Morgunblaðið - 12.04.2013, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Verði niðurstaða alþingiskosning-
anna 27. apríl næstkomandi í sam-
ræmi við skoðanakönnun sem Fé-
lagsvísindastofnun HÍ gerði fyrir
Morgunblaðið 2.-8. apríl sl. munu 30
nýir þingmenn taka sæti á Alþingi í
vor eða 47,6% þingmanna. Það yrði
mesta endurnýjun á þingi sem sögur
fara af.
Eftir alþingiskosningarnar 25.
apríl 2009 tóku 27 nýir þingmenn
sæti á Alþingi. Á þingi sitja 63 þing-
menn og því voru nýliðar 42,9% þing-
heims fyrir fjórum árum. Þá var end-
urnýjunin sú mesta sem orðið hafði í
þingsögunni. Fara þurfti aftur til
kosninganna 1991 til að finna næst-
mestu endurnýjunina en þá settust
25 nýir þingmenn á þing eða 39,7%.
Eftir þingkosningarnar 12. maí 2007
settust 24 nýir þingmenn á Alþingi.
Fari sem horfir nú, samkvæmt skoð-
anakönnunum, er ljóst að þorri þing-
manna á næsta þingi mun eiga til-
tölulega skamma þingreynslu að
baki.
Minnsta endurnýjunin á Alþingi á
síðari tímum varð fyrir réttri hálfri
öld, árið 1963, þegar níu nýliðar sett-
ust á þing að loknum kosningum.
Þingmenn voru þá 60 talsins og end-
urnýjunin því 15% það árið. Endur-
nýjun þingmanna á árunum 1934-
2009 var að meðaltali 28,2%, sam-
kvæmt Handbók Alþingis 2009.
Þrjár konur viku af þingi
Í kosningunum 2009 voru kjörnir
36 karlar og 27 konur til setu á Al-
þingi. Konur höfðu aldrei verið fleiri
á þingi en þá eða 42,9% þingmanna.
Þær Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir og Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir hurfu af
þingi á kjörtímabilinu og karlar tóku
sæti í þeirra stað. Samkvæmt niður-
stöðu fyrrgreindrar skoðanakönnun-
ar myndu 37 karlar og 26 konur taka
sæti á þingi yrðu úrslit kosninga
samkvæmt könnuninni.
Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi
forsætisráðherra, var fæddur 29.
desember 1910. Hann var fyrst kjör-
inn á þing árið 1934, þá 23 ára og 177
daga gamall og er hann yngstur
kjörinna alþingismanna. Hann var
síðast kosinn í alþingiskosningunum
2.-3. desember 1979, og vantaði þá 26
daga upp á að vera orðinn 69 ára.
Jón Bjarnason, fyrrverandi
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, leiðir lista Regnbogans í NV-
kjördæmi. Hann er fæddur 26. des-
ember 1943 og verður því 69 ára og
121 dags gamall á kjördegi. Nái hann
kjöri verður hann því elstur þeirra
sem kjörnir verða nú. Næst honum
að aldri í hópi frambjóðenda er Sig-
rún Magnúsdóttir, sem skipar 2.
sæti framsóknarmanna í Reykjavík-
urkjördæmi norður. Hún er fædd 15.
júní 1944. Níu dögum yngri er Pétur
H. Blöndal, sem skipar 2. sæti á lista
Sjálfstæðismanna í Reykjavíkur-
kjördæmi suður.
Mesta endurnýjun
í sögu Alþingis?
Nýliðar voru 42,9% þingheims fyrir fjórum árum
Morgunblaðið/Ómar
Setning Alþingis 1. október 2009 Kannanir benda til þess að margir muni hverfa af þingi og nýir koma í staðinn.
Aldraðir þingmenn
» Á 20. öld voru þrír þing-
menn kjörnir á þing eftir að
þeir voru orðnir sjötugir.
» Þeir voru Ingvar Pálmason,
kosinn 1946, Páll Zóphónías-
son, kosinn 1959 og Ólafur
Thors sem var kosinn 1963.
» Pétur Ottesen á að baki
lengstu setu á Alþingi, 42 ár og
tæpa 8 mánuði. Hann var síð-
ast kjörinn 1956 og var þá tæp-
lega 68 ára gamall.
„Maður getur
aldrei sagt til um
úrslit kosninga
fyrirfram. Það er
eitt af því sem
gerir þetta svo
spennandi,“
sagði Sigrún
Magnúsdóttir,
þjóðfræðingur
og fyrrverandi
borgarfulltrúi.
Hún skipar 2. sætið á lista Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík-
urkjördæmi norður. Samkvæmt
skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar HÍ fyrir Morg-
unblaðið fengi flokkurinn þrjá
menn í kjördæminu.
En átti Sigrún von á þeim mikla
meðbyr sem Framsóknarflokk-
urinn nýtur nú í skoðanakönnunum
þegar hún gaf kost á sér í 2. sætið?
Hún sagðist hafa boðið sig fram
af tveimur ástæðum. Ekki síst
þeirri að henni þótti Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson formaður
leiða flokkinn með svo skemmti-
legum hætti að hana langaði að
vera með. En hver var hin ástæðan?
