Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Side 59
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Ef kúnst styrkist leysist málið. (6)
3. Rangali sem liggur ekki að heldur frá leiðir til viðskilnaðar. (9)
7. Óhreint varð aðnjótandi skíts. (8)
9. Lykt af plötu að endingu. (8)
11. Af lækni einum kemur rák í kíló sem er örlagaþrungin. (10)
13. Byggir nú riðill einhvern veginn á liðamótum. (8)
15. Kvenfugl í Vesturbænum nær að hripa. (6)
16. Keyrði Gunnu öfugsnúna til óþekktrar. (7)
17. Hurð eftir vitran mann sýnir kropp. (7)
18. Lækka kisurnar í þokunni. (12)
19. Keppni til binda skó veldur yfirnáttúrulegum atburðum. (10)
21. Ákveðinn spænskur sem hittir ríflega hálfan Skandínava sem
er ástmaður. (8)
26. Suðum í heilu lagi dýrling og köstuðum kveðjum á. (11)
27. Smjörlíki sjávarguðs hefur yfir sér birtu. (8)
28. Drep sum merki en skil eftir sönnunargögn. (11)
30. Sturta ró þannig litað birtist. (8)
31. Grét mjög fínni möl sem var hreinsandi. (10)
34. Rólegur, taktu þann sem er einhvern veginn leiðinlegur. (12)
LÓÐRÉTT
1. Frekar keyrðar í prívat eigu. (11)
2. Í ruslakistu finnst los. (5)
3. Vegna farar með rím úr félögunum. (10)
4. Hef sex óþekkta. (5)
5. Skýringarrit um hvassviðri. (5)
6. Fyrirkomulag hesta á sýningarneti. (10)
8. Dáin situr og þvælir undirmanni. (9)
10. Bönnuðu með einu hálf auðu. (7)
12. Sá hluti þinn sem merkir við bókstaf er hægri sinnaður hluti
flokks. (11)
14. Aular brotna niður við að syngja. (5)
16. Er snjósæll ekki hamingjusamur? (5)
20. Ílát Mjólkursamsölunnar eða einn enskur með óhreinindi. (8)
21. Evrópumeistaramót lagfærði meiðsli á tímabili. (10)
22. Borðið hest á bekknum. (5)
23. Upplýsingaskjal um eldfjall. (5)
24. Orðun fundarboðs í Hálsaskógi lýsir gersemi. (7)
25. Nákvæmlega meitlað í grjót í fjárgeymslu. (9)
26. Aðsúgsmiklir sjá hvar skinn liggur við kind. (7)
29. Nægði sneitt einhvern veginn. (6)
32. Sílesandi í útlöndum. (4)
33. Dedúar og vaggar. (4)
Úkraínumaðurinn Pavel Eljanov,
Filippseyingurinn Wesley So og
Bassem Amin frá Egyptalandi eru
sigurvegarar 29. Reykjavíkur-
skákmótsins sem lauk í Hörpu á
miðvikudaginn. Þeir hlutu 8 vinn-
inga af 10 mögulegum en með 7 ½
vinning komu kempur á borð við
Giri, Cheparinov, Yi Wei, Liren
Ding, Sokolov, Jones, Dziuba og
Morowitzch. Samkvæmt nýrri út-
hlutunarreglu, kenndri við Tékk-
ann Vlastimil Hort, hlaut Eljanov
hæstu verðlaunin en frammistaða
hans reiknast upp á 2799 elo-stig.
Hann vann bæði Cheparinov og
Kínverjann Liren Ding.
Af frammistöðu okkar bestu
manna í móti ber hæst að Hannes
Hlífar Stefánsson náði sér vel á
strik. Hann tapaði að vísu fremur
klaufalega fyrir Ivan Sokolov í
lokaumferðinni en tefldi margar
góðar skákir og hlaut 6 ½ vinning.
Guðmundur Kjartansson, Þröstur
Þórhallsson og Hjörvar Steinn
Grétarsson áttu góða spretti; þeg-
ar stutt var eftir þurfti Hjörvar
að vinna Guramashvili frá Georgíu
sem hann átti að hafa í fullu tré
við. Undir var lokaáfangi að stór-
meistaratitli en byrjunartaktík
Hjörvars í þessari mikilvægu skák
var ekki góð og hann tapaði.
