Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
T
ottenham endaði síðast fyrir ofan
Arsenal 1995 og hefur prófess-
orinn Arsene Wenger því alltaf
haldið þessum erkifjendum fyrir
aftan sig. Enn ein rósin í hans
hnappagat. En nú er jakkinn fullur af rósum
finnst mörgum og tími kominn á þennan
franska meistara. Tími til að kveðja. Liðið
hefur legið undir gríðarlegri gagnrýni nánast
allt tímabilið. Óþarfi er að nudda stuðnings-
mönnum upp úr titlaleysinu en stuðnings-
menn vilja kaupa alvöru fótboltamenn í stað-
inn fyrir að ala þá upp.
Wenger hefur keypt köttinn í sekknum
oftar en ekki – þá loksins hann rífur upp
veskið og eyðir háum fjárhæðum. Gervinho
hefur litlu skilað, Andre Santos var grínkarl
sem kostaði 6,2 milljónir punda, Mertesacker
kostaði 10 milljónir, eins og Koscielny. Þeir
fá seint bronsstyttu af sér eins og Dennis
Bergkamp. Arshavin kostaði 15 milljónir og
þá fékk Marouane Chamakh ótrúlegan
samning. Kaup Wengers hafa því litlu skilað
loksins þegar hann hefur fengið pening.
Samt heldur hann liðinu alltaf við toppinn en
keppir aldrei af einhverri alvöru um titla. Sú
lest er löngu farin framhjá.
Á sama tíma virðist allt leika í lyndi hjá
grönnunum í Tottenham. Eftir erfiða byrjun
hefur Andres Villas-Boas fengið leikmenn til
að trúa á verkefnið og leikur liðsins er
skemmtilegur á að horfa. Þar fer Gareth
Bale fremstur í flokki en Villas-Boas hefur
gert hann að leikmanni í sérflokki. Algjörum
sérflokki. Þegar stjórarnir labba út á leik-
vanginn mun það vera Villas-Boas sem er
með kassann úti en Wenger mætir hnípnari
til leiks.
Bale hefur einmitt dregið vagn Tottenham
nánast aleinn upp á síðkastið en þeir verða
að fá meira úr Emmanuel Adebayor ef þeir
ætla sér að fá eitthvað út úr leiknum. Þá
binda Spurs-arar vonir við að Gylfi okkar
Sigurðsson sé kominn í gang varðandi
markaskorun. Bakverðir Tottenham eru
slakir og ef Wenger spilar með þá Podolski
og Walcott sinn á hvorum vængnum gæti
Tottenham verið í vandræðum.
Arsenal hefur litið út eins og taugahrúga í
vörninni þar sem Wojciech Szczesny fer
fremstur í flokki vandræðagemsa. Jack Wils-
here verður að vinna baráttuna um miðjuna
og þá mun Wenger væntanlega stilla upp
Oliver Giroud í framlínunni sem litlu hefur
skilað í netmöskva andstæðinganna. Hann
hefur meira verið í því að búa til færi.
En hvað sem verður er nánast hægt að
lofa frábærum leik þar sem hart verður bar-
ist innan vallar sem utan og langt fram á
kvöld.
Gylfi Sigurðsson skoraði sitt fyrsta úr-
valsdeildarmark gegn West Ham
AFP
Febrúar var frábær fyrir Andres Villas-Boas
AFP
Norður-Lundúnir munu loga
LEIKUR Á MILLI GRANNANNA Í ARSENAL OG TOTTENHAM ER ÁVÍSUN Á GÓÐA SKEMMTUN OG OFT ÓTRÚLEG UPPLIFUN. LÖNGU FYRIR LEIK ER
SUNGIÐ OG TRALLAÐ OG Á LEIKVANGINUM ER STEMNINGIN MÖGNUÐ.
AFP
Febrúar var ekki góður fyrir Arsene Wenger
Ég vil ekki vera of bjartsýnn fyrir leikinn svo ég ætla að spá 8-0
fyrir Arsenal
Piers Morgan í viðtali við BBC um spá sína um leikinn.
Boltinn
BENEDIKT BÓAS
benedikt@mbl.is