„Í fyrra voru allir aldraðir hvatt-
ir til að vera virkir. Er það ekki að
vera virkur að taka þátt í sam-
félagsumræðunni og nöldra ekki
bara heima í eldhúsi,“ spurði Sig-
rún. Hún verður 69 ára hinn 15.
júní næstkomandi.
Sigrún byrjaði sín stjórn-
málaafskipti vestur á Bíldudal árið
1970 þegar hún bauð sig fram í
sveitarstjórn Suðurfjarðahrepps.
Hún var síðar í borgarstjórn
Reykjavíkur í 20 ár og vann því
lengi að sveitarstjórnarmálum.
Sigrún bauð sig fyrst fram til Al-
þingis 1978 og aftur 1979 og varð
þá varaþingmaður. Hún settist á
þing sem varaþingmaður Ólafs
heitins Jóhannessonar bæði 1980
og 1982. „Það er kannski merkilegt
að láta líða rúm 30 ár á milli þess
sem maður fer í framboð til Alþing-
is,“ sagði Sigrún. Eftir að hún hætti
í borgarmálunum lærði hún þjóð-
fræði við Háskóla Íslands. Þar
lærði hún ýmislegt um þjóðtrúna.
„Kjördagurinn er sá 27. og þver-
summan af því er níu. Nían er
mögnuð tala og á slíkum kjördegi
getur allt gerst,“ sagði Sigrún.
„Á slíkum kjördegi
getur allt gerst“
Sigrún
Magnúsdóttir
„Ég bjóst alltaf
við því að okkur
myndi ganga
töluvert vel ef
okkur tækist að
ná skilaboðunum
um skuldaleið-
réttinguna og
verðtrygginguna
í gegn,“ sagði
Sigurjón Nor-
berg Kjærnested
vélaverkfræðingur. Hann skipar 4.
sætið á lista Framsóknarflokksins í
Suðvesturkjördæmi. Samkvæmt
niðurstöðu skoðanakönnunar Fé-
lagsvísindastofnunar HÍ fyrir
Morgunblaðið er það ávísun á þing-
sæti. Hann var formaður Sambands
ungra framsóknarmanna 2010-
2011 og gat sem slíkur verið
áheyrnarfulltrúi með tillögurétt á
þingflokksfundum framsóknar-
manna.
Sigurjón benti á að fylgi sveifl-
aðist og enginn vissi hvernig kosn-
ingabaráttan endaði. Hann kvaðst
hafa verið ákveðinn í að gefa allan
sinn frítíma í kosningabaráttuna. Í
gær var hann að tala við kjósendur
í Firðinum í Hafnarfirði.
„Það er aðkallandi fyrir fólk á
mínum aldri að verðtryggingin
verði afnumin,“ sagði Sigurjón sem
er 28 ára gamall. En hvað hefur
hann fram að færa?
„Ég er vélaverkfræðingur og
starfa mikið í orku- og iðnaðar-
málum. Ég tel að ég hafi ýmislegt
fram að færa í atvinnu- og orku-
málum,“ sagði Sigurjón. „Ég hef
einnig barist lengi fyrir málefnum
ungs fólks, til dæmis varðandi af-
nám verðtryggingar. Ég vona að
við fáum nógu mikið fylgi til þess
að koma í gegn þessum aðgerðum,
að afnema verðtrygginguna og
leiðrétta skuldir heimilanna. Það er
það sem skiptir máli.“ Sigurjón
taldi niðurstöður skoðanakannana
benda til þess að kjósendur teldu
mikilvægt að gripið yrði til þessara
aðgerða.
„Ein skoðanakönnun sýndi að
20% ungs fólks hugsuðu sér að
kjósa Framsóknarflokkinn, sem er
mikill viðsnúningur. Við höfum oft
átt erfitt uppdráttar meðal unga
fólksins. Ég tel að þetta sýni að
unga fólkið sé að pæla í afnámi
verðtryggingarinnar,“ sagði Sig-
urjón. gudni@mbl.is
Allur frítíminn fer í
kosningabaráttuna
Sigurjón Norberg
Kjærnested
Átján stjórn-
málasamtök hafa
fengið úthlut-
aðan listabók-
staf. Frestur til
að skila inn
framboðum til
alþingiskosninga
27. apríl nk.
rennur út fyrir
hádegi í dag. Stjórnmálasamtök
gátu sent ósk til innanríkisráðu-
neytisins um að fá úthlutaðan sér-
stakan listabókstaf fyrir 9. apríl sl.
Ráðuneytið birti í gær skrá yfir
listabókstafi stjórnmálasamtak-
anna sem buðu fram lista í síðustu
alþingiskosningum ásamt bók-
stöfum þeirra sem bjóða nú fram.
Listarnir sem um ræðir eru: A-
listi, B-listi, C-listi, D-listi, F-listi,
G-listi, H-listi, I-listi, J-listi, K-listi,
L-listi, M-listi, P-listi, R-listi, S-
listi, T-listi, V-listi, Þ-listi. Lands-
byggðarflokkurinn fékk úthlut-
aðan listabókstafinn M, af innan-
ríkisráðuneytinu í gær.
Frestur framboða
rennur út í dag