Margir ungir skákmenn og kon-
ur stóðu sig vel. Má þar nefna
landsliðskonurnar Hallgerði
Helgu Þorsteinsdóttur og Tinnu
Kristínu Finnbogadóttur, Akur-
eyringana Jón Kristin Þorgeirs-
son og Símon Þórhallsson, Eyja-
manninn Nökkva Sverrisson,
Daða Ómarsson, Dag Ragnarsson,
Jón Trausta Harðarson, Nansý
Davíðsdóttur og ýmsa aðra.
Stóri innlendi sigurvegarinn var
mótið sjálft, sem fram fór við frá-
bærar aðstæður í Hörpunni.
Tæknibúnaður er mikill og flókinn
en sú deild var vel mönnuð. Gagn-
rýna mætti þó aðstæður áhorfenda
en sýningarborðum þarf að fjölga.
Þá liggur fyrir að hið mikla styrk-
leikabil milli keppenda gerir mótið
ekki sérlega „áfangavænt“. Yfir-
umsjón var í höndum Gunnars
Björnssonar, forseta SÍ, en stefn-
an er að fjölga enn meira erlend-
um keppendum á næsta móti, sem
jafnframt er 50 ára afmælismót.
Siurvegarinn Wesley So er besti
skákmaður Filippseyinga í dag og
augljóslega afar hæfileikaríkur
skákmaður, aðeins tvítugur að
aldri en árangur hans var uppá
2753 elo-stig. Hann fór létt með að
vinna Pólverjann Dziuba í 9. um-
ferð:
Wesley So _ Marcin Dziuba
Caro Kann
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4.
Rf3 e6 5. Be2 Re7
Einn af fjölmörgum leikjum sem
til greina koma en 5. … c5 er
algengast, t.d. 6. Be3 cxd4 7. Rxd4
Re7.
6. O-O c5 7. c4 Rbc6 8. Ra3
dxc4 9. Rxc4 Rd5 10. Bg5 Dd7 11.
Hc1 h6 12. Be3!
Góður staður fyrir biskupinn.
Hann hyggst svara 12. … Rxe3
með 13. Rxe3 cxd4 14. Rxf5 exf5
15. Bb5 o.s.frv.
12. … b5 13. Ra3 a6 14. dxc5
Be4 15. Rc2 Rxe3 16. Rxe3 Be7
17. a4 Db7 18. Rd2 Hd8 19. axb5
axb5 20. Rxe4!
Hárrétt ákvörðun. Hvítur fær
nægar bætur fyrir drottninguna:
hrók, léttan og frípeð.
20. … Hxd1 21. Hfxd1 Rxe5 22.
c6! Dc7
Ekki 22. … Rxc6 vegna 23. Bf3!
og vinnur riddarann.
23. Bxb5 O-O 24. Rc4 Bd8?
Meira hald var í 24. … f5.
25. Rc5 Rxc4 26. Hxc4 De5 27.
Hc2 Bc7 28. g3 Hb8 29. Ba4 Ha8
30. b4 Df5 31. Hdc1 h5 32. Bb5
Bb6 33. Bf1 h4 34. Rd7 Bd4 35.
c7 Hc8 36. Hd2 hxg3 37. hxg3
Dg5?
Hér mátti enn verjast með 37.
… Ba7.
38. Hxd4! Dxc1 39. Rf6+!
Glæsilegur lokahnykkur.
39. … Kf8
Eða 39. … gxf6 40. Hd8+ Kg8
41. Hxc8 ásamt 42. b5 sem vinnur
létt.
40. Hd8+ Ke7 41. Rg8 mát!
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
SKÁK
Glæsilegt Reykjavíkurskákmót
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegis-
móum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 3. mars rennur út
á hádegi 8. mars. Nafn vinn-
ingshafa er birt í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins 10.
mars.
Vinningshafi krossgátunnar
24. febrúar er Valdís Björgvinsdóttir, Lækjargötu 32,
Hafnarfirði. Hún hlýtur í verðlaun bókina Bjarna-
Dísa eftir Kristínu Steinsdóttur. Forlagið gefur bók-
ina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang