í Pretoríu.
Vinirnir Oscar
og Hafliði Haf-
þórsson.
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson