Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Page 57
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Parísarkonan eftir Paulu Mc-
Lain kom út fyrir jól en kemur
nú út í kilju. Þetta er lipurlega
skrifuð og áhugaverð skáldsaga
um hjónaband Ernests Hem-
ingways og Hadley Richardson
sem var fyrsta eiginkona hans.
Hemingway, sem var ekki auð-
veldur maður, viðurkenndi ekki
að hafa gert mörg mistök um
ævina en sagði þó að hann
hefði aldrei átt að skilja við
Hadley.
Bókin hlaut mikla athygli við
útkomu og fór á metsölulista
New York Times. Þekktir ein-
staklingar eins og Ezra Pound,
Scott og Zelda Fitzgerald,
Gertrude Stein og fleiri eru
aukapersónur í þessari ágætu
skáldsögu.
Hadley og
Hemingway
Íslensk þýðing Þórarins Eldjárns á Lísu
í Undralandi eftir Lewis Caroll hefur
verið endurútgefin hjá forlaginu Evertype á
Írlandi. Forleggjarinn, Michael Everson,
hefur einstakt dálæti á hinni stórkostlegu
sögu Lewis um Lísu í Undralandi og leggur
metnað sinn í að gefa bókina út á sem
flestum tungum. Sjálfur segir Everson: „Ég
hef gefið Lísu út á mörgum tungumálum
en þessi íslenska þýðing er mér sérlega
hugleikin. Ég hef haft áhuga á Íslandi og ís-
lensku frá því snemma á unglingsárum. Að-
dáun mín á verkum J. R. R. Tolkiens varð
til þess að ég tók að grufla dálítið í forn-
íslensku og eignaðist pennavin í Hafn-
arfirði.
Það er fyrir mér líkt og draumur sem
rætist að gefa Lísu út á íslensku. Ég hef
margoft lesið Lísu á ótal tungumálum og
ég hef haft mikla ánægju af útgáfu Þór-
arins Eldjárns. Hún hefur lengi verið ófá-
anleg og ég er í senn glaður og stoltur af
því að geta nú komið henni á framfæri.“
Þórarinn Eldjárn. Íslensk þýðing hans á Lísu í
Undralandi er komin út hjá írsku forlagi.
Morgunblaðið/Ómar
LÍKT OG DRAUMUR
SEM RÆTIST
Sólveig Pálsdóttir skaust
fram á sjónarsviðið síðasta
vor með fyrstu bók sína,
Leikarann. Þegar er búið
að selja kvikmyndaréttinn
til Kvikmyndafélags Íslands
og bitist var um útgáfu-
réttinn í Þýskalandi. Ný
bók er væntanleg frá Sól-
veigu í vor. Í þessari nýju
spennusögu er hryðju-
verkaárás gerð á eitt hval-
skipið í Reykjavíkurhöfn.
Böndin berast að íslensk-
um unglingum. Hvernig
getur staðið á því að ís-
lenskir krakkar finna sig
knúna til að ráðast á hval-
skip? Hver myrti auð-
manninn á golfvellinum við
Kiðjaberg? Enn taka lög-
reglumennirnir Guðgeir,
Særós og Andrés til sinna
ráða við að leysa gáturnar.
HRYÐJUVERKAÁRÁS Á HVALSKIP
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Söngleikurinn Mary Poppins er
að slá rækilega í gegn og engin
furða því hvaða barn hrífst ekki
af Mary Popppins? Hin sígilda
barnabók um fóstruna ráða-
góðu er á markaði og ætti að
rata til sem flestra barna. Mary
Poppins bókarinnar er kannski
ekki alveg eins yndisleg og Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir en
kann ráð við öllu og kemur allt-
af á óvart. Mary Poppins svíkur
ekki, hvorki í söngleik né á bók.
Hin óviðjafn-
anlega Mary
Poppins
Bækur eftir
ólíkar
skáldkonur
NÝJAR OG NÝLEGAR BÆKUR
BÆKUR VIKUNNAR EIGA ÞAÐ SAMEIGINLEGT AÐ
VERA ALLAR EFTIR KONUR. HÉR ER KLASSÍSK
BARNABÓK, SPENNUTRYLLIR, BÓK UM ÁSTIR OG
ÖRLÖG OG SKÁLDSAGA UM KONU SEM ÞARF
AÐ ENDURSKOÐA LÍF SITT EFTIR AÐ EIGINMAÐ-
UR HENNAR YFIRGEFUR HANA. ÓLÍKAR BÆKUR,
ÞANNIG AÐ ALLIR FÁ EITTHVAÐ VIÐ SITT HÆFI.
Sumar án karlmanna eftir Siri Hus-
tvedt er stórgóð skáldsaga, full af
hugleiðingum um samskipti, kynja-
hlutverk, hjónaband og ástir. Boris
fer frá Miu eftir þrjátíu ára hjóna-
band og Mia þarf að endurskoða líf
sitt. Þetta er sérlega vel hugsuð
skáldsaga með skemmtilegri aðal-
persónu. Hustvedt er athugull
skoðandi mannlegs eðlis og kald-
hæðni hennar er dásamleg.
Stórgóð skáld-
saga um uppgjör
Kuldi eftir Yrsu Sigurðardóttur var ein af söluhæstu bókum
síðasta árs. Bókin er nú komin út í kilju. Eins og kunnugt er
hefur Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi tryggt
sér kvikmyndaréttinn. Ung stúlka ræður sig til starfa á ung-
lingaheimili á áttunda áratug síðustu aldar. Löngu síðar fer
ungur maður að rannsaka starfsemi heimilisins. Hér eru
dularfullir atburðir og hörmungar á ferðinni
Hörmungar og
dularfullir atburðir
* Það er erfitt að temja þann sem hefurséð sannleikann.Kristín Marja Baldursdóttir BÓKSALA 10.-23. FEBRÚAR
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar
1 Fimmtíu skuggar frelsisEL James
2 BrynhjartaJo Nesbo
3 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
4 IllskaEiríkur Örn Norðdahl
5 IðrunHanne-Vibeke Holst
6 Lilli klifurmús og hin dýrin íHálsaskógi
Thorbjörn Egner
7 Að velja gleðiKay Pollak
8 Uppskrift að fjöri með LatabæMagnús Scheving
9 Risasyrpa - Hetjur AndabæjarWalt Disney
10 ÓsjálfráttAuður Jónsdóttir
Kiljur
1 Fimmtíu skuggar frelsisEL James
2 BrynhjartaJo Nesbo
3 IllskaEiríkur Örn Norðdahl
4 IðrunHanne-Vibeke Holst
5 Að velja gleðiKay Pollak
6 ÁstirJavier Marias
7 Fimmtíu dekkri skuggarE L James
8 Fimmtíu gráir skuggarE.l. Jones
9 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
10 Dagbók ElkuHilma Gunnarsdóttir
& Sigurður Gylfi Magnússon
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Heimskt er heimaalið barn.
Sólveig Pálsdóttir.
Ný spennusaga eftir
hana kemur út í vor.
Þar er gerð hryðju-
verkaárás á hvalskip.