Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
Menning
H
vað mig varðar þá má útskýra
allt út frá karma, mitt karma
er frekar gott og því fæ ég að
njóta þess að vera tónlistar-
maður í þessu lífi,“ segir Gísli
Magnússon, betur þekktur sem Gímaldin. Fyr-
ir nokkru gaf hann út plötuna Evulög en lögin
eru samin út frá ljóðum eftir Evu Hauks-
dóttur, sem betur er þekkt sem Eva norn, en
Eva hefur undanfarin ár meðal annars vakið
athygli sem aðgerðasinni og fyrir pistlaskrif.
„Ég bað hana um að láta mér í té bunka af
trúarheimspekilegum ljóðum og með þau í far-
teskinu fór ég út á land til móðurfólksins í
Breiðdal, og dvaldi á eyðibýli sem er enn
tengt rafmagni, til þess eins að hrekkja ísbíl-
inn. Þar settist ég með kassagítar, textablöð,
diktafón, „multi track“ og formagnara og eftir
tvær vikur kom ég aftur í bæinn með hljóma
og lög. Þá tóku við útsetningar og ítarlegra
spil.“
Gímaldin segir lítið mál að semja lög við
jafngóða lýrík og Eva skapar. „Því betri kveð-
skap sem maður hefur í höndunum, því fljótar
kvikna hljómar og línur. Þarna streymdu þau
hreinlega út.“ Sumir textanna birtust í ljóða-
bókinni Fugl í grænum heimi sem kom út árið
2004, einhverjir birtust í Dræsubókinni svoköll-
uðu sem Eva gaf út; Ekki lita út fyrir, Sjálfs-
hjálparbók handa sjálfri mér og öðrum ýlandi
dræsum. Nokkrir textanna hafa ekki birst áður
og lög við textana hafa ekki verið gefin út áð-
ur á plötu. „Á þessum tímapunkti var ég að
gera plötuna Þú ert ekki sá sem ég valdi með
hljómsveitinni Gímaldin og félagar og texta-
heimurinn var mjög dimmur og grimmur. Mig
langaði að gera eitthvað sem fæli í sér meiri
bjartsýni og veitti hlustandanum meiri von.
Eitthvað sem væri allt að því „feel-good“ tón-
list. Ádeilan í þessum ljóðum er mun fíngerð-
ari en sú sem Eva er þekktust fyrir í dag.
Platan á undan tilheyrði gamla heiminum,
hrunhreimi, sjálfselsku og myrkri. Þetta skyldi
vera plata fyrir nýjan heim og nýja von.“
Eruð þið Eva gamlir vinir?
„Nei, við kynntust þegar ég kom heim úr
námi, í lok búsáhaldabyltingarinnar. Ég var að
læra rússnesku í Pétursborg í um þrjú og
hálft ár og fylgdist því með því sem var að
gerast heima í gegnum netið. Ég hafði sér-
staklega merkt særingar, ljóðstafagaldur sem
Eva beitti, meðal annars til að skipta um
seðlabankastjóra, en ég hafði þá um skeið ver-
ið að skoða stöðu bragfræðinnar gagnvart
veruleikanum og hvort óregla í bragfræðinni
gæti haft sömu áhrif á umhverfið og regla í
bragarhætti kallast á við reglu og skipulag til-
verunnar. Þegar ég kem heim eru mestu lætin
um garð gengin, í blábyrjun febrúar. Um svip-
að leyti er hún að gefa út dræsubókina sína
og ég mæti í útgáfuteitið hennar. Hún hafði þá
fengið tvo kollega mína, Jón Hall og Hermann
Stefánsson, til að gera músík við nokkur ljóð í
bókinni, sem var flutt í teitinu. Ég tók Evu
tali og við bárum saman bækur okkar um
galdur bragarháttarins.“
Eins og mörgum er kunnugt er Megas faðir
Gímaldins en Gímaldin telur ekki að tónlist
tengist erfðum, heldur er það karmað sem er
ofan á í þeim efnum að hans mati þótt faðir
hans hafi tekið hann og bróður hans, Þórð, í
tónlistarkennslu þegar þeir voru krakkar. Gím-
aldin ólst annars upp í Skerjafirði hjá stjúp-
föður, Erlingi Ólafssyni, og móður, Bergþóru
Gísladóttur. Hann er fæddur árið 1974 og seg-
ist vera nokkuð ópólitískur þrátt fyrir að hafa
farið í Keflavíkurgöngur með foreldrum sínum.
En mótmælir því ekki að það sé hippi í hjart-
anu. „Ég er réttlætissinni og finn mig ekki í
flokki eða flokkspólitík almennt.“ Gímaldin seg-
ist finna það í lífinu að ef hann breyti rétt og
gefi gott af sér komi það fljótt í ljós. Velgengi
sína á ákveðnum tímabilum reki hann yfirleitt
beint til þess að hann hafi fylgt hjartanu.
Hann telur að ef fólk gæfi sér tíma myndi það
líka sjá þetta samhengi í eigin lífi.
