Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Síða 53
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Kvikmyndaunnendur ættu
að drífa sig í Sambíóin í Egils-
höll, þar sem Óskars-
verðlaunakvikmyndin Argo
hefur aftur verið tekin til sýninga.
Hreppti hún fern verðlaun, meðal
annars sem besta mynd ársins.
2
Norðlendingar eiga von á
góðu þegar Pétur Ben
treður upp á Græna hatt-
inum á Akureyri á laugar-
dagskvöld ásamt hljómsveit. Kynna
þeir aðra sólóplötu Péturs, „Gods
lonely man“, sem rýnar hafa gefið
góða dóma. Hljómsveitina skipa Arn-
ar Þór Gíslason, Óttar Sæmundsen
og Þorbjörn Sigurðsson, auk Péturs.
4
Ljóð, norðurljós og glitrandi
íshellu má sjá á myndum
Rúnu K. Tetzschner á sýn-
ingu sem opnar á bókasafn-
inu í Hveragerði á laugardag kl. 12.
Einnig má sjá silkiskreytt ullarsjöl og
álfahúfur eftir Kömmu Níelsdóttur.
5
Merkilegri yfirlitssýningu á
verkum Gísla B. Björns-
sonar lýkur í Hönnunarsafni
Íslands í Garðabæ á sunnu-
dag. Þá munu Gísli og Harpa Þórs-
dóttir safnstjóri ganga um sýninguna
klukkan 14 og ræða um feril Gísla og
grafíska hönnun, en hann er einn at-
kvæðamesti grafíski hönnuðurinn í ís-
lenskri hönnunarsögu á 20. öld.
3
Söngvaskáldin og skötuhjúin
Uni og Jón Tryggvi bjóða
reglulega til tónleika heima hjá
sér í Merkigili á Eyrarbakka. Á
sunnudag klukkan 16 treður hljóm-
sveitin Ylja þar upp, svo full ástæða
er til að fjölmenna á Bakkann.
MÆLT MEÐ
1
Þetta er svo falleg tónlist. Hún er róm-antísk og draumkennd, og skemmti-leg stemning í henni,“ segir Lilja
Eggertsdóttir sópransöngkona um efnisskrá
tónleika kammerhópsins Stillu í Salnum í
Kópavogi á sunnudag klukkan 16. Tónlistin
á efnisskránni er öll frönsk að uppruna,
meðal annars eftir stórmeistara á borð við
Debussy, Bizet, Gounod, Ravel og Fauré.
„Tónlistin er úr mörgum áttum og allir
ættu að heyra eitthvað við sitt hæfi. Við
flytjum aríur, ljóð og lög; í einu lagi eftir
Poulanc er kabarettstemning, annað eftir
Debussy sem strengjakvartettinn leikur er
mjög stemningsríkt – og allt flutt á
frönsku,“ segir hún.
Fjórir söngvarar koma fram ásamt
strengjakvartett kammerhópsins Stillu. Auk
Lilju eru það þau Halla Marinósdóttir
messósópran, Birgir Karl Óskarsson tenór
og Jón Svavar Jósepsson barítón. Þau flytja
einsöngslög og aríur við undirleik kvart-
ettsins en hann skipa Sólrún Gunnarsdóttir
og Margrét Soffía Einarsdóttir á fiðlur,
Anna Hugadóttir á víólu og Gréta Rún
Snorradóttir á selló. Auk þess að leika und-
ir hjá söngvurunum flytur kvartettinn nokk-
ur verk einn, en nánast öll tónlistin á tón-
leikunum er sérstaklega útsett af meðlimum
hópsins fyrir þessa tónleika.
Efnisskráin er aðgengileg og skemmtileg
þar sem fleiri þekkt lög, eins og aría nauta-
banans úr Carmen, Perlukafaradúettinn
margfrægi og Pavan fyrir látna prinsessu,
eru flutt í bland við sjaldheyrðari verk, sem
Lilja segir mörg hver hreinar perlur.
TÓNLEIKAR KAMMERHÓPSINS STILLU
Draumkennd frönsk tónlist
STEMNINGSRÍK FRÖNSK TÓNLIST,
ARÍUR OG SÖNGLÖG, HLJÓMA Á
TÓNLEIKUM KAMMERHÓPSINS
STILLU Í SALNUM.
Kammerhópinn Stillu skipa söngvarar og
strengjaleikarar. Þau hafa sjálf útsett flest
frönsku verkin sem flutt verða.
„Vasaleikhúsið er ennþá mín biblía og þar
má bókstaflega finna allt sem ég er að fást við
ef vel er að gáð,“ sagði Þorvaldur árið 2006.
Þar er sífelldur núningur þessara tveggja
heima hans, orða og mynda.
„Ég hefði að öllum líkindum aldrei getað
þroskast sem rithöfundur nema vegna þess að
ég hafði þá afsökun að ég væri myndlist-
armaður. Ég er mjög þakklátur myndlistinni
fyrir að hafa gert mig að rithöfundi,“ sagði
hann árið 2004 fyrir opnun yfirlitssýningar
sem var í Hafnarhúsinu og í Gautaborg.
En hvert sem formið var, þá kemur glögg-
lega fram í skrifum Þorvaldar og viðtölum við
hann að hann trúði á mátt listarinnar til að af-
hjúpa heiminn og breyta heimum.
„Samtímalistin er svo oft vanmetin,“ sagði
hann árið 2008 og bætti við að oft gleymdist
sá stórkostlegi eiginleiki hennar „að geta ver-
ið vettvangur upplifunar eða uppgötvana sem
breyta sjónarhorni þínu á lífið, gefa þér brot
af sjálfum þér sem fylgja þér alla ævi.“
Þegar yfirlitssýning á myndlistarverkum Þorvaldar var opnuð í Listsafni Reykjavíkur árið 2004 sagði
hann sýninguna hafa undarlega lítið með hann sjálfan að gera.
Morgunblaðið/Kristinn
Árið 1992 setti Þorvaldur upp sýningu í NÝLÓ.
Morgunblaðið/EInar Falur
Sjónþing um listsköpun Þorvaldar var haldið í
Gerðubergi árið 1999. Jón Proppé, Sigmundur
Ernir Rúnarsson, Þorvaldur, Hannes Sigurðsson
og Þórhildur Þorleifsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
Þorvaldur tók við viðurkenningu úr hendi Guðjóns Petersen árið 2004, þegar leikritið And Björk
of course … var valið sem framlag Íslands til Norrænu leikskáldaverðlaunanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðstandendum leikritsins Lífið – notk-
unarreglur fagnað í Rýminu á Akureyri árið
2007. Bjarni Snæbjörnsson, Vignir Rafn Val-
þórsson, Þorvaldur og Megas.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hjónin Þorvaldur Þorsteinsson og Helena Jóns-
dóttir Í Borgarleikhúsinu árið 2005.
Morgunblaðið/Eggert