Gímaldin byrjaði ungur að skrifa og semja
tónlist en að jafnaði hefur hann sent frá sér
plötu annað hvert ár þótt annars sé til efni í
þrjár eða fleiri breiðskífur árlega. „Í for-
náminu hjá pabba var ég í byrjun settur á
kassagítar og bróðir minn á píanó. Svo datt
áhuginn eitthvað niður en þegar bróðir minn
kom með rafmagnsgítar inn á heimilið kviknaði
áhuginn að sjálfsögðu aftur. Ef átrúnaðargoðin
eru Jake E. Lee og Randy Rhoads þá er
kassagítar vonlaus til að byrja á. Best að fara
beint í metalgítar með sveif og hundrað vatta
magnara. Í kjölfarið byrjaði ég í rokk-
hljómsveitum og það varð ekki aftur snúið. Jú,
ég geri ýmislegt meðfram tónlistinni, vinn með
rússneskuna í þýðingum og tilfallandi verk-
efnum. Í eigin hugverkum hef ég mest átt við
örsögugerð síðustu misseri, sumar birst í tíma-
ritum, en aðrar hef ég birt á vefnum mínum,
gimaldin.com. Tónlistin er samt yfirleitt ofan á.
Annars á þetta allt vel saman, líkt og öll list.“
Pétursborg gerði mikið fyrir tónlistarmann-
inn en á þeim tíma flæddi allt í alls kyns plöt-
um sem safnarinn Gímaldin sankaði að sér.
Frá þeim árum á hann ótrúlegt safn af tónlist.
„Rússnesk plötuútgáfa og dreifing lýtur öðrum
lögmálum en við þekkjum hér og oft ekki
gjörla hægt að sjá hvað eru löglegar kópíur og
hvað ekki. Það má segja að flóran sé of stór
til að hægt sé að fella hana inn í nokkurt
kerfi. En meðan ég dvaldi úti barði al-
þjóðamarkaðsvélin látlaust á dyrnar hjá Rúss-
um og krafðist þess að þeir skyldu aðlagast.
Þannig að þetta var bæði gott og slæmt en
þarna fann ég mikið af fágætri tónlist og ég
held að ég hafi aldrei keypt jafn mikið af tón-
list og þarna.“
Að sama skapi gengst Gímaldin alveg við því
að vera svolítið neðanjarðar í tónlist. Að eins
miklu leyti og hægt er að vera neðanjarðar í
dag, netið færir öllum sem vilja ræðupúlt og
leiksvið. „Hver sem svo kýs má því hanna sinn
veruleika og laga sína skynjun að honum. Það
er margt ágætt við það. Umframveruleiki og
skynjun getur ekki gert neitt nema gott og
hvað praktík varðar er aðgengið að sjálfsögðu
betra.“
Fyrsta upplag nýjustu afurðarinnar er upp-
selt en aðdáendur Gímaldins geta hlustað á
alla plötuna og keypt í heilu lagi eða í bútum
á gimaldin.bandcamp.com. Á Evulögum gefur
Gímaldin eigin raddböndum að stærstum hluta
frí í fyrsta skipti í eigin efni en hann fékk
nokkra velþekkta og aðra minna þekkta söngv-
ara til að syngja ljóð Evu. Þó hefur Gímaldin
gefið út ýmislegt í samstarfi við aðra, má þar
nefna tvær breiðskífur við ljóð annarra; Hljóm-
orð með skáldkonunni Margréti Lóu, Vodka
Songs með Páli Gunnarssyni sem og stuttskífu
með ljóðum sem Eiríkur Örn Norðdahl þýddi;
Á íslensku má alltaf finna Ginsberg. Á nýju
plötunni eru söngvarar, meðal annarra þau
Megas, Trausti Laufdal og Lára Sveinsdóttir.
„Það var svolítið skrýtið en mjög gaman. Ég
reyni almennt að vasast ekki of mikið í ann-
arra manna söng, listamennirnir verða að fá að
gera þetta eins og þeir vilja því annars er
hálftilgangslaust að fá aðrar raddir að láni. En
mér finnst þessir ólíku söngvarar og lög hafa
smollið býsna vel saman. Listamennirnir verða
að fá að gera þetta eins og þeir vilja því ann-
ars er hálftilgangslaust að fá aðrar raddir að
láni. En mér finnst þessir ólíku söngvarar og
lög hafa smollið nokkurn veginn saman.“
„Því betri kveðskap sem maður hefur í höndunum, því fljótar kvikna hljómar og línur. Þarna
streymdu þau hreinlega út,“ segir Gímaldin um tilurð nýjustu afurðar sinnar; Evulaga.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
GÍMALDIN MAGISTER SAMDI LÖG VIÐ LJÓÐ EVU HAUKSDÓTTUR
Gott verður til af góðu
GÍMALDIN MAGISTER, HINN SVOKALLAÐI TÓNLISTARMAÐUR, FÓR MEÐ LJÓÐ EVU HAUKSDÓTTUR ÚT Á LAND OG HLJÓMARNIR FÆDDUST
ÁREYNSLULAUST. HANN SEGIR TÓNLISTINA OG TEXTA YLJA – AÐ MINNSTA KOSTI Á HANS EIGIN MÆLIKVARÐA OG EIGI AÐ GEFA VON.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Ef þig svíkur andans kraftur
ekki hætta, reyndu aftur,
hugurinn ber þig hálfa leið
hitt er nám og vinna.
Þér yrði sjálfsagt gatan greið
ef gætirðu kvartað minna.
Heilræðavísa eftir Evu Hauksdóttur